153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni, það er verið að bæta við ýmsum svona ákvörðunarstöðum fyrir stjórnvöld, að meta það hvort viðkomandi falli undir ýmis undanþáguákvæði. Ef það er ekki gert málefnalega er það kæranlegt og það er kostnaðarsamt að bæta við auknu mögulegu skrifræði. Það mun lengja málsmeðferðartíma að taka burt þarna — það hefur alla vega verið talað um að þau vilji losna við 12 mánaða regluna sem þvingi málsmeðferðina af stað. Það mun bara þýða að fólk verður hérna enn lengur sem er kostnaður bæði fyrir ríki og sveitarfélög. Á heildina litið er alveg rétt að það fer rosalega mikill peningur í þetta sem væri hægt að nýta í ýmislegt annað ef útlendingastefnan væri heildstæðari hérna á Íslandi þannig að það væri einfaldlega hægt að taka á móti fólki og nýta peninginn í annað, ef við getum orðað það þannig.

En vandinn sem við glímum við er vissulega sá, og það er alveg rétt sem er bent á í þessu frumvarpi, að hann er búinn að breytast á undanförnum áratug. Það eru miklu, miklu fleiri á flótta á alþjóðavísu og alþjóðasamfélagið þarf að bregðast við því saman. Við getum það ekki ein, auðvitað ekki. En hvar er þá ríkisstjórnin að kalla eftir einhvers konar viðbrögðum, sameiginlegum viðbrögðum ríkisstjórna í Evrópu og víðar? Við erum bundin af alþjóðaskuldbindingum og við getum verið eins ströng og við erum kannski á umsóknarferlinu sem er samkvæmt flóttamannasáttmálanum. Við þurfum þess ekki. Við getum verið linari á því í rauninni og minnkað kostnaðinn. (Forseti hringir.) En við erum ströng þannig að við gerum mikið, erum með mikla pappírsvinnu sem kostar rosalega mikinn pening.