153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið en ég er að fara yfir athugasemdir Rauða krossins á Íslandi við 2. gr. frumvarpsins sem fjallar um sjálfkrafa kæru í ákveðinni tegund mála og lögbundinn greinargerðarfrest. Ég ætla að grípa niður í umsögnina þar sem frá var horfið, með leyfi forseta:

„Þá telur Rauði krossinn upplýsingar úr sjúkraskrá oft gefa tilefni til frekari rannsóknar og greiningar á andlegum eða líkamlegum veikindum umsækjenda með öflun ítarlegri vottorða. Töluvert ber á því að Útlendingastofnun fellst ekki á að veita umsækjendum frest til að afla slíkra gagna sjálfir. Enn fremur eru umsækjendur ítrekað látnir bera hallann af því ef gögn skortir sem varpa ljósi á andlega eða líkamlega heilsu viðkomandi.“

Hér er það Rauði krossinn á Íslandi sem skrifar. Þegar þetta frumvarp kemur fyrst fram og þar til í febrúar eða mars á síðasta ári, ef ég man rétt, sá Rauði krossinn um réttindagæslu við allt flóttafólk sem hingað leitar að vernd með mjög fáum undantekningum. Það er því alveg ljóst að Rauði krossinn hefur mjög umfangsmikla reynslu af því að fylgja eftir umsóknum um alþjóðlega vernd. Það er því sláandi þegar aðili sem hefur farið með nánast öll mál talar um það annars vegar að töluvert beri á því að Útlendingastofnun veiti fólki ekki frest til að afla gagna sjálft og láti svo hins vegar fólk bera hallann af því að gögnin skorti. Þetta er eitthvað sem er algengt í framkvæmd, að sögn Rauða krossins hér.

Eins og fram kom í máli mínu áður og kemur fram í umsögninni líka hafa bæði kærufresturinn og greinargerðarfresturinn verið nýttir til að afla þessara gagna fyrir kærunefnd útlendingamála og oft eru það þessi gögn sem umbylta málum. Þetta sýnir hvernig framkvæmd laganna af hálfu Útlendingastofnunar er það sem skerðir skilvirknina hér á landi vegna þess að mál eru að fara til kærunefndar sem eiga ekki heima þar. Ef Útlendingastofnun myndi sinna sinni rannsóknarskyldu, veita fólki annaðhvort frest til að afla umræddra gagna eða aðstoð við að afla þeirra og ef gögnin skortir að láta fólk njóta vafans af því að gögnin skorti — það er eðlileg stjórnsýsla og það er eitthvað sem ég held að myndi bæta talsvert úr skilvirknivandanum hér á landi, þ.e. ef allar meginreglur, og þau viðmið sem hafa skapast í almennum stjórnsýslurétti hér á landi, yrðu betur virtar af hálfu Útlendingastofnunar.

Sú er hér stendur hefur lengi haft í hyggju að skrifa fræðigrein sem gæti heitið: Stjórnsýsluréttur fyrir útlendinga. Ýmislegt sem þykir eðlilegt alls staðar annars staðar í stjórnsýslunni virðist einhvern veginn ekki gilda þegar kemur að útlendingum. En það er ekkert í lögum sem segir að annað eigi að gilda þegar kemur að útlendingum.

Ég ætla að halda áfram, með leyfi forseta:

„Afleiðingar þessarar vanrækslu stofnunarinnar geta verið alvarlegar þegar umsækjendur sem í raun falla undir hugtakaskilgreiningu 6. tölu. 3. gr. útlendingalaga fá ekki viðurkenningu á stöðu sinni þar sem ekki hefur farið fram rannsókn á andlegu eða líkamlegu ástandi viðkomandi í samræmi við 1. mgr. 25. gr. útlendingalaga. Á þetta einnig við í málum þar sem um er að ræða einstaklinga sem falla beinlínis að einhverju þeirra atriða sem talin eru upp í 6. tölul. 3. gr. útlendingalaga, svo sem fórnarlömb mansals, fólk með geðraskanir og einstaklingar sem hafa orðið fyrir pyndingum, kynfæralimlestingum, nauðgun eða öðru alvarlegu andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi og vísbendingar liggja fyrir um afleiðingar þess á viðkomandi. Hefur umræddur 15 daga kærufrestur því oft nýst talsmanni og umsækjanda til nauðsynlegrar gagnaöflunar í því skyni að varpa ljósi á sérstaklega viðkvæma stöðu viðkomandi. Algengt er sem dæmi að umsækjandi eigi bókaðan tíma hjá sérfræðingi á komandi dögum eða vikum en Útlendingastofnun fellst ekki á að bíða eftir því að gagna sé aflað í samræmi við 1. mgr. 25. gr. útlendingalaga áður en ákvörðun er tekin í málinu.“

Ég er aftur að falla á tíma en ég ætla að fá að skjóta því hér að að þetta er mjög sláandi að hafa í huga í ljósi svara frá ráðuneytinu sem bárust við fyrirspurn þingmanns sem beint var til dómsmálaráðherra um fjölda fatlaðra einstaklinga sem sækja um vernd þar sem ekki eru til tölur yfir það. Það er ekki að sjá (Forseti hringir.) af þessari framkvæmd, sem lýst er hér í umsögn Rauða krossins á Íslandi, að við getum raunverulega (Forseti hringir.) treyst því að búið sé að kanna það hvort fólk sé haldið fötlun eða ekki. Ég held áfram í næstu ræðu og óska eftir því að fara aftur á mælendaskrá.