útlendingar.
Frú forseti. Ég ræddi í síðustu ræðu minni um skilvirkni. Þegar kemur að skilvirkni þá er annað sem hefur einnig komið mikið upp og það er umræða um kostnað. Mig langar aðeins að grafa ofan í kostnaðinn vegna þess að hann tengist skilvirkninni dálítið vel. Til að skoða það skoðaði ég nýjustu ársskýrslu Útlendingastofnunar sem kom út fyrir árið 2020. Það er athyglisvert að sjá að þegar kemur að launum og launatengdum gjöldum hjá Útlendingastofnun eru það um 500 millj. kr. en ef maður notar þumalputtareglu sem virðist almennt vera horft á varðandi hver kostnaður er við ríkisstarfsfólk með öllum launatengdum gjöldum, að hvert stöðugildi sé um 15 milljónir, þá eru þetta um 25 stöðugildi, sem aftur kostar 500 milljónir.
En það er athyglisvert að fara aðeins dýpra ofan í kostnaðinn vegna þess að það kemur líka fram þarna að 2,5 milljarðar, þ.e. fimmfaldur launakostnaðurinn, fóru í aðkeypta þjónustu. 1,4 milljarðar af því fóru til sveitarfélaganna sem eins og hefur verið bent á sjá um að taka á móti og hýsa fólkið. Það er hins vegar athyglisvert að sjá að 500 milljónir, hálfur milljarður, fara í það sem skilgreint er sem öryggisþjónusta. Þetta er væntanlega kostnaðurinn við það að fá stoðdeild ríkislögreglustjóra til þess m.a. að flytja fólk úr landi eða taka fólk og smala því saman og henda í fangelsi áður en það er sent úr landi. 37 milljónir fara líka í að leigja flugvélar til að flytja fólk úr landi.
Það hefur verið mikið talað um hvað það er mikill peningur sem sjálfir hælisleitendurnir fá. Samtals voru það 106 milljónir árið 2020. Það eru þessar 8.000 kr. á viku. Já, þetta er kostnaður en það kostar að sýna mannúð. Það kostar að vera hluti af alþjóðasamfélaginu og kostar t.d. að taka á móti frændum okkar í austri sem eru að berjast fyrir lýðræði Evrópu. Já, það er eitthvað sem á að kosta okkur. Við erum ekki að leggja peninga í her. Flest ríki Evrópu eru að leggja allt að 2% í varnarmál. Við erum ekki að því og þess vegna þurfum við að leggja okkar af mörkum þegar kemur að því að taka á móti fólki á flótta og styðja fólk í neyð.
Ef við viljum lækka þann kostnað sem ég var að telja upp hérna áðan þá eru til leiðir til þess. Það er með því að gera kerfið raunverulega skilvirkara, eitthvað sem þetta frumvarp gerir ekki. Ef við viljum lækka kostnað þá getum við t.d. gefið fólki atvinnuleyfi strax, eitthvað sem er gert að hluta til í þessu en ekki fyrir alla. Það er líka stundum sagt að við þurfum að bæta hlutina í þeim löndum sem fólk er að flýja frá. En þá þurfum við sem þjóð að fara að mæta þeim skuldbindingum sem við höfum ekki gert í áratugi en það er að setja 0,7% af þjóðarframleiðslu í þróunaraðstoð en ekki 0,35% eins og ríkisstjórnin er að gera í dag og hefur engin áform um að hækka samkvæmt fjármálaáætlun sinni. Þannig að já, ef við ætlum að tala um kostnað og skilvirkni, lögum þá það sem virkilega hefur áhrif. (Forseti hringir.) Ekki bara tala út í loftið og reyna að benda á að hægt sé að gera eitthvað af því en síðan gera ekki neitt.