útlendingar.
Forseti. Hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fór mjög vel áðan yfir umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands sem ég tek undir með henni að er ótrúlega mikilvæg umsögn. Þarna er í miklum smáatriðum farið yfir hvaða greinar stjórnarskrárinnar breytingarnar í þessu frumvarpi varða og mikilvægi þess. Það er mikilvægt að fá úr því skorið hvort þetta standist stjórnarskrá og alþjóðlega samninga eins og mannréttindasáttmála Evrópu. Þau orðuðu það meira að segja þannig í umsögn sinni, með leyfi forseta:
„Óhjákvæmilegt er að löggjafinn taki skýra afstöðu að undangengnu efnislegu mati til þess hvort skilyrði um stjórnarskrárákvæðið sé fullnægt.“
Óhjákvæmilega, forseti, en það er ekkert óhjákvæmilegt út af því að er enginn, núll áhugi á því að fara í þá skoðun og gangast við því efnislega mati.
En forseti, mig langar líka til að fjalla aðeins um umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands vegna þess að það er mjög góð umsögn og þar segir, með leyfi forseta:
„Mannréttindaskrifstofu Íslands (MRSI) hefur borist framangreint frumvarp til umsagnar. Vísar skrifstofan til yfirlýsingar 15 félagasamtaka á Íslandi til stjórnvalda, dags. 20. maí sl., þar sem vísað var til skorts á samráði við gerð framangreinds frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga og skorað á ríkisstjórnina að taka skref til baka, dýpka samtalið og samráðið og þannig að ná faglegri sátt.“
Forseti. Ég staldra við þessi orð, „að ná faglegri sátt“. Auðvitað á að ná faglegri sátt en ekki pólitísku sáttinni sem virðist einhvern veginn vera eini fókus, afsakið slettuna, ríkisstjórnarinnar sem er samansett af svo ólíkum flokkum, sem reyndar eftir, hvað er þetta orðið, fimm ára samstarf eru kannski ekkert svo ólíkir lengur en alla vega eiga að líta út fyrir að vera ólíkir, með ólíkar áherslur. Þá snýst þetta allt um að ná einhvers konar sátt þeirra á milli og allri fagmennsku er fórnað í þeirri sátt. Þannig að mér finnst mikilvægt að staldra við þetta. Auðvitað talar Mannréttindaskrifstofu Íslands um mikilvægi þess að ná faglegri sátt. Það er bara miður, forseti, að það er ekki horft til þess í þeirri mikilvægu vinnu sem á sér stað hjá framkvæmdavaldinu, eða hjá þessari ríkisstjórn, að ná þessari faglegu sátt, því að ekki er hlustað á þessar umsagnir.
Í þessari umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands er mikið fjallað um 6. gr., sem ég hef líka talað um í fyrri ræðum, en hún snýr að því að réttur til þjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd falli á brott 30 dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar í máli en þó megi ekki fella niður réttindi barna, foreldra, eða umsjónarmanna þeirra og annarra heimilismanna sem teljast til ættingja barna, barnshafandi kvenna, alvarlegra veikra einstaklinga og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Ég les úr umsögninni, með leyfi forseta:
„Þau réttindi sem hér um ræðir og fjallað er um í 33. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 eru grundvallarmannréttindi.“
Þetta orð kemur dálítið oft fram í mismunandi umsögnum; grundvallar. Þegar maður hugsar um orðið þá hugsar maður einhvern veginn: Þetta er grunnurinn sem allt annað á að byggja á, þannig að þetta ætti að vera forsenda þeirrar vinnu sem fer í gang. En það er það ekki, engan veginn, og ég skil ekki að fólki finnist það í lagi. Þess vegna kannski hlæ ég hérna í pontu, maður ætti ekki að vera að hlæja, maður ætti að vera að gráta. Þetta er grátlegt. En þegar maður er búinn að standa hérna og tala um þetta í svona langan tíma þá verður þetta líka grátbroslegt. Þetta eru réttindi sem eru tryggð í samningi Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sem Ísland er aðili að og hefur fullgilt. Þetta snýr að því að svipta fólk þjónustu, að henda því bara út á götu og maður hlýtur að spyrja sig, forseti: Af hverju er svona mikið kappsmál fyrir ríkisstjórnina að auka á neyð fólks og örvæntingu? Þetta er fólk sem kemur hingað í neyð og er örvæntingarfullt og svarið er að auka á þessa neyð. Hvers vegna? Í þeirri von um að fólkið hypji sig bara (Forseti hringir.) út af því að við komum svo ógeðslega illa fram við það? (Forseti hringir.) Er þetta eitthvað sem við ætlum bara að samþykkja og er bara allt í lagi að gútera það (Forseti hringir.) að við brjótum mannréttindi fólks af því að það er skilvirkasta leiðin til þess að fólk (Forseti hringir.) fari úr landi sjálft? (Forseti hringir.) Þetta er ógeðslegt, forseti. Þetta er ógeðslegt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill aftur minna þingmenn á að virða ræðutímann.)