153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:11]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Aðeins til að halda áfram með ræðu hv. þm. Halldóru Mogensen: Eins og ég talaði um í ræðunni áðan þá kemst t.d. fólk frá Íran ekkert aftur til Írans. Það er ekkert auðvelt að komast til Írans. Áður fyrr þurfti jafnvel að fljúga til Moskvu — það er enginn að fara þangað núna — og millilenda þar. Við erum því að tala um hóp fólks sem er í raun fast á landinu og kemst ekkert burtu nema með hjálp íslenskra stjórnvalda. En hvert eiga þau að fara? Mörg hver hafa engan annan stað, eru kannski ekki komin með alþjóðlega vernd neins staðar annars staðar, komu hingað sem fyrsta umsóknarland og eru bara föst, en uppfylla, þrátt fyrir aðstæður í Íran, ekki þær kröfur sem stjórnvöld gera hérna, sem eru ansi harðar; kröfurnar sem eru gerðar til að uppfylla skilyrðin um alþjóðlega vernd. Hugsið aðeins um það.

Þrátt fyrir allt þetta og þetta frumvarp hafa einmitt mjög margir á undanförnum árum fengið alþjóðlega vernd eftir að hafa farið í gegnum þetta gríðarlega stranga ferli. Það er enginn vafi á því að það fólk uppfyllir þær kröfur sem eru gerðar til að hljóta alþjóðlega vernd. En það hafa hins vegar verið ýmis dæmi þar sem fólki hefur, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, verið hafnað. Það hafa orðið fjölmiðlamál um það sem stjórnvöld hafa síðan tekið upp og sagt: Heyrðu, nei, hér er undantekning sem þarf að veita. Það er ekki nein almenn breyting eða neitt svoleiðis af því að þetta er rosalegt sértilvik. Ferlið er þannig ekki fullkomið. Við getum verið viss um það miðað við hversu strangt ferlið er — það eru rosalega ítarleg viðtöl gerð og það er rosalegt samráð við aðila sem eru kunnugir staðháttum þegar verið er að yfirheyra fólk um það hvort það sé í raun og veru þaðan sem það segist vera og sé það sem það segist vera — að það fólk sem hefur fengið alþjóðlega vernd er tvímælalaust þess verðugt. En við erum hins vegar ekki, út af því að ferlið er það strangt, endilega viss um að þeim sem er hafnað sé hafnað á algerlega réttum forsendum, eins og dæmin gefa til kynna.

Í þessu ljósi hljótum við að horfa á tillögur ríkisstjórnarinnar um að fella niður þjónustu á annan hátt. Við erum hér mögulega að glíma við fólk sem getur einfaldlega ekki farið úr landi vegna ýmissa ástæðna eða er jafnvel að ósekju hafnað um alþjóðlega vernd.

Í frumvarpinu, þar sem talað er um mat á áhrifum, segir, með leyfi forseta:

„Er ætlunin að gera framkvæmd þessara ákvæða skýrari og fyrirsjáanlegri og auka skilvirkni og mannúð við meðferð slíkra mála.“

En hér er verið að fella niður réttindi, fella niður þjónustu. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig það er aukin mannúð þegar allt kemur til alls miðað við þá áhættu að verið sé að hafna fólki sem á í alvörunni rétt.

Það er sagt að þetta frumvarp muni ekki hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð af því að markmiðið sé að auka skilvirkni í meðferð mála og þetta muni bæta meðferð opinbers fjár og þar með afkomu ríkissjóðs. Hversu mikið? Ég hef ekki hugmynd af því að allar breytingarnar virðast í raun búa til meiri skriffinnsku. Ég nefni þjónustuskerðinguna — þegar tekið er tillit til undantekningartilfella er hópurinn sem er eftir í raun mjög lítill. Kannski er verið að horfa til þess að ef fólk er ekki samvinnuþýtt missi það þjónustuna. Þá er kannski einhver sparnaður, en á sama tíma er mögulega verið að brjóta á réttindum fólks, nema nú er það orðið löglegt að einhverju leyti. Þetta er þetta klassíska „löglegt en siðlaust“-mál.

Ég ætla næst að fara yfir umfjöllun nefndarinnar um stjórnskipunarálitamálin því hún er mjög áhugaverð. Ég bið forseta um að setja mig á mælendaskrá.