útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég held áfram þar sem ég hætti í minni fyrri ræðu. Ég er hér að fjalla um 2. gr. frumvarpsins varðandi sjálfkrafa kæru í ákveðinni tegund mála og lögbundinn greinargerðarfrest. Ég var að fara yfir umsögn Rauða krossins á Íslandi og svolítið að útskýra hvað það sem þar er sagt þýðir í raunveruleikanum og á mannamáli, þótt umsögnin sé sannarlega nokkuð skýr. Ég efast þó um að allir þingmenn hafi lesið hana, er raunar nokkuð sannfærð um að svo sé ekki. Með leyfi forseta:
„Hafa umsækjendur þannig þurft að nýta kærufrestinn til þess að bæta upp fyrir vanrækslu stjórnvalda á rannsóknarskyldu sinni svo öll nauðsynleg gögn geti legið fyrir og talsmaður geti fjallað sérstaklega um í greinargerð á kærustigi. Hér skal einnig áréttað að úrskurður kærunefndar útlendingamála er lokaúrskurður í máli viðkomandi þar sem möguleikar umsækjenda um alþjóðlega vernd til þess að bera mál sitt undir dómstóla hafa verið takmarkaðir verulega.“
Hér bryddar Rauði krossinn upp á atriði sem er mjög mikilvægt, og ég mun fara betur yfir í umræðum um önnur ákvæði frumvarpsins, þar sem er enn frekar verið að takmarka möguleika flóttafólks á að leita réttar síns. Hvað þýðir það að leita réttar síns? Það þýðir að fá ranga ákvörðun leiðrétta. Nú þegar, bæði í lögum en þó sérstaklega í framkvæmd, hefur flóttafólk verulega takmarkaða möguleika á að leita réttar síns, á að fá ranga niðurstöðu leiðrétta. Það hefur hins vegar sýnt sig að í þeim fáu tilvikum þar sem þau hafa tækifæri til þess, t.d. finna lögmann sem er reiðubúinn að taka málið og vinna það frítt þar sem þau fá ekki gjafsókn, eða í þeim örfáu málum þar sem fallist er á frestun réttaráhrifa, þ.e. að bíða með að flytja fólk úr landi þangað til að niðurstaða dómstóla liggur fyrir — í þessum örfáum málum þá sést að það eru iðulega vankantar á framkvæmd stjórnvalda sem gera það að verkum að við erum að senda fólk úr landi sem á rétt á að vera hérna. Það er þar sem stjórnleysi ríkir í þessum málaflokki. Það er í framkvæmdinni sem er eitthvað sem hæstv. dómsmálaráðherra gæti leyst með því einu að tryggja að undirstofnun hans starfi samkvæmt lögum. Það þarf ekkert að breyta neinum lögum til þess að tryggja það. Með leyfi forseta:
„Samkvæmt athugasemdum frumvarpshöfunda er ákvæðinu ekki ætlað að breyta framkvæmd að öðru leyti en að stytta þann tíma sem ekki sé nýttur í málavinnslu“ — þ.e. nauðsynlega gagnaöflun af hálfu umsækjenda, þar sem stjórnvöld neituðu að afla nauðsynlegra gagna — „og auka skilvirkni án þess að skerða réttarvernd aðila máls. Leggur Rauði krossinn til að verði núgildandi 15 daga kærufrestur afnuminn verði verklagi formlega breytt til þess að tryggja að Útlendingastofnun sinni rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 1. mgr. 25. gr. útlendingalaga og tryggi möguleika umsækjenda á því að leggja fram nauðsynleg gögn í máli sínu áður en ákvörðun er tekin.“
Hér er Rauði krossinn jafnvel að koma með mjög eðlilega og vel rökstudda málefnalega tillögu að breytingum á þessu frumvarpi eða öðru sem þarf til að tryggja að þessar breytingar skerði ekki réttarvernd umsækjenda. Til að tryggja það þyrfti að breyta framkvæmd stjórnvalda. Hver er það sem breytir framkvæmd Útlendingastofnunar innan marka laganna? Það er dómsmálaráðherra. Ekkert slíkt hefur verið lagt til. Ekkert er brugðist við þessu í breytingartillögum þeim sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar, meiri hlutinn hér á þingi, hefur lagt til.
Áfram segir, með leyfi forseta:
„Rauði krossinn hefur um árabil lagt áherslu á að aukin skilvirkni í málsmeðferð og stytting málsmeðferðartíma sé eitt mikilvægasta skrefið til úrbóta í málaflokknum og leggst félagið því ekki gegn því að kæra verði sjálfvirk af neinum öðrum ástæðum en þeim sem hér hefur verið gerð grein fyrir. Líkt og fram kemur í frumvarpinu er mikilvægt að aukin skilvirkni komi ekki niður á réttaröryggi umsækjenda, ekki síst einstaklinga sem eru mögulega í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi laganna.“
Þá kem ég að tillögu sem Rauði krossinn leggur formlega til í umsögn sinni og ekki var brugðist við af hálfu meiri hlutans. En ég er fallinn á tíma eina ferðina enn og mun koma að því í næstu ræðu minni. Ég óska eftir því við forseta að fá að fara aftur á mælendaskrá.