153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:21]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Dómsmálaráðherra hefur í fjölmiðlum og ræðustól ítrekað sagt: „Við eigum að leggja áherslu á að sinna af fremsta megni vel þeim sem við ætlum að skjóta skjólshúsi yfir.“ Ég spyr: Hvað er það sem verður til þess að ákveðið er að skjóta skjólshúsi yfir fólk? Er það sú neyð sem viðkomandi er að flýja? Er það litarháttur viðkomandi? Er það trú viðkomandi? Er það það hvort viðkomandi komi frá Evrópu eða Afríku? Það er mikilvægt, þegar svona yfirlýsingar eru notaðar, að talað sé hreint út.

Tölfræðin gefur áhugaverða innsýn í þessar spurningar. Það er nefnilega þannig að stærstur hluti þeirra sem hingað koma er að flýja neyð, stríð og átök. Er það fólk sem ráðherra og hv. þingmenn vilja að við tökum á móti? Ég get alla vega sagt það, hafandi unnið í mannúðargeiranum og í hjálparstarfi víða um heim um áratugaskeið, að það er til góð skilgreining á því hvernig eigi að forgangsraða aðstoð við fólk. Það hefur ekkert að gera með litarhátt, þjóðerni, trú eða neitt slíkt. Það hefur að gera með neyð, þú átt að sinna því fólki sem er í neyð og forgangsraða eftir neyðinni sem það er í. Það er meira að segja þannig að öll grundvallargildi mannúðar, hvort sem það er hjá Sameinuðu þjóðunum, alþjóða Rauða krossinum, í Genfarsáttmálanum eða öðrum mannréttindasáttmálum, eru á þann veg við eigum að sinna fólki í neyð.

Það er hreinlega sorglegt að horfa á hvernig tekið er mismunandi á móti fólki eftir því hvaðan það kemur, ekki eftir því hvort neyðin sé minni eða stærri, heldur eftir því hvaða litarhátt eða trú viðkomandi hefur. Það virtist t.d. ekki vera neitt vandamál að hingað væri að koma fullt af fólki frá Venesúela fyrr en einhverjir af þeim milljón Sýrlendingum sem hafa búið í Venesúela frá 1950 fóru að flýja land og koma hingað. Þá allt í einu var það komið upp að það væru einhverjir með annað litaraft og aðra trú sem væru að koma hingað.

Já, ég segi það hreint út. Þegar litið er á tölfræðina þá sjáum við að hin atriðin sem ég spurði um virðast stundum vera sett ofar en sjálf neyðin. Við þurfum að passa, þegar við erum að setja lög og reglur hér á hinu háa Alþingi, að við förum ekki bara eftir stjórnarskrá, mannréttindum og alþjóðasáttmálum heldur líka eftir þeim gildum sem alþjóðasamfélagið hefur sett þegar kemur að því að aðstoða fólk í neyð.