útlendingar.
Virðulegur forseti. Dyflinnarreglugerðina mætti kalla milliríkjasáttmála sem aðildarríki Evrópusambandsins komu sér saman um varðandi sameiginlega móttöku flóttafólks, svo ég einfaldi þetta samkomulag allverulega. Það felur í sér ákveðinn ramma og samkomulag um hvernig skuli tekið á móti flóttafólki og a.m.k. þegar það var fyrst samþykkt var tilgangurinn sagður vera sá að tryggja í raun sanngjarna dreifingu á því álagi sem móttaka flóttafólks felur vissulega í sér. Sömuleiðis átti að tryggja flóttafólki rétt á að fá umsókn sína um alþjóðlega vernd tekna fyrir í a.m.k. einu af aðildarríkjum Dyflinnarsamkomulagsins.
Þetta samkomulag eða þessi reglugerð hefur verið átylla fyrir ekki bara ráðherra í ríkisstjórn Íslands heldur einnig útlendingayfirvöld til þess að bera fyrir sig að þeim beri einhver skylda samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni til að senda fólk úr landi og taka ekki fyrir umsókn þess vegna þess að Dyflinnarreglugerðin einfaldlega segi þeim að gera það. Þessi ósannindi hef ég heyrt allt frá því að ég fór að kynna mér þennan málaflokk í þaula. Hvað var það, 2010, 2011, 2012, þá var ég að heyra þetta sem átyllu fyrir því að það væri ekki hægt að leyfa fólki að vera hérna vegna þess að Dyflinnarreglugerðin skyldaði okkur til þessa að senda fólk úr landi. Ég vil bara halda því til haga, virðulegi forseti, að þetta er alrangt. Þetta er algerlega rangt. Við höfum fulla heimild til þess að leyfa fólki að vera hérna.
Mér finnst mikilvægt að taka þetta hér til umræðu vegna þess að það hefur verið látið sem svo að okkur beri einhvers konar skylda til þess að senda fólk til Grikklands. Við sendum ekki fólk til Grikklands, og ég veit að þetta kann að virka ruglandi fyrir suma, á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Hvers vegna? Vegna þess að aðstæður flóttamanna eru það vondar í Grikklandi að rétt eins og flest önnur Evrópuríki teljum við ekki forsvaranlegt að senda umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands vegna þeirra aðstæðna sem þar eru uppi. Það er vegna þess að Dyflinnarreglugerðin hefur algerlega brugðist upprunalegu markmiði sínu um að dreifa ábyrgðinni á móttöku flóttafólks. Ábyrgðin er einna helst sett á herðar nágrannaríkjanna, þ.e. ríkjanna sem eru með landamæri þar sem flóttafólk kemst á einn eða annan, oftast mjög hættulegan, hátt inn í álfuna. Grikkland er kannski eitt stærsta dæmið um akkúrat hvernig Dyflinnarreglugerðin hefur brugðist vegna þess að það er allt of mikið álag á Grikklandi, allt of mikið, en stjórnvöld hér vilja samt sem áður leggja meira álag á Grikkland en ekki í gegnum Dyflinnarreglugerðina, nei, það er búið að komast að niðurstöðu um að það sé ómannúðlegt að senda fólk til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, þ.e. það er fólk sem hefur sótt um vernd í Grikklandi en ekki enn þá fengið svar um hvort það teljist flóttamenn eða ekki og hefur svo komið hingað og sótt um vernd hér og þá ákveða íslensk stjórnvöld að senda viðkomandi til baka. Nei, við erum búin að hætta því gagnvart Grikklandi.
Ég sé að tíminn er á þrotum, virðulegur forseti, þannig að ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá vegna þess að við sendum samt fólk til Grikklands. Það er bara ekki á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Ég mun í næstu ræðu fara yfir hversu fáránlegt það er að við séum að senda fólk til Grikklands þótt það sé ekki á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.