útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið, fer alveg að ljúka máli mínu varðandi 2. gr. frumvarpsins sem lýtur að sjálfvirkri kæru og lögbundnum greinargerðarfresti. Nú er ég búin að gera grein fyrir gagnrýni Rauða krossins á þessa grein sem er kannski sérstaklega athyglisverð í ljósi þess að greinin virðist vera sakleysisleg við fyrstu sýn. Er það ekki í hag umsækjenda að kæra sé sjálfvirk, það þurfi ekki að kæra? Jú, það getur verið það í sumum tilvikum. Hins vegar er innleiddur þarna líka lögbundinn greinargerðarfrestur sem er óvanalegt og er ekki nú í dag. Í dag er greinargerðarfrestur sjö virkir dagar sem er u.þ.b. tíu dagar í heildina, 11, 12 eftir því hvar það lendir á fríum, en það er bara samkvæmt starfsreglum kærunefndar, það er ekki lögbundið og stjórnvöldum í sjálfsvald sett að breyta því. Það leggur heldur engar hömlur á kærunefnd að taka við greinargerð eða gögnum eftir þann frest.
En eins og fram hefur komið þá er mjög algengt, því miður allt of algengt, og það er kannski eitt af því sem er að í þessum málaflokki, að umsækjendur, sem verða kærendur þegar þeir eru búnir að fá þá ákvörðun frá Útlendingastofnun, neyðast til að fara í gagnaöflun eða halda gagnaöflun áfram eftir að búið er að birta þeim ákvörðun Útlendingastofnunar vegna þess að Útlendingastofnun sinnir ekki rannsóknarskyldu sinni samkvæmt lögum, gefur ekki frest til gagnaöflunar umsækjenda og tekur ákvörðun þrátt fyrir að gögn hafi ekki borist sem vitað er jafnvel að berist innan nokkurra daga. Það eru fjölmörg dæmi um þetta.
Það sem vekur hins vegar athygli er að það er ekki eingöngu Rauði krossinn, sem þekkir þennan málaflokk frá því sjónarhorni einna best, hafandi verið í þeirri stöðu að vera að kæra ákvarðanir Útlendingastofnunar fyrir hönd sinna umbjóðenda og skilað inn greinargerðum, heldur voru fleiri aðilar. Það eru fleiri aðilar sem hafa gert athugasemdir við þessa grein, þar á meðal Íslandsdeild Amnesty, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands.
Í umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem í ofanálag, ég taldi hann ekki einu sinni upp, gerir athugasemdir við þessa grein segir, með leyfi forseta:
„Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á grundvelli 36. gr. sæti sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski þess sérstaklega að svo verði ekki. Greinargerð vegna slíkrar kæru, eða tilkynning um að hún verði ekki lögð fram, berist kærunefnd útlendingamála innan 14 daga frá birtingu ákvörðunar Útlendingastofnunar …“
Ég ætla ekki að lesa beint upp úr umsögninni hér eftir vegna þess að ákveðnum atriðum hefur verið breytt frá því að umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands var rituð en stofnunin kveðst vera hugsi yfir þessu ákvæði þar sem að mati skrifstofunnar eigi það að vera valkvætt hvort kæra eigi til kærunefndar útlendingamála eða ekki. Einnig bendir hún á að það sé fátítt í stjórnsýslunni að stjórnvaldsákvarðanir sæti sjálfkrafa kæru. Þá er það þannig, líkt og hefur verið bent á af hálfu Rauða krossins, að í framkvæmd hafa umsækjendur þurft að nýta þennan frest til að glöggva sig á efni ákvörðunar Útlendingastofnunar sem er afhent þeim á íslensku, 10–20 bls. á þungri íslensku, jafnvel smátorfi fyrir íslenskumælandi að skilja ákvarðanirnar, en ekki bara til að skilja ákvarðanirnar heldur til að afla gagna sem gætu haft og hafa oft í framkvæmd áhrif á endanlega niðurstöðu í málinu. Það kemur hérna fram að þessi stutti tími til greinargerðar muni valda umsækjendum réttindamissi og vísar Mannréttindaskrifstofa Íslands til meginreglna stjórnsýslulaga, svo sem andmælaréttar og rannsóknarreglu og sjónarmiða sem koma fram í 6. gr. laga nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um rétt til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Telur Mannréttindaskrifstofan þessi sjónarmið einnig eiga heima í málsmeðferð stjórnsýslumála.
Hér hefur verið gerð grein fyrir gagnrýni Mannréttindaskrifstofu Íslands á það ákvæði frumvarpsins sem kannski er einna minnst gagnrýnivert. (Forseti hringir.) Og hvað segir það okkur um framhaldið? Ég óska eftir því við virðulegan forseta að fá að fara aftur á mælendaskrá.