153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:05]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það hefur stundum verið nefnt að fólk komi hingað af því að hér séu einhverjir seglar og talað er um að breyta þurfi löggjöfinni á þann hátt að fæla fólk frekar frá því að koma hingað og sækja um hæli. Þar hafa sumir hv. þingmenn, kannski með hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson í fararbroddi, lagt til hvort við eigum ekki að skoða að fara þá leið sem nokkur ríki hafa kannað og jafnvel reynt, að útvista hreinlega þessum hælisleitendum, helst sem lengst í burtu svo að litlar líkur séu á því að viðkomandi geti fengið að nýta lögbundinn rétt sinn til að fá mál sitt tekið fyrir.

Einna fyrstir til þess að gera þetta voru Ástralar en árið 2001 gerðu þeir samning við litla eyju í Kyrrahafinu sem heitir Nárú um að taka á móti allt að 1.200 hælisleitendum. Fyrir þá sem vilja heyra söguna um Nárú sem er ansi skemmtileg — og ég held að við Íslendingar eigum kannski einhverja frændur þarna, alla vega þegar kemur að því að halda að við getum verið stærsta þjóð í heimi — þá mæli ég eindregið með því að hlusta á þætti Veru Illugadóttur, Í ljósi sögunnar, um eyjuna Nárú. En ein af nýjustu hugmyndunum um tekjulind fyrir landið var einmitt þetta, hvort það gæti ekki tekið á móti hælisleitendum. Að þessu fordæmi fór Bretland fyrir tveimur árum að skoða það að senda hælisleitendur til Rúanda í miðri Afríku og gerði nokkurs konar samkomulag um að tekið yrði á móti um 1.000 hælisleitendum. Þetta var aðallega hugsað sem fælingartæki, að fólk væri ekki að koma yfir Ermarsundið á einhverjum bátum til þess eins að vera síðan sent hálfa leiðina í kringum hnöttinn. Þess skal geta að Bretar hafa ekki enn sent einn einasta einstakling til Rúanda, enda er enn að ganga í gegnum dómskerfið þar mál til að meta hvort það sé yfir höfuð lögmætt að senda fólk svona langt í burtu og þar að auki er kostnaðurinn ansi mikill, fyrir utan það að 1.000 manns, sem yrðu sendir þangað, er aðeins dropi í hafið af þeim fjölda sem kemur til Bretlands. Þetta er sem sagt ekki að virka sem fælingarmáttur, enda hefur það sýnt sig að fjöldinn sem flýr yfir Ermarsund hefur næstum tvöfaldast frá því Bretar tilkynntu um þetta.

Þarna var verið að reyna einhverja fælingarstefnu sem ekki gekk vel í Bretlandi. En í síðustu viku var einmitt tilkynnt að stjórnvöld í Danmörku, sem einnig höfðu verið að skoða þetta, væru hætt við öll áform sín um að vista hælisleitendur í búðum í Rúanda. Það er talað um segla og fælingarmátt en þessi leið virkaði greinilega ekki.

Það er kannski athyglisvert að heyra hvaða aðrar leiðir fólk vill nota og í þær ætla ég að fara í næstu ræðu minni, frú forseti, ef þú getur bætt mér á mælendaskrá. Ég ætla að tala aðeins um þessar svokölluðu séríslensku reglur sem ansi mikið er tönnlast á hér í ræðustól.