útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég ætla að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í minni fyrri ræðu hér fyrir ekki svo löngu þar sem ég var að fjalla um Dyflinnarreglugerðina í samhengi við endursendingar eða brottvísanir flóttafólks til Grikklands. Ég var búin að útskýra að vegna mannúðarástæðna sendum við fólk ekki til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og átti eftir, vegna þess að ræðutíminn er það stuttur, einungis fimm mínútur, að útskýra hvernig í ósköpunum okkur dettur í hug að senda fólk til Grikklands á einhverjum öðrum forsendum en Dyflinnarreglugerðarinnar. En það er það sem við gerum og er frekar algengt og mig rámar einhvern veginn í að dómsmálaráðherra hafi sagt að þetta væri bara mjög venjulegt og reglulegt og gerðist í hverri viku og það væri ekkert athugavert við það að við værum að senda fólk í stórum stíl gegn vilja sínum til Grikklands. En það er sem sagt í svokölluðum verndarmálum, þ.e. þar sem flóttafólk hefur fengið stöðu sína sem flóttamaður viðurkennda; það hefur sem sagt sótt um hæli í Grikklandi, farið í gegnum kerfið þar, fengið viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður og vegna þess hversu hræðilegar aðstæður eru fyrir flóttafólk í Grikklandi ákvað það að freista þess að fara annað til þess að eiga von um mannsæmandi líf.
Ég segi mannsæmandi líf með fullum þunga og með mikilli alvöru, virðulegi forseti, vegna þess að þær aðstæður sem við metum sem ómannúðlegar gagnvart fólki sem er að sækja um stöðu flóttafólks eru í raun töluvert betri en aðstæður flóttafólks sem hefur fengið viðurkenningu á stöðu sinni í Grikklandi þannig að fólkið sem við sendum ekki aftur til Grikklands af mannúðarástæðum hefur það betra en fólk sem við sendum til Grikklands, klárlega ekki af mannúðarástæðum.
Af þessum sökum verð ég eiginlega, virðulegi forseti, og ég á mögulega eftir að gera það aftur — vegna þess að þessi ummæli sitja í mér og mér finnst þau allsvakaleg, ummæli sem hv. þm. Jódís Skúladóttir lét falla í Silfri helgarinnar sem leið, þar sem hún sagði, með leyfi forseta:
„Sko staðan er þannig: Þú ert að flýja frá stríðshrjáðu landi og kemur til Grikklands. Þá er búið að veita þér vernd frá því ástandi sem þú ert að flýja. Færðu húsnæði, heilbrigðisþjónustu, atvinnutækifæri? Það er ekkert víst. En það er líka fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því.“
Þetta finnst mér alveg rosaleg staðhæfing, virðulegi forseti, og það eru nokkrar ástæður fyrir því. Byrjum á því að segja að Grikkir hafa samt sem áður meiri og betri aðgang að heilbrigðiskerfinu en flóttafólk, það eru skýrslur sem hafa sýnt fram á það. Grikkir hafa ferðafrelsi í allri Evrópu og geta farið á milli landa. Slíkt frelsi hefur flóttafólk ekki að neinu ráði. Það sést best á því að við erum að nauðungarflytja fólk aftur til Grikklands þegar það kemur hingað eftir að hafa fengið stöðu flóttafólks í Grikklandi. Við viljum í raun auka á neyð Grikklands með því að senda fleira fólk þangað. Það eru skilaboðin.
Samantekið, virðulegi forseti, þar sem tíminn flýgur frá mér, þá er þetta frumvarp að fara að auðvelda stjórnvöldum að senda fólk til Grikklands, að senda fólk á flótta til Grikklands þar sem það mun að öllum líkindum lenda á götunni, ekki hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu eða nein tækifæri til að framfleyta sér í lífinu eða fá atvinnu eða annað slíkt og mun í alvörunni bókstaflega búa á ruslahaugum. Um þetta eru til margar skýrslur, m.a. hefur Rauði krossinn á Íslandi gert mjög ítarlega skýrslu um þetta sem ég mun fara betur yfir síðar. Þetta er það sem ríkisstjórnin er að gera, auðvelda okkur enn frekar — við erum að gera þetta nú þegar, við erum að senda fólk á ruslahauga í Grikklandi en það á að gera stjórnvöldum enn auðveldara fyrir að gera það og helst með sem minnstri athygli fjölmiðla og almennings. Það er augljóslega það sem stjórnvöldum finnst erfiðast að kyngja, þegar vitni eru að ómennskunni.