153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:16]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég var að tala um hvernig þetta flóttamannakerfi er í raun ákveðin bráðamóttaka. Þegar fólk kemur á bráðamóttökuna á Landspítalanum er það vegið og metið hvort viðkomandi þurfi á bráðaþjónustu að halda og þá hvernig þjónustu. Nákvæmlega það sama er í raun í gangi í þessum málaflokki. Fólk sem kemur hingað í leit að aðstoð er í neyð og við þurfum að meta hvort og hvernig neyð viðkomandi er staddur í. Við skulum hafa það í huga að markmið stjórnvalda hér er, með leyfi forseta: „að auka skilvirkni og gæði innan stjórnsýslu með mannúðarsjónarmið í huga“. Það er markmiðið.

Eins og stjórnvöld hafa alltaf sagt þá vilja þau að þessi bráðamóttaka virki. Vissulega er það svo, eins og á bráðamóttökunni á Landspítalanum, að kannski koma sumir með slæmt kvef en ættu í raun ekkert að mæta á bráðamóttökuna. Það er eins og gengur og gerist og fólki er þá bara vísað frá eða vísað annað. En fólk veit það ekkert endilega þegar það er að sækja um þjónustu á bráðamóttökunni; einkennin eru kannski þannig að fólk heldur að staðan sé alvarlegri en hún er í raun og veru. En bráðamóttakan og heilbrigðiskerfið myndi lenda í rosalega miklum vanda ef það myndi vísa einhverjum frá sem á í raun og veru rétt á þjónustu. Það er atriði sem við þurfum að gæta að í þessum málaflokki. Ef við tökum á móti fólki sem leitar í neyð á bráðamóttöku og vísum frá fólki sem á rétt á hjálp — samkvæmt þeim skuldbindingum sem við höfum gengist undir, samkvæmt þeim lögum sem við höfum sett og samkvæmt markmiðum stjórnvalda — þá er það mjög alvarlegt, alveg jafn alvarlegt og þegar við sendum einhvern af bráðamóttökunni sem verður síðan alvarlega veikur, eins og dæmi eru um og hefur komið fyrir nokkrum sinnum og er mjög sárt í hvert skipti. Þetta er nákvæmlega eins kerfi.

Í frumvarpinu segir um nauðsyn lagabreytinganna, með leyfi forseta:

„Flóttamannakerfið er neyðarkerfi ætlað fólki sem óttast um líf sitt og frelsi. Nauðsynlegt er að tryggja að þeir einstaklingar sem hingað leita og þarfnast raunverulega verndar gegn ofsóknum fái vandaða og skjóta úrlausn mála sinna og komist þannig fyrr út úr umsóknarferlinu og geti aðlagast samfélaginu.“

Vandinn sem við höfum staðið frammi fyrir í nefndarvinnunni, þegar við höfum verið að skoða þetta frumvarp, er að þrátt fyrir að þessi orð séu hér á blaði, að markmiðið sé vönduð og skjót úrlausn mála, þannig að fólk komist fyrr út úr umsóknarferlinu, þá sjáum við ekki hvar lausnin er. Umsagnaraðilar sjá það ekki heldur. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skildi ekki eina greinina sem varðaði fjölskyldusameiningu fólks sem hefur komið hingað sem kvótaflóttafólk. Kvótaflóttafólk missir jafnvel stöðu sína sem kvótaflóttafólk af því að aðstæður heima fyrir lagast þannig að þau geta snúið aftur til síns heima, þá missa aðstandendur sitt dvalarleyfi þrátt fyrir að mögulega gætu þau átt sjálfstæðan rétt til verndar út af öðrum ástæðum en upprunalegur kvótaflóttamaður fékk vernd út af, t.d. vegna kynferðis eða trúarskoðana eða eitthvað svoleiðis, sem tengdi aðilinn á ekki rétt á. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sem sendi umsögn til Alþingis, skildi bókstaflega ekki þessa grein fyrr en við útskýrðum fyrir þeim hvað hún þýddi. Þá var svarið einfaldlega: Það verður þá að útskýra þetta betur þannig að fólk skilji þetta þegar það les lögin. Var gerð tilraun til að breyta því orðalagi? (Forseti hringir.) Nei. Það var mjög einfalt svar þegar ég spurði á nefndarfundi um nákvæmlega þetta atriði í lok umræðu nefndarinnar eftir jól.