útlendingar.
Frú forseti. Eins og ég lofaði í síðustu ræðu ætla ég að tala aðeins um séríslenskar reglur. Samkvæmt dómsmálaráðherra og hv. þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna þá eru einhverjar sérreglur í löggjöf á Íslandi sem virka sem segull fyrir fólk til að koma til Íslands. Þetta er ekki bein tilvitnun, en almenn útgáfa af orðum sem ansi margir hv. þingmenn og ráðherrar hafa notað um það af hverju við séum að fá svona marga hælisleitendur hingað. En þegar spurt er um hverjar þessar sérreglur séu þá eru engin svör og enginn getur bent á neinar slíkar. Það þýðir þá væntanlega að engar af þeim breytingum sem verið er að gera í frumvarpinu munu breyta neinum sérreglum.
Sumir hv. þingmenn reyna síðan að bera okkur saman við önnur Norðurlönd. Það sem við þurfum að átta okkur á er að lagabókstafurinn er ekki alveg endilega sá sami alls staðar, enda eru aðstæður ólíkar í hverju landi fyrir sig. Við erum t.d. eyja og þótt ótrúlegt megi teljast erum við jafnvel með betri flugsamgöngur en mörg önnur Norðurlönd sem getur líka haft áhrif á það hvert fólk kemur. Lagaumhverfið er líka mismunandi. Það hefur stundum verið sagt í gríni að í Svíþjóð sé allt bannað nema það sé leyft með lögum en í Danmörku sé allt leyft nema það sé bannað með lögum; ég veit ekki alveg hvar Ísland lendir á þeim skala. En þegar við spyrjum, rétt eins og þegar við spyrjum um þessar séríslensku reglur, þegar við spyrjum hvað sé öðruvísi í lögum og reglum annars staðar á Norðurlöndum, fáum við heldur engin svör nema kannski einhvern blæbrigðamun. Það er t.d. smámunur á því hvernig þessi lönd hafa tekið á móti Úkraínubúum og undir hvaða skilgreiningu það fellur. Hér á Íslandi notum við sérstaka grein til að taka á móti því fólki, og var ánægjulegt að sjá að hún var framlengd um eitt ár á ríkisstjórnarfundi í morgun — merkilegt, þessi ríkisstjórn getur gert einstaka hluti rétt. Það hvort gefið sé út dvalarleyfi í ákveðinn tíma en ekki atvinnuleyfi og atvinnuleyfi með dvalarleyfi — þetta er mismunandi. Sumt er kannski aðeins betra annars staðar á Norðurlöndunum fyrir hælisleitendur en annað er verra og svo öfugt hvað varðar Ísland. En þetta virkar ekki sem einhver sérstakur segull í hvora áttina sem er og við verðum að hætta að tala í fullyrðingum af þessu tagi sem síðan er ekki einu sinni hér í þingsal hægt að fá hraktar eða staðfestar.
Frú forseti. Þegar við biðjum ítrekað um að þingmenn úr stjórnarflokkunum séu hér með okkur í umræðunum þá er það m.a. til að fá svör við þessum spurningum: Hvað er það sem er sérstakt? Það er ekki nóg að það sé bara endurtekið í sífellu að þetta sé sérstakt — við verðum að fá svör um það hvað sé svona sérstakt. Við fáum þau ekki þegar þingmenn í stjórnarflokkunum eru múlbundnir af sínum þingflokksformönnum og ráðherrum til að segja hreinlega ekki neitt í þessu máli.
Frú forseti. Það er alltaf auðvelt að koma með setningar eins og: Við erum með sérlöggjöf, við erum með segla. En ég bið hv. þingmenn og ráðherra að koma með beint dæmi um slíkt, ekki bara setningar sem þeir telja að virki vel gagnvart kjósendum langt á hægri væng stjórnmálanna.