útlendingar.
Forseti. Ég hef nefnt það áður að þetta er flókinn málaflokkur og það er erfitt að átta sig á því svona — fyrir fólk sem er ekki að reyna að grandskoða efnisatriði málsins er erfitt að átta sig á samhenginu hérna stundum. Ég er að reyna að einbeita mér aðeins að stóru myndinni áður en maður fer út í smáatriði. En í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eiga að auka skilvirkni og gæði innan stjórnsýslu með mannúðarsjónarmið í huga, samræma löggjöf og framkvæmd þessara mála við umgjörð annarra Evrópuríkja, einkum annarra Norðurlanda, og tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns.“
Síðan er hins vegar upptalning á því hvað á að gera í frumvarpinu. Ef maður er að reyna að bera það saman við þessi markmið þá er það ágætlega áhugaverð æfing. Þar er talið upp, með leyfi forseta, „hvenær taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar, málsmeðferð umsókna frá umsækjendum sem þegar hafa hlotið alþjóðlega vernd í öðrum Evrópuríkjum,“ — svona álitaefni sem er verið að reyna að vinna á — „málsmeðferðartíma umsókna um alþjóðlega vernd,“ — annað atriði — „vinnslu persónuupplýsinga útlendinga,“ — sem hefur verið vakin athygli á að stangast mögulega á við persónuvernd o.s.frv. Það er annars vegar síðan mat á hagsmunum barna og hlutverki Barna- og fjölskyldustofu við veitingu alþjóðlegrar verndar í málefnum fylgdarlausra barna. Þetta er meðferð mála um ríkisfangsleysi, réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd — mjög opin lýsing á því hvað verið er að reyna að gera þarna — framkvæmd ákvarðana um brottvísun og frávísun.
Síðan til viðbótar eru lagðar til breytingar á lögreglulögum sem fela í sér að verkefni stoðdeildar ríkislögreglustjóra verði lögbundin. Þetta er í rauninni engin breyting þannig séð, ríkislögreglustjóri er þegar að sinna þessum verkefnum. Það er verið að fastsetja það í lög að það er lögbundin skylda ríkislögreglustjóra að sinna þessum verkefnum, þetta er svona núllbreyting í rauninni, sett í lög það sem er þegar í framkvæmd, allt í lagi. Loks síðan í samráði við félags- og vinnumarkaðsráðherra eru lagðar til breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga á þá leið að útlendingar sem hafa hlotið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið verði undanþegnir kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi. Mjög spes að það sé svona takmörkun þarna á.
Það er annað sem var vakin athygli á hérna í umræðunni þegar Útlendingastofnun og ráðuneytið komu fyrir nefndina í lok nefndavikunnar, það voru helst tvö atriði sem þau kvörtuðu um að væri mikið álag vegna. Það var annars vegar 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga sem leggur þær skyldur á stjórnvöld að taka mál einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í öðru ríki til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái vernd hér á landi ef sérstakar aðstæður mæla annars með því, síðan er líka 12 mánaða reglan. Eftir því sem mér skildist á þeirra athugasemdum er ekki verið að gera það í frumvarpinu. Þannig að það sem þau telja einna mesta álagsatriðið í núverandi lögum — það er ekki verið að gera neitt við því í þessum lögum, enda eru aðrar flækjur þar á bak við sem myndu gerast ef það væri einu sinni reynt, þá í hvora áttina eða í hvaða átt ætti að breyta því. Ég held að það væri í raun nærtækara að bregðast við þeim „vanda“ sem þeim finnst vera á annan hátt en þau vilja. Að henda fólki einfaldlega út er ekki lausn, alla vega skilar það ekki neinni niðurstöðu.
Svo eru hins vegar mörg verndarmál sem hafa fengið efnismeðferð hér á landi en ekki hefur síðan náðst að framkvæma ákvarðanir innan lögbundins frests, það er þessi 12 mánaða regla. Þetta var upprunalega sett í lögin til að hvetja stjórnvöld til að vera skilvirk í að klára málsmeðferð sína. Ef hún er fjarlægð þá í rauninni yrði það eins og áður, þá yrði fólk hérna miklu lengur án þess að fá niðurstöðu málsins. (Forseti hringir.) Meira seinna.