útlendingar.
Frú forseti. Hvar skal byrja? Ég hef í mínum fyrri ræðum gripið niður í afmörkuð atriði þessa máls. Ég held að það sé kannski ágætt að halda sig við svipaða nálgun í þessari stuttu fimm mínútna ræðu. Mig langar samt aðeins að byrja á því að ræða þá upplýsingaóreiðu sem er í gangi núna af hálfu stjórnarliða varðandi það hvert þetta mál er að stefna. Hér hafa fulltrúar Vinstri grænna t.d. haldið því fram, bæði hér í sal og að manni skilst á lokuðum súpufundi félagsfólks, að til standi að skoða betur þær umsagnir sem komu inn við málið og kannski sérstaklega umsögn Rauða krossins á Íslandi sem er vel unnin, ítarleg og vel rökstudd. Þetta nefndi t.d. hv. þm. Jódís Skúladóttir í umræðu hér í síðustu viku þegar hún sagði að hún vildi kalla málið inn í nefnd og skoða það, og mögulega gera breytingar eftir því sem Rauði krossinn hefði komið fram með. Þegar hún var síðan spurð hvað myndi akkúrat felast í þessum breytingum þá vildi hún ekki ræða það í þessum sal heldur eigum við einhvern veginn að ganga út frá því að allt gangi í himnalagi milli 2. og 3. umr. og að við verðum með eitthvert allt annað og miklu betra mál í 3. umr. Við gengum síðan á hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra í síðustu viku og spurðum hann hverju hann sæi fyrir sér að flokkurinn myndi beita sér fyrir að breyta í málinu. Þá vildi hann ekki svara því, eins og málið væri honum algerlega óviðkomandi, en mætti síðan hvað, tveimur eða þremur dögum síðar í súpu hérna uppi á Vesturgötu með félögum sínum og sagði væntanlega einhverjum þar hvað þau sæju fyrir sér að gera betur.
Við erum á þessum erfiða stað, forseti, þegar við erum að ræða í einhverri blindni hvað það er sem á að gera með þetta mál, af því að á sama tíma og þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna halda því fram að ástæða sé til að hlusta á þær umsagnir sem komnar eru inn, þrátt fyrir að hafa hunsað þær á fyrri stigum, þá lætur hæstv. dómsmálaráðherra hafa eftir sér að hann telji að frumvarpið muni fara óbreytt í gegn, varðandi öll meginmál frumvarpsins muni það fara óbreytt í gegn. Það verði kannski gerðar einhverjar orðalagsbreytingar eða eitthvað þannig milli 2. og 3. umr. Á grundvelli þessa væri svo sjálfsagt og eðlilegt að kalla málið nú þegar til nefndar, að senda það til nefndar áður en 2. umr. lýkur til að meiri hlutanum gefist tækifæri til að ræða saman um það hvort þau hafi einhverja sameiginlega afstöðu til þessa máls eða hvort þetta sé bara eitthvert skraf til að friðþægja fólk innanbúðar hjá Vinstri grænum, að tala um að það eigi að breyta málinu, en ef flokkarnir ná saman um einhverjar breytingar þá sé hægt að koma hingað til þingsins með breytingartillögur, með framhaldsnefndarálit og breytingartillögur sem væri þá hægt að ræða hér við 2. umr., frekar en upp á einhverja von og óvon að hleypa málinu inn í 3. umr. þar sem annaðhvort koma einhverjar umfangsmiklar breytingar sem gera málið skárra — þá erum við nú komin á dálítið grátt svæði gagnvart því að allar breytingar á lögum skuli ræða við þrjár umræður hér í þingsal, það er bara stjórnarskrá Íslands sem segir það — annaðhvort verða þær það umfangsmiklar að við erum á gráu svæði gagnvart stjórnarskránni eða það verður bara ekki neitt, bara eitthvert frat sem engu skiptir. Þá verða þingmenn stjórnarflokkanna búnir að leika þennan þykjustuleik hérna síðustu daga, láta eins og það eigi að koma einhverjar breytingar fram á málinu sem aldrei stendur til að gera.
Frú forseti. Ég sé að þessi inngangur var svo langur að ég komst ekki í að ræða hér einn lið í framhaldsumsögn Rauða krossins á Íslandi sem mig langaði að gera að sérstöku umtalsefni hér í þessari þriðju ræðu minni um málið. En mér fannst skipta máli að þetta kæmi að vegna þess að þessi vinnubrögð sem stjórnarliðar eru að kalla eftir eru náttúrlega fyrir neðan allar hellur og að halda því fram að það sé hægt að þegja sig í gegnum 2. umr. varðandi það hvaða breytingar fólk vill sjá einhvern tímann seinna, frekar en að koma bara með þær hingað, er ekki heiðarlegasta nálgunin á þessa umræðu sem hugsast gæti.