153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það er mjög bagalegt þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru svona tvísaga. Einn segir að það komi breytingar, hinn segir að það komi engar breytingar. Það er ekkert rosalega hjálplegt fyrir efnislega umræðu um svona mál, sem eru með heilan helling af neikvæðum umsögnum sem að öllu jöfnu ætti að mæta með breytingartillögum, að ráðherra málaflokksins segi: Nei, engar breytingar.

Í hvaða stöðu setur það þingið? Ég hefði haldið að forseti hefði eitthvað um það mál að segja. Þetta gengur ekki svona. Það á ekki að bjóða þingmönnum að ræða um svona mál þar sem sumir ráðherrar ríkisstjórnarinnar segja að það þurfi að breyta þessu en ráðherra málaflokksins segir að ekki þurfi að breyta neinu. Allar umsagnir segja: Þetta er ómögulegt. Til hvers erum við hérna ef það er alltaf svona yfirgangur í gangi?