útlendingar.
Frú forseti. Þegar þingmenn sem stóðu að því að afgreiða þetta frumvarp úr nefnd, og standa að áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar, eru farnir að tjá sig um það hér í pontu og úti í samfélaginu að gera þurfi breytingar á frumvarpinu, í ljósi umsagna sem bárust áður en málið var afgreitt úr nefnd, þá er nokkuð ljóst, frú forseti, að forsendur úttektarinnar voru rangar. Þetta mál var afgreitt úr nefnd á forsendum sem eru brostnar vegna þess að þingmenn meiri hlutans standa ekki með úttektinni. Það að ætla að senda málið til nefndar milli 2. og 3. umr. frekar en að hafa afgreitt það almennilega til 2. umr. eða að kalla það nú þegar til nefndar, að ætla að græja þetta milli 2. og 3. umr., er einhver sýndarmennska. Það er einhver þykjustuleikur, það er eitthvert rugl (Forseti hringir.) nema við eigum frekar að trúa Jóni Gunnarssyni um að það eigi engu að breyta. Þá væri nú ágætt að fá (Forseti hringir.) hv. þm. Jódísi Skúladóttur til að viðurkenna það líka.