útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):
Frú forseti. Ég held að hv. þingmenn meiri hlutans séu í húsi. Ég velti því fyrir mér hvort þau viti yfir höfuð hvaða breytingar þau ætla að gera á frumvarpinu. Mér skilst að það sé ekki í boði að gera neinar breytingar, líkt og hæstv. dómsmálaráðherra var nú nokkuð skýrorður um í dag. Ég veit að það þarf að gera lagfæringu. Ég veit að það þarf að gera tilteknar orðalagslagfæringar sem mætti jafnvel kalla stafsetningarvillur, prentvillur, í þessu frumvarpi. Ég velti fyrir mér hvort til standi að gera slíkar breytingar, laga stafsetninguna, til þess að þau geti sagt að þau hafi gert breytingar á frumvarpinu. Ég ítreka það sem hefur komið fram áður, það þarf bara einn þingmann meiri hlutans í hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að tryggja að málið fari ekki út úr nefndinni aftur eftir 2. umr., (Forseti hringir.) milli 2. og 3. umr. Munu lagfæringar á stafsetningarvillum (Forseti hringir.) duga að mati hv. þingmanna Vinstri grænna eða verður frumvarpið samþykkt óbreytt líkt og hæstv. dómsmálaráðherra hefur sagt?