153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég missti dálítið þráðinn við það sem ég ætlaði að segja þegar ég hlustaði á þessa upprifjun hv. þingmanna á því þegar hér hafði legið frammi í þrjár umræður tillaga um að taka það eina góða sem er í þessu frumvarpi hér og festa það í lög síðasta vor í frumvarpi þar sem það á frekar heima, á málasviði félags- og vinnumarkaðsráðherra. Þá voru fundin lagatæknileg rök sem halda í rauninni engu vatni til að stjórnarliðar gætu talið sér trú um að það væri eðlilegt að fella þessa tillögu, þegar raunin var sú að á þeim tíma var þetta atvinnuleyfaákvæði kannski það sem fékk hluta stjórnarliða, ég myndi halda bæði fólk í Framsókn og Vinstri grænum, til að sætta sig við tilvist málsins. Síðan er búið að bæta við nokkrum smáatriðum í viðbót, við höfum farið yfir þessar greinar varðandi endursendingar á fólki sem hlotið hefur vernd annars staðar sem eru ekki jafn skilyrðislausar í þessari útgáfu frumvarpsins og þær voru í þeirri síðustu.

En svo þegar t.d. hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fór að monta sig af því hvað Vinstri græn hefðu nú náð að hafa gríðarlega góð áhrif á þetta mál þá voru tíndir til alls konar hlutir eins og t.d. að það hafi verið tekið tillit til athugasemda Persónuverndar um að það sé ekki bara opinn tékki á það að heilbrigðisyfirvöld verði að láta alls konar vottorð um líkamlegt og andlegt heilbrigði fólks af höndum til að hjálpa til við að ákvarða um endursendingu, til að útbúa svokallað „fit to fly“-vottorð — hvernig þýðum við það á íslensku, flughæfnisvottorð? — (Gripið fram í.) vottorð sem gefið var út til að sýna að einstaklingur sé í ástandi til að þola ferðalagið. Þarna hefur orðið töluverður misbrestur á framkvæmd eins og við þekkjum af dæmum, rifjum bara upp kasólétta albanska konu sem var vísað með valdi úr landi og þurfti að þola 19 klukkutíma ferðalag í framhaldinu. Þetta taldi hæstv. félagsmálaráðherra sínu liði til tekna, að það hefði verið tekið mark á því að persónuvernd sagði: Hey, þetta gengur ekki, okkar lagarammi og okkar persónuverndarlög leyfa ekki að það sé bara opinn tékki á viðkvæmar persónuupplýsingar. Jafnvel þó að stjórnvöldum finnist að aðrar reglur megi gilda um umsækjendur um alþjóðlega vernd en annað fólk í þessu samfélaginu sagði Persónuvernd bara nei og við þessu var orðið vegna þess að það er dálítið erfitt að fara í stríð við Persónuvernd þegar kemur að persónuverndarlögum. Ég held að meira að segja mesta harðlínufólk í Sjálfstæðisflokknum átti sig á því.

Annað sem ég tók eftir að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra taldi sínum flokki til tekna var að á milli útgáfna hefði verið tekin út heimild til þess að beita valdi til að framkvæma læknisskoðun á fólki til að búa það undir brottvísun. Þetta var ákvæði sem bættist inn fyrir ári vegna þess að hópur fólks neitaði að undirgangast PCR-próf til að hægt væri að brottvísa því með valdi til Grikklands, eins og er réttur þess, eins og dómstólar hafa sýnt. Það hafa fallið dómar um að það hafi verið réttur þessa fólks að neita þessu. Þetta átti að setja inn í lög, að það væri hægt að þvinga PCR-prjóninn upp í nefið á fólki til að síðan væri hægt að þvinga það úr landi. Þetta telur fólkið sem vill halda því fram að það sé í liði með mannúðinni sér til tekna á meðan þetta var ákvæði sem var harðlega gagnrýnt af Læknafélaginu. Ég held að það sé erfitt að setja inn einhverja framkvæmd á heilbrigðissviðinu í stríði við heilbrigðisstéttir. (Forseti hringir.) Svo er líka þörfin bara horfin. Þegar mesta Covid-bylgjan er gengin yfir þarf ekki lengur PCR-próf til að senda fólk úr landi, eins og dæmin eru farin að sanna. (Forseti hringir.) Þannig að sú meinta barátta sem hefur verið unnin á stjórnarheimilinu í þessu máli er ekki svo stór.