útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég var hér rétt áðan að gera grein fyrir þeim breytingum sem lagðar eru til í 3. gr. frumvarpsins en breytingartillagan gengur út á það að heimila formanni kærunefndar útlendingamála að úrskurða einum í málum sem eftir breytingarnar verða kölluð „endurteknar umsóknir“. Það er auðvitað ekkert verið að tala um endurteknar umsóknir þar, það er verið að tala um „beiðni um endurupptöku“ sem er allt annar hlutur.
Um þessa 3. gr. frumvarpsins segir í greinargerð, með leyfi forseta:
„Í greininni er formanni kærunefndar útlendingamála veitt heimild til að úrskurða einum í málum skv. 35. gr. a um endurteknar umsóknir, sbr. 7. gr. frumvarpsins. Með tillögunni er leitast við að einfalda stjórnsýslu og auka skilvirkni nefndarinnar en endurupptökubeiðnum vegna alþjóðlegrar verndar hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Þannig voru þær einungis 28 árið 2016 þegar gildandi lög voru samþykkt en 159 árið 2021. Á heimildin einkum við í málum þar sem skýr fordæmi og framkvæmd eru til staðar. Telji formaður að fyrir hendi sé efnislegur vafi um þau málsatvik og lagaatriði sem verulega þýðingu hafa fyrir niðurstöðu málsins skal vísa beiðninni til nefndarinnar til ákvörðunar í samræmi við 1. mgr. 8. gr. laganna.“
Árið 2016, þegar lögin voru samþykkt, eins og hér kemur fram, voru beiðnir um endurupptöku mála 28. Árið 2021 hafði nokkuð gerst, sem ég held raunar að hafi ekki farið fram hjá neinum í heiminum, sem var heimsfaraldur Covid-19. Þessi heimsfaraldur gerði það að verkum að málsmeðferð í þessum málum lengdist mjög, bæði vegna áhrifa sem heimsfaraldurinn hafði á afköst stjórnvalda og Útlendingastofnunar, sem og annarra einstaklinga um allan heim sem veiktust til skiptis af veirunni, en einnig vegna vandkvæða við að flytja fólk úr landi þar sem mikil höft voru í flugi, á heimildum fólks til að ferðast á milli landa. Þetta gerði það að verkum að árið 2021, þegar beiðnum um endurupptöku fjölgaði svona svakalega, alveg upp í 160 á heilu ári, þá voru það að meginstefnu til mál þar sem málsmeðferð íslenskra stjórnvalda hafði farið fram yfir 12 mánaða frest samkvæmt lögunum.
Það er því augljóst að mikil fjölgun beiðna um endurupptöku var tímabundin. Það er augljóst að hana mátti rekja til aðstæðna sem ekki er með nokkrum hætti hægt að telja á ábyrgð flóttafólks og væntanlega mun þessum beiðnum um endurupptöku, vegna of langrar málsmeðferðar stjórnvalda, snarfækka, fyrir utan það að stjórnvöldum er í lófa lagið að fækka þeim með því einfaldlega að hraða málsmeðferð og ekkert bendir til annars en að það muni takast héðan af. Þetta ákvæði, um að svipta fólk réttinum til þess að fá endurupptöku, t.d. vegna tímafresta, sem er klárlega einn megintilgangur frumvarpsins, er því ekki bara gríðarleg aðför að mannréttindum fólks á flótta heldur fullkomlega óþarft. Þetta er fullkomlega óþörf breyting. Hún mun ekki auka skilvirkni að neinu leyti í stjórnsýslu okkar. Ef við erum að tala um að við förum aftur í þann fjölda endurupptökubeiðna sem var árið 2016, þegar þær voru 28, ef við erum að tala um að við séum að fara aftur niður í einhvern svipaðan fjölda — segjum að þær hafi tvöfaldast, séu 60 — þá spyr ég hvort 60 beiðnir um endurupptöku, sem eru á skýrum forsendum vegna þess að tímafresturinn er liðinn, séu að fara að drekkja íslenskri stjórnsýslu. Nei.
Ef við gefum okkur að við séum að tala um 60 beiðnir, er það þá þess virði að svipta fólk gríðarlega mikilvægum réttindum — réttinum til þess að fá ranga niðurstöðu leiðrétta eða nýja niðurstöðu á grundvelli breyttra forsendna, sem er varið í mannréttindasáttmála Evrópu — til að spara kærunefnd útlendingamála að afgreiða einhver 50–60 mál sem eru tiltölulega auðafgreidd? Er það raunverulega svo? Nei, þetta ákvæði er skýrt dæmi um það hversu óúthugsað þetta frumvarp er. Það er óúthugsað, það er byggt á röngum forsendum (Forseti hringir.) og það er alvarleg aðför gegn grundvallarréttindum fólks á flótta.