útlendingar.
Forseti. Dálítið áhugavert, í aðdraganda málsins og meðan það hefur verið í umfjöllun hef ég skrifað nokkrar greinar í fjölmiðla um þetta frumvarp til að reyna að útskýra svona ákveðin atriði þess. Ég kem hingað líka og ræði málið á þingi. Eins og hefur verið talað um hafa ýmsir ráðherrar og þingmenn ekki gert það sama, hafa bara talað um þetta í fjölmiðlum og hérna er m.a. ein grein úr Fréttablaðinu frá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur þar sem segir, með leyfi forseta:
„Við getum verið sammála eða ósammála um hvort breytingarnar sem eru lagðar til á útlendingalöggjöfinni séu til bóta en þær eru a.m.k. tilraun til að færa verndarkerfið okkar nær því sem gerist í löndunum sem við berum okkur gjarnan saman við, til þess að horfa m.a. til norrænnar reynslu og löggjafar, læra af því sem þar hefur reynst vel og illa eins og við gerum svo gjarnan. Að mínu mati hafa þeir andstæðingar frumvarpsins sem fjallað hafa málefnalega um það alls ekki fært sannfærandi rök fyrir því að Ísland skuli ein þjóða skera sig úr hinni norrænu fjölskyldu í þessum málum.“
Mér finnst þetta dálítið áhugaverð fullyrðing því að norrænu þjóðirnar gera þetta alls ekki allar eins. Þær gera þetta á tiltölulega mismunandi hátt. Á meðan, merkilegt nokk, virðist framkvæmdin samt vera mjög svipuð í öllum þessum löndum, líka á Íslandi, miðað við umsagnirnar sem hafa komið eftir að allsherjar- og menntamálanefnd fór í heimsókn til Noregs og Danmerkur til þess að skoða einmitt útlendingamálin í upphafi þings. Þannig að þrátt fyrir að löggjöfin sé svolítið mismunandi á milli þessara landa er framkvæmdin að miklu leyti eins sem er mjög áhugavert. Við höfum einmitt gagnrýnt það hér að stjórnvöld séu ekkert að fara eftir lögunum heldur hafi bara ýmsa aðra framkvæmd en þar er kveðið á um sem hefur valdið því að stofnanirnar hafa verið dæmdar fyrir að fara gegn lögum, t.d. í því að vísa fólki út á götu.
En spurningin sem ég hef hérna er: Ef stjórnarþingmenn eru duglegir við að skrifa í blöðin, af hverju koma þeir þá ekki líka hingað, eins og a.m.k. við þingmenn Pírata erum að gera, og útskýra kannski fyrir okkur hvernig þetta frumvarp færir okkur nær einhverju Norðurlandanna í löggjöf og þá hvaða Norðurlöndum verið er að færa útlendingalöggjöfina nær í samræmi? Ég hef ekki hugmynd um það, það er ekkert útskýrt frekar. Það er bara sagt: Við ætlum að gera meira svipað eins og hinar Norðurlandaþjóðirnar og einhvern veginn látið eins og það séu einhver rök í málinu. Er það af því að hinar Norðurlandaþjóðirnar séu með betri útlendingastefnu hvað varðar einmitt mannúð og skilvirkara umsóknarferli? Er það málið? Ef svo er, hvernig ná þau því og hvað nákvæmlega er það í frumvarpinu sem skilar okkur þangað? Ef þau eru með verri löggjöf sem skilar ekki eins mikilli mannúð eins og yfirlýst markmið þessa frumvarps er þá að sjálfsögðu ættum við ekki að vilja fara og verða eins og þau. Danmörk er t.d. ansi hörð hvað það varðar og vel komið fram að Danir eru með einna hörðustu stefnuna. Erum við að fara að bera okkur saman við þau? Erum við að fara í þá átt? Er það meiri mannúð?
Það er gott og blessað þegar stjórnarþingmenn tjá skoðanir sínar og fullyrða ýmislegt um skoðanir andstæðinga þessa frumvarps en að þau komi ekki hingað í ræðustól og svari þessum einföldu spurningum: Bíddu, fyrirgefðu, hvað áttu nákvæmlega við? Hvaða Norðurlönd ertu að tala um? Ertu að tala um þau öll saman? Þau eru með mismunandi löggjöf. Ertu að tala um eitthvert stakt land, Noreg, Danmörku, Finnland, Svíþjóð, eitthvert eitt af þeim sem við erum að fara að bera okkur saman við? Af hverju er það svona vel gert hjá þeim að þínu mati og hvaða breyting í þessu frumvarpi er að færa okkur nær hvaða löggjöf á hinum Norðurlöndunum sem við berum okkur saman við og af hverju ætti það að skila okkur sömu niðurstöðu? Bara mjög einfaldlega komið hingað og svarið þessum einföldu spurningum. Það ætti ekki að vera flókið fyrst það er verið að krota um þetta í fjölmiðla fram og til baka. En nei, hérna erum bara við Píratar að benda á það hversu hryllilega slæmt þetta frumvarp er og þingmenn ríkisstjórnarflokkanna segja: Já, það þarf breytingar. (Forseti hringir.) Þannig að, eins og ég segi, við höfum bara rétt fyrir okkur með það, en þau vilja bara ekki sýna okkur hvaða breytingar það eru, sem er mjög skrýtið, (Forseti hringir.) eða það er í raun mjög eðlilegt miðað við hvernig málsmeðferðin er hérna, alls konar bolabrögðum er beitt.