153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Það eru ýmis hugtök í þessu frumvarpi sem rétt er að staldra við. Mig langar að ræða hér hugtakið tafir á ábyrgð umsækjenda, en fyrst út frá framhaldsumsögn Rauða krossins á Íslandi sem gagnrýnir fulltrúa meiri hlutans í allsherjar- og menntamálanefnd fyrir að líta fram hjá varnaðarorðum fjölmargra umsagnaraðila. Þar er bent á hversu óeðlilegt sé að takmarka rétt barna til efnismeðferðar ef foreldrar þeirra eða umsjónarmenn teljast vera valdir að töfum á málsmeðferðinni. Ég fletti upp í umsögn dómsmálaráðuneytisins, eða skjali dómsmálaráðuneytisins þar sem það fer yfir umsagnir umsagnaraðila og þar er þessi ábending Rauða krossins frá því snemma í haust, sem hefur náttúrlega verið bent á áður, afgreidd svohljóðandi, varðandi það ef ekki næst að afgreiða mál innan ásættanlegs tíma, með leyfi forseta:

„Náist það ekki vegna athafna eða athafnaleysis sem rekja má til umsækjanda eða annarra honum tengdra, svo sem maka, foreldra, eða talsmanns, er eðlilegt að hann njóti ekki góðs af því.“

Segjum að ég sé algjör slúbbert, ég sé bara alltaf með allt niður um mig, skili öllu of seint, gleymi hlutum, jafnvel að ég sé að reyna að tefja hluti pínu viljandi, og ég sé á flótta í öðru landi með börnin mín með mér. Ef ég tef mál mitt þannig að það sé ekki hægt að flokka það sem eðlilega töf á málsmeðferð þá eiga börnin mín ekki að njóta góðs af því, segir ráðuneytið. Þarna þykir mér hlutum snúið dálítið mikið á haus vegna þess að það sem ráðuneytið er að leggja til er að börnum skuli hegnt fyrir það að ég sé ekki að standa mig. Þannig eiga syndir foreldranna að hafa áhrif á mál barna þeirra.

Þetta, frú forseti, þykir mér vera í hróplegri mótsögn við þann málflutning sem stjórnarliðar, kannski aðallega úr röðum Sjálfstæðisflokksins, hafa haldið fram árum saman um að öll mál séu tekin til sjálfstæðrar, efnislegrar meðferðar og að mál barna séu skoðuð sjálfstætt út frá hagsmunum barnanna. Hérna segir ráðuneytið bara: Nei, við viljum geta vísað burt barni ef við getum kennt foreldrinu um það. Þarna fær barnið ekki sjálfstæða áheyrn stjórnvalda. Ríkisstjórn sem á tyllidögum montar sig af því að vera með hagsmuni barna hátt skrifaða myndi ekki leggja svona til. Ef ríkisstjórnin vill endilega að hægt sé að flokka alls konar athafnir eða athafnaleysi sem tafir sem séu bara á ábyrgð umsækjenda, þá þarf fólk bara gjöra svo vel að skilja mál foreldra og barna í sundur, kannski fá börnunum einhvern almennilegan réttargæslumann til að fylgja málinu í gegnum kerfið og skoða mál barnsins sjálfstætt og algerlega óháð foreldrinu. Mér þykir þetta sérstaklega áhugavert, forseti, í ljósi þess að fólkið sem stendur að nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar er sami hópur og segist í orði kveðnu vera hér málsvari þess að auka réttindi barna í íslensku lagaumhverfi en gerir hér þvert á móti. Hér er verið að draga úr réttindum barna á flótta og Rauði krossinn er búinn að benda þeim á það nokkrum sinnum og aldrei er hlustað.