útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Við erum hérna að ræða mál málanna, útlendingafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Líkt og hefur verið bent á í mörgum ræðum hér á undan bárust margar umsagnir um þetta mál til allsherjar- og menntamálanefndar sem var að afgreiða þetta mál. Nánast allar, allar nema tvær, voru neikvæðar og gagnrýndu frumvarpið. Margar þeirra lögðu til stundum mjög skýrar og einfaldar, þægilegar, þægilega framsettar breytingartillögur á frumvarpinu en meiri hluti hv. allsherjar- og menntamálanefndar sá enga ástæðu til þessa bregðast við þeim tillögum.
Hins vegar gerði meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar ákveðnar breytingartillögur við frumvarpið. Þar á meðal leggja þau til að sett verði inn bráðabirgðaákvæði sem lýtur að því að bjarga fyrir horn ákveðnum hópi einstaklinga, ef það tekst að samþykkja frumvarpið áður en þau verða flutt úr landi vegna þess að það er ekkert verið að stöðva flutninginn á meðan, það fengum við staðfest í allsherjar- og menntamálanefnd. Það bara heldur allt áfram þar sem frá horfði og þar er virkur úrskurður og virk flutningsbeiðni frá Útlendingastofnun til stoðdeildar ríkislögreglustjóra um að flytja fólkið úr landi en meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar ákvað að taka þennan séns og sjá hvort það væri ekki hægt að drífa þetta frumvarp í gegnum þingið svo það væri nú hægt að bjarga þessum örfáu einstaklingum sem stendur til að bjarga þar með reyndar mjög ströngum skilyrðum og skrýtnum og undarlegum og illa útfærðum og allt það, eins og á svo sem við meira og minna allt þetta frumvarp.
Ég gerði í ræðu hér á undan grein fyrir 3. gr. frumvarpsins og tilgangi þeirrar greinar, tilgangi þeirrar breytingar og þeirri gagnrýni sem ég hef á það. 3. gr. tengist beint 7. gr. frumvarpsins og þeim breytingum sem eru lagðar til þar og reyndar víðar, 1. gr. líka, þannig ég ætla aðeins að geyma umfjöllun um 3. gr. og taka hana með umfjöllun minni um 7. gr., sem að mínu mati er ein alvarlegasta tillagan í þessu frumvarpi sem væri mjög auðvelt að laga en það er ekki áhugi fyrir því í meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Ég ætla því að víkja að 4. gr. laganna sem hefur sætt talsverðri gagnrýni, ekki síst vegna þess að hún er óskýr. Henni hefur verið breytt mikið í þeim frumvörpum sem hafa verið lögð fram. Þetta var upphaflega ákvæði sem var sett inn til að „leysa“ það vandamál að heilbrigðisyfirvöldum var talið óheimilt að afhenda Útlendingastofnun eða lögreglu bólusetningarvottorð einstaklinga, Covid-19 bólusetningarvottorð, til að það væri nú hægt að flytja þá úr landi. Þetta gerðu heilbrigðisyfirvöld í góðri trú um að lögregla og Útlendingastofnun væru ekki að óska eftir gögnum sem þau hefðu ekki heimild til að fá en á daginn kom að þau höfðu ekki heimild til að afhenda þetta. Upphaflega stóð því til að skella þeirri heimild inn í lögin; við skulum bara gera það. En við það voru gerðar alvarlegar athugasemdir af hálfu Læknafélagsins, af hálfu Persónuverndar og annarra aðila. Ákvæðið hefur breyst talsvert síðan það var lagt fyrst fram sem breytingartillaga og hljóðar nú svo, með leyfi forseta:
„Á eftir 2. mgr. 17. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Ef nauðsyn ber til að tryggja framkvæmd ákvörðunar um brottvísun eða frávísun útlendings skv. 104. gr. er lögreglu heimilt að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði hans til að geta ferðast.“
Í greinargerð frumvarpshöfunda við þetta ákvæði segir, með leyfi forseta: — Nei, nú er ég fallin á tíma sem fyrr. Ég tek upp þráðinn í næstu ræðu og óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.