153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég vék aðeins að því fyrr í dag að stjórnvöld safna ekki upplýsingum um það hversu margir fatlaðir einstaklingar sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Ótrúleg staðreynd sem kom fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá mér hér fyrr í vetur. Útlendingastofnun og kærunefnd bara taka ekki saman þessar upplýsingar þrátt fyrir að það sé nú algjört lágmark ef við ætlum að uppfylla samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að við kortleggjum hagtölur, bara statistík um það hversu mörg eru fötluð á hinum ólíku sviðum samfélagsins.

Mig langar að nefna þetta fullkomna sinnuleysi kerfisins gagnvart fötluðum umsækjendum um alþjóðlega vernd í samhengi við mál eins fatlaðs manns sem var vísað úr landi í lögreglufylgd í nóvember. Rifjum aðeins upp hvernig staðið var að brottvísun Hussein Husseins sem átti að flytja úr landi ásamt á fimmta tug annarra umsækjenda um alþjóðlega vernd en þegar upp var staðið þá fann stoðdeildin ekki nema rétt um helming. Þegar þessar fréttir bárust voru fyrstu viðbrögð ráðamanna, fyrstu viðbrögð hæstv. ráðherra ríkisstjórnarinnar, að súpa hveljur yfir því, eiginlega bara hneykslast á því að það hefði ekki verið almennilegur bíll til að koma þessum fatlaða manni úr landi, að ekki hefði verið notaður almennilegur bíll sem getur tekið hjólastól heldur voru aðferðirnar þannig að lögreglan bar Hussein í höndum sér og setti þannig inn í bíl.

Þetta vakti ekki mikla kátínu hjá fólki sem langaði kannski að sjá aðeins mannúðlegri viðbrögð hjá ráðafólki, eins og t.d. að fólk viðurkenndi þá staðreynd að fatlaður einstaklingur í verndarkerfinu í Grikklandi er í alveg ofboðslega slæmri stöðu. Það er ekki hægt að stóla á heilbrigðisþjónustu eða félagsþjónustu eða viðeigandi húsnæði eða neitt annað ef fólk er í gríska verndarkerfinu. Þess vegna hefðu öll efnisrök átti að mæla með því að Hussein fengi vernd hér. Stjórnvöld vildu hins vegar fella hann undir þann flokk fólks sem hefði tafið mál sitt sjálft með því að neita að undirgangast PCR–próf til að láta brottvísa sér á meðan heimsfaraldur Covid stóð sem hæst. Á sama tíma og flugvélinni var flogið til Grikklands var einmitt til umfjöllunar hjá dómstólum mál, m.a. Husseins, til að kveða úr um hvort stjórnvöldum væri nokkuð stætt á því að flytja fólk úr landi á þessum forsendum. Sá dómur féll nú nýlega og kemur þá í ljós, viti menn, að stjórnvöld áttu ekkert að brottvísa Hussein frekar en hinum sem neituðu að undirgangast PCR-próf. Hvað gera ráðamennirnir sem þegar fréttirnar birtust fyrst sýndu ekki meiri mannúð en svo að þau furðuðu sig á því að hjólastólabíll hefði ekki verið notaður til að henda fólki úr landi? Þau áfrýja til Landsréttar til að sjá hvort ekki megi örugglega, alveg örugglega, henda honum úr landi. Síðan var sett eitthvert Íslandsmet í dag þegar ríkislögreglustjóri skilaði svari til umboðsmanns Alþingis varðandi þessa framkvæmd og kenndi mótmælendum um það hvernig hefði verið staðið að brottvísuninni. (Forseti hringir.) Og sagði síðan að þetta væri allt í lagi af því að embættið hefði augastað á bifreið sem væri þannig útbúin að hægt væri að rúlla hjólastól (Forseti hringir.) inn í hana og þetta yrði allt betra næst. (Forseti hringir.) Erum við alvöru komin á þennan stað, frú forseti?