útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil gera hér að umtalsefni mínu ákvæðið í frumvarpinu sem er kallað ákvæðið um fyrsta griðland. Ég vil í raun bara fjalla um mjög ítarlega og góða umsögn Rauða krossins á Íslandi við þetta frumvarp og vitna í kaflann um þessa grein á bls. 9 þar sem stendur, með leyfi forseta:
„Með 7. gr. frumvarpsins eru gerðar umtalsverðar breytingar á efni og innihaldi 36. gr. útl. Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að við 1. mgr. bætist nýr stafliður, d-liður, sem felur í sér sjálfstæðan grundvöll til að synja um efnislega meðferð umsókna um alþjóðlega vernd.“ — sem sagt á þessu frumstigi áður en fólk fær einu sinni athugun á því hvort það eigi rétt á að fá alþjóðlega vernd á Íslandi — „Ákvæðið er svohljóðandi:
Umsækjandi hefur slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt er að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Af frumvarpinu og eldri frumvörpum má vera ljóst að d-lið 36. gr. útl.“ — þ.e. þetta nýja ákvæði — „er ætlað að vera útfærsla á hugtakinu um fyrsta griðland. Í athugasemdum við 7. gr. frumvarpsins segir að núverandi ákvæði a-liðar 1. mgr. 36. gr. útl. um fyrsta griðland hafi ekki verið beitt að fullu þar sem það er talið óskýrt.“
Þetta er það sem frumvarpshöfundar telja fram sem ástæðuna fyrir því að setja þetta ákvæði inn í lögin, að það sé óskýrt og þess vegna hafi ekki verið hægt að beita því nógu vel.
Áfram held ég í umsögn Rauða krossins:
„Rauði krossinn telur að í mörgum tilvikum verði ekki unnt að framkvæma ákvarðanir sem teknar verða á grundvelli d-liðarins enda gert ráð fyrir að hægt verði að synja umsækjanda um efnismeðferð ef hann hefur náin fjölskyldutengsl við ríki sem hann hefur þó aldrei komið til, s.s. þegar maki hans er ríkisborgari þess ríkis og umsækjandi getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi. Ekki er fjallað um það í frumvarpinu hvernig íslensk stjórnvöld sjá fyrir sér framkvæmd endursendinga til ríkja á þessum grundvelli fyrir utan tilvísun í ákvæði 38. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/32/ESB, enda engir viðtökusamningar í gildi nema við aðildarríki Dyflinnarreglugerðarinnar.“
Hér staldra ég við, virðulegi forseti, vegna þess að þetta hef ég fjallað um áður og við sem höfum verið að reyna að útskýra þær myrku hliðar sem finna má á þessu frumvarpi. Hér er verið að setja ákvæði í lög sem er ekki hægt að framkvæma. Það er verið að búa til ástæðu eða heimild fyrir Útlendingastofnun til að neita að taka fyrir umsókn um alþjóðlega vernd, þ.e. umsókn um hvort viðkomandi fái stöðu flóttamanns eða ekki. Ef þessi ákvörðun er tekin af þessari ástæðu, það er búið að ákveða að gefa þér ekki efnismeðferð á þeim grundvelli að Útlendingastofnun er búin að ákveða að þú eigir að fara eitthvert annað, þá er ekki hægt að senda þig þangað vegna þess að ef þetta er eitthvert ríki utan Schengen þá er enginn samningur eða samkomulag í gildi við það ríki til að taka á móti þér. Þannig að það er ekki hægt að framkvæma brottvísunina. Og hvað gerist þá? Þá er ákvæðið virkjað um að 30 dögum eftir að það er búið að ákveða að þú megir ekki fá efnismeðferð og að þeim 30 dögum liðnum er það enn þá þannig að það er ekki hægt að vísa þér úr landi þá er bara hægt að vísa þér á götuna, gjörðu svo vel, og svipta þig allri framfærslu. Auðvitað hefur þú engan rétt á að vinna vegna þess að þú hefur ekki atvinnuleyfi eða nein réttindi á Íslandi og þú færð ekki einu sinni einhvern smá mat til að skrimta og mátt alls ekki vinna fyrir þér.
Þetta er að mínu mati eitt af skaðlegustu ákvæðunum í þessu frumvarpi og er ég alls ekki búin að klára umfjöllun um þetta atriði (Forseti hringir.) og þá sérstaklega þessa góðu umsögn frá Rauða krossinum og því óska ég eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.