153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það er oft eitthvað flókið við hin og þessi mál hér í þinginu og þá er stundum verið að spyrja okkur hvað þurfi að taka út til að allt annað geti farið í gegn, hvað sé verst við það. En þetta mál er einhvern veginn allt öðruvísi. Það er bara svo margt að. Það eru vissulega einhver atriði sem eru verst við það en þá tekur bara við næsta atriði sem er enn það slæmt að það gerir málið ekki tækt til afgreiðslu. Stundum eru greinarnar einfaldlega óframkvæmanlegar. Þær stangast á við ýmsar aðrar skuldbindingar sem við höfum og það hvernig kerfið virkar yfirleitt. Það er mjög áhugavert að verið sé að reyna að leggja eitthvað slíkt til og frá mínu sjónarhorni lítur út fyrir að ákveðin sýndarmennska sé í gangi.

Hér í upphafi þings skrifuðu nokkrir þingmenn, sérstaklega Sjálfstæðisflokksins, greinar um að núna væri útlendingafrumvarpið að fara í gegn. Núna þyrfti sko breytingar. Það væri svo mikið stjórnleysi, hjá þeim náttúrlega, að það þyrfti tvímælalaust að gera breytingar. Ef það var ekki stjórnleysi áður, lögin hafa ekki breyst neitt sérstaklega mikið, aðstæður ekki neitt rosalega mikið heldur; Covid kom þarna inn og truflaði ýmislegt — en stjórnleysið er einhvern veginn algerlega í þeirra höndum, í höndum stjórnvalda. Þau segjast núna vera að koma með lagabreytingartillögur til að laga þetta stjórnleysi en lagabreytingarnar eru þannig að við segjum: Bíddu, fyrirgefið, það er ekki hægt að gera þetta. Ef þið ætlið að reyna þetta þá verður viðkomandi manneskja einfaldlega heimilislaus, bara á götunni. Þá segja þau bara: Já, það er það sem við ætlum að gera. Það er markmiðið með þessu svo að þau fari bara sjálf. Þá spörum við fullt af peningum við að þurfa ekki að vísa þeim nauðugum úr landi. En þetta er fólk sem er í þeirri stöðu að geta ekki séð fyrir sér af því að það fær t.d. ekki atvinnuleyfi.

Alltaf þegar við reynum að nálgast kjarna málsins á einhvern hátt þá er því bara snúið við og sagt í einhverri forherðingu: Jú víst, við ætlum að vera með stálhnefa, eða hvernig sem það er orðað hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem ætla að vera svo rosalega harðir í málaflokknum. Til hvers? Hvert er markmiðið með því, sérstaklega þegar yfirlýst markmið frá ráðherra dómsmála er að mannúðarsjónarmið gildi? Mannúðarsjónarmið með sterkum stálhnefa.

Það er svo rosalega mikið af mótsögnum í þessu öllu að maður nær ekki utan um það hvað stjórnvöld eru að reyna að gera. Þegar maður reynir að rýna í efnisatriðin þá ganga þau ekki heldur upp. Svo erum við með þetta ríkisstjórnarsamstarf þar sem einn segir: Breytingartillögur. Hinn segir: Nei, engar breytingartillögur, þetta fer í gegn óbreytt. Svo höfum við endalaust mikið af umsögnum sem eru bara: Þetta er ómögulegt, þetta gengur ekki upp. Það er ekki einu sinni reynt að mæta því með einhverjum málefnalegum svörum. Það má ekki einu sinni fá óháð lögfræðiálit. Við stöndum uppi og klórum okkur í hausnum: Hvað þá? Á þingið í alvörunni að fá svona mál til að segja já eða nei við? Og að öllum líkindum af því að stjórnarmeirihlutinn er búinn að sætta sig við orðinn hlut og segja: Þetta verður samþykkt, þetta fer í gegn. Við erum búin að redda þessu. Redda hverju? Samræmingu við hin Norðurlöndin. Hvernig? Betri skilvirkni og mannúð fyrir umsækjendur. Hvaða umsækjendur? Þessa sem munu fá vernd eða þessa sem uppfylla ekki skilyrðin? Að hvaða hópi snýr þetta, þessar breytingar sem er svo mikilvægt að nái í gegn?

Umsagnaraðilar segja okkur og sumir stjórnarþingmenn segja okkur að það þurfi breytingar. En það er ekkert í þessu frumvarpi sem gerir neitt af því sem stjórnvöld segjast ætla að gera. Eina niðurstaðan er þá sú að þetta sé bara einhver svona sýndarleikur til að líta út fyrir að vera hörð við útlendinga af því það skorar víst í einhverri pólitík einhvers staðar og það er bara frekar sorglegt.