útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil halda áfram þar sem frá var horfið í umfjöllun minni um þetta svokallaða fyrsta griðland, sem ég fjallaði um í fyrri ræðu minni, sem er það að reyna á að koma inn ákvæði í útlendingalögin sem gefur Útlendingastofnun heimild til að ákveða að umsækjandi um alþjóðlega vernd, að þeim finnist það eðlilegt og sanngjarnt, fari eitthvert annað frekar en að vera á Íslandi og að hægt sé að synja umsækjenda um efnismeðferð ef hann hefur náin fjölskyldutengsl við ríki sem hann hefur þó aldrei komið til.
Ég var búin að tala aðeins um þetta fáránlega atriði í þessu frumvarpi sem fjallað er um á bls. 11 í umsögn Rauða krossins. Þar kemur fram að ekkert sé fjallað um hvernig íslensk stjórnvöld sjá fyrir sér að framkvæma endursendingar til ríkja á þessum grundvelli, annarra ríkja en Schengen-ríkja, sem er markmiðið með þessari breytingu. Ég verð að halda áfram að lesa úr þessari góðu umsögn Rauða krossins vegna þess að þau lýsa þessu svo vel og ég vil gera þau orð að mínum. Þar segir, með leyfi forseta:
„Þar til á síðasta ári hefur beiting undanþága frá meginreglu 1. mgr. 36. gr. útlendingalaga um að taka skuli umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar takmarkast við mál þar sem móttökuríkið er eitt af Schengen-ríkjunum eða aðildarríkjum að Dyflinnarsamstarfinu.“
Við skulum bara halda því til haga að almenna reglan er sú, þegar fólk sækir um alþjóðlega vernd, að fólk eigi að fá efnismeðferð, að það eigi að fá áheyrn, að það eigi að fá að sýna stjórnvöldum fram á að það eigi rétt á vernd. Það er almenna reglan, af því að ég var að koma inn á þau ósannindi sem hafa alltaf verið borin hér á borð, endalaust, alltaf, aftur og aftur, að okkur beri einhver skylda til að henda fólki út í hafsauga. Það er ekki þannig. Meginreglan er að við eigum að veita fólki áheyrn. Við eigum að leyfa fólki að fá efnismeðferð. Þá er ég búin að koma því frá og held áfram, með leyfi forseta:
„Mál sem heyra undir Dyflinnarreglugerðina sem Schengen-ríkin eru skuldbundin af hafa fallið undir c-lið og mál þar sem einstaklingum hefur verið veitt alþjóðleg vernd í einu af Schengen-ríkjunum samkvæmt undanþáguákvæði 1. málsl. a-liðar 1. mgr. 36. gr. útlendingalaga. Í kjölfar nokkurs fjölda umsókna einstaklinga með ríkisfang í Venesúela sem einnig hafa mismikil tengsl við önnur ríki, einkum önnur ríki Suður-Ameríku, hóf Útlendingastofnun að synja umsækjendum í slíkum málum um efnismeðferð með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. útlendingalaga.“
Það er þetta ákvæði sem ég vísaði í áðan að frumvarpshöfundum hafi fundist of óskýrt og það hafi ekki verið hægt að beita því með nógu ríkulegum hætti hingað til.
Ég held áfram að lesa upp úr umsögn Rauða krossins:
„Í greinargerðum talsmanna Rauða krossins til Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála hefur þessari framkvæmd verið harðlega mótmælt. Að teknu tilliti til þess hve óskýrt og umdeilanlegt núverandi ákvæði a-liðar 1. mgr. 36. gr. útlendingalaga er, og þess að hingað til hefur ekki tíðkast að beita undanþáguákvæðum ef ekki er um Schengen-ríki að ræða, hefur Rauða krossinum brugðið hve viljug stjórnvöld hafa verið til að beita ákvæðinu í fyrrnefndum tilvikum. Rauði krossinn telur ljóst af lögskýringargögnum að undanþáguákvæðin voru lögtekin með Schengen-samstarfið sérstaklega í huga.“ — Og þetta kemur fram í athugasemdum við frumvarpið.
Svo segir aðeins neðar á síðunni, með leyfi forseta:
„Það er mat Rauða krossins að ef koma á til skoðunar að lögfesta ákvæði um að synja umsækjendum um efnislega meðferð á grundvelli hugtaksins um fyrsta griðland þegar móttökuríkið er ekki eitt af Schengen-ríkjunum verði að gera auknar kröfur til mats á aðstæðum í mögulegu móttökuríki og vernd flóttamanna. Það er mat Rauða krossins að ákvæði frumvarpsins sé óskýrt, of víðtækt og geri of litlar kröfur um vernd í móttökuríki og til mats á aðstæðum þar.“
Umsögnin heldur áfram og er bara mjög góð greining á þessu skelfilega ákvæði en ég hef ekki tíma til að klára þessa umfjöllun mína. Í raun er verið að reyna að koma inn ákvæði sem leyfir Útlendingastofnun að beita þessu ákvæði sem hún hefur ekki getað beitt á þann hátt sem hún hefði helst viljað, (Forseti hringir.) sem er að reyna að þvinga fólk til einhverra landa sem eru engir móttökusamningar við. En ég mun þurfa að óska eftir (Forseti hringir.) annarri ræðu til þess að útlista það nánar, virðulegi forseti.