153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[20:49]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég held áfram með ræðubútana mína þar sem hámarksræðutími í þessari umræðu er fimm mínútur. Ég er að fjalla um 4. gr. laganna sem fjallar um nýtt ákvæði í lög um útlendinga sem á að heimila lögreglu að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði umsækjenda til að ferðast, eða sem sagt einstaklings sem á að flytja úr landi. Eins og ég nefndi í ræðu minni áðan þá er þarna, að sögn, um að ræða vottorð sem í daglegu tali eru kölluð „fit to fly“-vottorð og hafa verið við líði lengi. Því veltir maður fyrir sér af hverju verið er að setja þessa heimild inn núna: Bíddu nú við, er þetta ekki heimilt nú þegar, þetta hefur verið gert um árabil? Þetta er allt útskýrt í greinargerðinni sem gerir ekkert annað en að vekja upp spurningar þar sem á fleiri stöðum í greinargerðinni með þessu lagafrumvarpi er því miður að finna fullyrðingar sem eru misvísandi og óheiðarlegar til skýringar á þessu frumvarpi. En við skulum skoða þetta, með leyfi forseta:

„Þá hefur á tímum Covid-19 heimsfaraldursins og hertra ferðatakmarkana komið upp sú staða að móttökuríki krefjast þess að útlendingar framvísi mótefna- eða bólusetningarvottorði á landamærum sem skilyrði fyrir inngöngu í hlutaðeigandi ríki. Á Íslandi er komin upp sú staða að útlendingar sem lögum samkvæmt áttu að yfirgefa landið, nýttu sér þessa stöðu og neituðu að afhenda slík vottorð.“

„Í áliti Persónuverndar frá 16. desember 2021 í máli nr. 2021101969 taldi stofnunin að gildandi lög um útlendinga fælu að óbreyttu ekki í sér fullnægjandi heimild fyrir öflun lögreglu á mótefna- og bólusetningarvottorðum frá heilbrigðisyfirvöldum án samþykkis þeirra einstaklinga sem í hlut eiga eða dómsmeðferðar. Þessari tillögu er því m.a. ætlað að tryggja þá lagaheimild.“

Ég geri hlé á tilvitnun minni hér. Í umsögnum um þetta frumvarp var þetta gagnrýnt upphaflega. Ákvæðið hljóðaði aðeins öðruvísi upphaflega og þar var skýrar kveðið á um að þarna væri heimilt að afla þessara svokölluðu bólusetningarvottorða. Ákvæðið hefur verið útþynnt, svo ég noti nú orðalag sem hefur komið fram í máli andstæðinga þessa frumvarps sem eru kannski á móti því af öðrum ástæðum en ég, en í málinu þegar það var lagt fram síðast var þetta ákvæði nefnilega aðeins öðruvísi orðað. Þá var það orðað þannig að það var talið ótvírætt að það fæli í sér einhvers konar tilraun til að lögfesta heimild til þess að afla þessara bólusetningarvottorða án dómsúrskurðar. Það hefur hins vegar komið skýrt fram í umsögnum umsagnaraðila og máli gesta sem komu fyrir nefndina að eins og ákvæðið er orðað núna þá sé það ekki talið bæta neinu við heimild sem er í lögum um — ég held að það sé í lögum um sjúklinga eða eitthvað slíkt sem heimilar heilbrigðisstarfsmönnum að afhenda tiltekin gögn til stjórnvalda. Þá veltir maður fyrir sér: Bíddu nú við, af hverju er þessi breyting þarna inni ef hún bætir engu við þá heimild?

Í greinargerð með frumvarpinu segir berum orðum að þessu ákvæði sé enn þá ætlað að veita þær heimildir, sem voru mun skýrari í orðalagi ákvæðisins eins og það var upphaflega. En umsagnaraðilar hafa í rauninni fallist á að þetta, eins og það er orðað í lögunum, sé fullnægjandi núna. En það er sem sagt svohljóðandi, svo ég ítreki það, með leyfi forseta:

„… er lögreglu heimilt að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði hans til að geta ferðast.“

Þetta hljómar ekki eins og það myndi heimila öflun bólusetningarvottorða eða annars slíks þar sem það varðar kannski ekki andlegt og líkamlegt heilbrigði til að ferðast eins og er t.d. í þessum „fit to fly“-vottorðum.

Hins vegar vekur það áhyggjur að flutningsmenn frumvarpsins, höfundar frumvarpsins, virðast líta svo á að þetta sé fullnægjandi heimild til að afla mun meiri gagna en núgildandi lög heimila, mun fleiri gagna en bara „fit to fly“-vottorða. (Forseti hringir.) Þetta er því dæmi um það að með þessum lögum er verið að lögfesta óljós ákvæði (Forseti hringir.) sem vitum ekki hverjar afleiðingarnar verða af og í rauninni er umsögn umsagnaraðila (Forseti hringir.) ekki byggð á réttum upplýsingum.