útlendingar.
Forseti. Ég var að fjalla um þriðja atriðið, endurtekna umsókn, fyrir nokkrum ræðum síðan áður en ég fór aðeins út í pólitíkina aftur eins og gengur og gerist, svona útúrdúrar í þessu máli af því að það er viðamikið og þegar maður er minntur á ákveðin atriði þá er gott að fylgja þeim eftir til þess að hafa betri samfellu.
Ég var að tala um þessar sýnilega auknu líkur sem þurfa að vera á nýjum upplýsingum til þess að mál verði tekið upp að nýju, þ.e. nýju gögnin verða að mati stjórnvalda — að það séu sýnilega auknar líkur á að „önnur niðurstaða fáist í málið vegna upplýsinga sem ekki lágu fyrir við meðferð upphaflegrar umsóknar.“ Það er dálítið stór krafa þegar óljós mörk eru um það hvað sýnilega auknar líkur eru, því að stjórnvöld geta sagt bara: Nei, mér finnst það ekki, ég held að þetta leiði ekki til þess að önnur niðurstaða fáist. Við munum þurfa að gera heilan helling til að skoða meira og svoleiðis en nei, þetta verður bara sama niðurstaða þegar allt kemur til alls. Okkur finnst það bara. Farið með þetta í kæruferli — nei, heyrðu, við erum búin að henda ykkur úr landi. Þið getið ekki verið að eltast við þetta í gegnum dómstóla. Það er eitt af atriðunum sem ég spurði um á þessum nefndarfundi: Hefur fólk í alvörunni, sem hefur verið synjað og vikið brott af landi, tækifæri á að sækja mál sitt fyrir dómstólum eftir að stjórnvöld eru búin að klára sinn hluta? Ég held að það hafi verið ráðuneytið sem svaraði bara blákalt: Já, ekkert mál, þau fara bara á fjarfundi með lögfræðingi sínum o.s.frv. Já, þau eru að fara að borga lögfræðingi á Íslandi til þess að sinna því og þau eru með svo góða nettengingu þarna úti á götu í Grikklandi og ekkert mál að fara bara á fjarfund í dómsal á Íslandi til að reka mál gegn íslenska ríkinu, það er bara ekkert mál, allir geta það. Nei, það er að sjálfsögðu ekki þannig. Afsakið kaldhæðnina ef hún kom ekki skýrt fram. En við erum dálítið á þeim stað að rosalega margt í þessu frumvarpi er óljóst orðalag sem er háð geðþóttamati stjórnvalda um það hvort viðkomandi fái réttindi eða ekki. Þegar það er svoleiðis þá höfum við alla vega séð að oftar fellur vafinn hjá stjórnvöldum, þ.e. umsækjandinn fær ekki að njóta vafans sem hann á í rauninni að gera.
Fjórða atriðið í þessu frumvarpi er vinnsla persónuupplýsinga. Þar er lagt til að lögreglu verði fengin heimild til að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði útlendings til að geta ferðast við framkvæmd ákvarðana um frávísun og brottvísun. Nú hafa nokkrar umsagnir um þetta verið lesnar upp. Orðin, eins og þau liggja fyrir, hljóma eins og ákveðið hagræði: Já, já, það er búið að ákveða þetta, löggan getur bara skráð sig inn og fengið heilbrigðisupplýsingar einn, tveir og þrír. Það sparar umsækjandanum að fara og biðja um það sjálfur. En það eru flókin atriði hvað það varðar líka, varðandi persónuvernd og ýmislegt svoleiðis, sem fylgja kannski með sem væri óþarfi að fylgi með, til að meta hvort líkamlegt og andlegt heilbrigði komi í veg fyrir brottflutning eða ekki. Það eru ýmsar heilbrigðisupplýsingar sem skipta kannski engu máli í því samhengi og ætti að vera alger óþarfi fyrir lögregluna að fá, þannig að það er margt varhugavert við þetta.
Ég er kominn á fimmta atriðið þannig að ég bið um að verða settur aftur á mælendaskrá.