útlendingar.
Forseti. Ég vék í síðustu ræðu að stöðu hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd. Mig langar aðeins að halda þeirri umfjöllun áfram. Það sem við megum ekki gleyma í því samhengi er að staðan er sú í dag að 41 ríki refsar fyrir hinseginleika. Víðs vegar um heim er ólöglegt að vera opinberlega sam- eða tvíkynhneigður, hvað þá að tilheyra einhverjum öðrum og jafnvel meira framandi kimum hinseginleikans. Þess vegna er svo sláandi að lesa í mati á jafnréttisáhrifum með frumvarpinu að það sé einfaldlega ekki gert ráð fyrir að frumvarpið hafi teljandi áhrif á stöðu einstaklinga eftir kyni og muni því ekki hafa áhrif á jafnrétti, þegar beinlínis er ákvæði inni í frumvarpinu sem, vegna framkvæmdar stjórnvalda á því hvernig kvótaflóttafólk er valið til landsins, hefur bein áhrif á annars vegar einstæðar mæður, sem eru einn af þeim hópum sem lögð hefur verið áhersla á, og hins vegar á hinsegin fólk, sem er annar hópur sem lögð hefur verið áhersla á að ná til landsins sem kvótaflóttafólki. Ef einstaklingar sem hafa komið á þessum forsendum, á forsendum 43. gr. útlendingalaganna, greinar um fólk sem boðið er hingað til lands af stjórnvöldum — ef það kemur í ljós að fjölskylduaðstæður þess fólks eru aðrar en upp voru gefnar í inntökuviðtalinu, eða hvað maður kallar það þegar valið er í hópinn, þá segir í frumvarpinu sem hér liggur fyrir að það fólk falli ekki undir fjölskyldusameiningu. Þessi fjölskylda sem dúkki upp seinna meir, hvort sem það er vegna þess að einstæða móðirin, ekkjan, átti allt í einu án þess að vita það lifandi eiginmann sem hafði verið haldið í gíslingu árum saman eða vegna þess að hinsegin maðurinn átti í felum eiginmann sem ekki mátti opinbera fyrr en hann var kominn á örugga grundu að væri lífsförunautur hans — þessu fólki þarf að halda úti. Til þess er heilt ákvæði í þessu frumvarpi.
Þetta er nokkuð skýrt dæmi um það hvernig stjórnarliðum tekst einhvern veginn að meira að segja túlka jafnréttismál svo asnalega að þau ná ekki almennilega utan um viðfangsefnið. Það er eins og frumvarpshöfundar og eins og fulltrúar meiri hlutans í allsherjar- og menntamálanefnd átti sig ekki á því hvernig ólíkar mismunabreytur vinni saman og þannig geti lagaverkið kannski þurft að taka sérstaklega mikið tillit til fólks sem í ofanálag við að vera á flótta er jaðarsett í samfélaginu þar og hér, eða í Grikklandi, af öðrum ástæðum.
Þetta þótti mér opinberast dálítið skýrlega í sjónvarpinu um helgina þegar hv. þm. Jódís Skúladóttir mætti í Silfrið og fjallaði þar um þvingaða brottför fólks sem væri með samþykkta alþjóðlega vernd í Grikklandi. Hún sagði, með leyfi forseta:
„Færðu húsnæði, heilbrigðisþjónustu, atvinnutækifæri? Það er ekkert víst. En það er líka fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því.“
Ég hef sjaldan heyrt orð sem lýsa jafn vel skilningsleysi á ólíkri stöðu fólks. Þarna erum við jú alltaf að tala um fátækt og jaðarsett fólk sem ekki nýtur fulls aðgengis að samfélaginu en það að vera flóttamaður í samfélagi þar sem þú átt engar rætur og það að vera heimamaður í samfélaginu, það er ekki tvennu saman að líkja. (Forseti hringir.) En það er kannski skiljanlegt að svona orð komi frá fulltrúa þess meiri hluta sem stendur að þessu frumvarpi og því nefndaráliti sem kom úr allsherjar- og menntamálanefnd.