útlendingar.
Virðulegur forseti. Áfram heldur umfjöllun mín um 8. gr. frumvarpsins, um ákvæðið um fyrsta griðland, þ.e. þá fyrirætlun stjórnarliða að gera yfirvöldum útlendingamála kleift að synja fólki um efnismeðferð vegna þess að umsækjandi hafi, að mati Útlendingastofnunar, slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dveljist þar, ferðist eða sé fluttur þangað enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar.
Ég hef verið að lesa upp úr umsögn Rauða krossins um einmitt þetta atriði og ég hvet alla hv. þingmenn, sérstaklega þá sem ætla sér að samþykkja frumvarpið, til að lesa þá umsögn vegna þess að hún er mjög ítarleg og góð og hún fer mjög rækilega yfir öll lagaleg álitaefni frumvarpsins, eða flest hver a.m.k. Ég ætla bara að halda áfram þar sem frá var horfið í fyrri ræðu minni. Á bls. 11 kemur fram, með leyfi forseta:
„Það er mat Rauða krossins að ef koma á til skoðunar að lögfesta ákvæði um að synja umsækjendum um efnislega meðferð á grundvelli hugtaksins um fyrsta griðland þegar móttökuríkið er ekki eitt af Schengen-ríkjunum verði að gera auknar kröfur til mats á aðstæðum í mögulegu móttökuríki og vernd flóttamanna. Það er mat Rauða krossins að ákvæði frumvarpsins sé óskýrt, of víðtækt og geri of litlar kröfur um vernd í móttökuríki og til mats á aðstæðum þar. Þá telur Rauði krossinn að við gerð frumvarpsins hefði átt að horfa til sjónarmiða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Rauði krossinn minnir á að skv. 2. mgr. 23. gr. útlendingalaga skulu íslensk stjórnvöld við framkvæmd ákvæða málsmeðferðarreglna í málum um alþjóðlega vernd eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, m.a. um framkvæmd og túlkun laga um útlendinga nr. 80/2016.“
Í athugasemdum við ákvæðið segir m.a. að ekki sé gerð krafa um að móttökuríkið sé aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, pælið í þessu. Í greinargerð með frumvarpinu stendur að ekki sé gerð krafa um að ríki sem Útlendingastofnun finnst að einhver flóttamaður eigi að fara til eða vera jafnvel fluttur til; það er ekki gerð krafa um að það ríki sé aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Nú held ég áfram í umsögninni, virðulegi forseti:
„Rauði krossinn furðar sig á því og telur það ótækt enda er Flóttamannasamningurinn grundvöllur þeirra viðmiða sem Ísland og samanburðarríki Íslands setja um vernd flóttamanna.“ — heldur betur — „Rauði krossinn telur raunar vera mótsögn í því að í athugasemdunum segir að ekki sé gerð krafa um að móttökuríkið sé aðili að Flóttamannasamningnum en í ákvæðinu segir engu að síður að umsækjandinn verði að geta fengið vernd í móttökuríkinu í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.“
Þetta er ein af mörgum mótsögnum í þessu frumvarpi en þetta er ein af þeim rugluðustu, þ.e. að það eigi að reyna að senda fólk til landa þar sem flóttamannasamningurinn er ekki í gildi, þar sem viðkomandi hefur ekki rétt til dvalar, á stað sem viðkomandi hefur kannski aldrei farið á og hefur lítil sem engin tengsl við. En Útlendingastofnun er einfaldlega búin að ákveða að henni finnst að viðkomandi eigi að fara þangað vegna þess að einhver ættingi viðkomandi búi þar eða eitthvað slíkt. Þetta er ekki í samræmi við alþjóðaskuldbindingar okkar, virðulegi forseti, og ég hlýt að minna á að bann við endursendingum til ríkja þar sem fólk þarf að óttast ofsóknir er ein grundvallarregla alþjóðlega regluverksins.
Á bls. 12, svo ég noti þann litla tíma sem ég á eftir til að lesa aðeins meira upp úr umsögninni, segir, með leyfi forseta:
„Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpinu er vísað til meginreglunnar um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu“ — þ.e. bann við endursendingu, þetta sem ég var að vísa í — „og að gerð sé sú krafa til stjórnvalda að þau gangi úr skugga um að meginreglunni sé fullnægt. Rauði krossinn bendir á að samkvæmt sjónarmiðum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna […] felur það ekki í sér fullnægjandi mat enda eiga flóttamenn að njóta ríkari réttinda samkvæmt Flóttamannasamningnum en þeirra sem felast í meginreglunni.“
Það sem þetta þýðir er að flóttamenn njóta fleiri réttinda en bara að það megi ekki senda þá til landa þar sem þeir þurfa að óttast pyndingar samkvæmt flóttamannasamningnum. Þess vegna skiptir líka máli að vera ekki að senda fólk til landa þar sem flóttamannasamningurinn er ekki í gildi. (Forseti hringir.) Verði þetta frumvarp samþykkt (Forseti hringir.) mun Útlendingastofnun a.m.k. reyna (Forseti hringir.) að senda fólk til landa þar sem flóttamannasamningurinn er ekki í gildi.