útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég er búin að vera að fjalla um 4. gr. frumvarpsins. Við undirbúning ræðu minnar var ég aðeins að skoða þróunina á þessu frumvarpi frá upphafi. Það er alveg dálítið sláandi að rifja þetta upp þar sem nú er búið að skera út alls konar viðbjóð úr þessu máli og þetta er samt það sem stendur eftir. Það er samt þvílík mannvonska, fordómar og virðingarleysi gagnvart fólki á flótta sem gegnsýrir þetta frumvarp.
En ég ætla aðeins að halda áfram að fjalla um einstök ákvæði frumvarpsins. Ég var að ræða um 4. gr. frumvarpsins sem fjallar um nýtt ákvæði sem heimilar lögreglu að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði fólks til að ferðast. Við umfjöllun nefndarinnar var talað um, þegar gestir komu fyrir nefndina, þar á meðal dómsmálaráðuneytið, fulltrúar þess, þessi „fit to fly“-vottorð en það er alveg ljóst að það er ekki bara verið að tala um þessi „fit to fly“-vottorð, til að afla þeirra eru heimildir í öðrum lögum og það hefur aldrei verið vandamál. Það sem er hér verið að gera er að verið er að lögfesta heimild lögreglu til þess að afla m.a. bólusetningarvottorða, sem kom á daginn að henni var ekki heimilt að afla, sem hún aflaði með ólögmætum hætti, sem varð til þess að tveir ungir menn voru plataðir, ég ætla að leyfa mér að nota það orð, til Útlendingastofnunar þar sem lögreglan sat fyrir þeim til þess að flytja þá úr landi. Þetta atvik kom í fréttir og var vægast sagt skelfilegt að horfa upp á það, enda náðist það á mynd og myndband. Í kjölfar þess viðbjóðslega atviks var farið í að kanna hvort lögreglan hefði heimild til að fá þessi gögn og á daginn kom að hún hefði hana ekki þannig að nú á að tryggja þessa heimild. Ég ætla að grípa aftur niður í greinargerð með þessu ákvæði í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Framkvæmd ákvarðana um frávísun og brottvísun útlendinga er hluti af lögbundinni málsmeðferð stjórnvalda samkvæmt lögum um útlendinga. Útlendingi sem hefur fengið ákvörðun stjórnvalda um frávísun eða brottvísun ber lögum samkvæmt að yfirgefa landið. Við framfylgd slíkra ákvarðana verður lögregla m.a. að hafa nauðsynlegar heimildir til að afla vottorðs um heilsufar viðkomandi þegar slíkt er metið nauðsynlegt. Án slíkrar heimildar geta komið upp tilvik þar sem lögregla getur ekki framkvæmt flutninga úr landi en slíkt dregur úr skilvirkni kerfisins og fer auk þess gegn þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist. Ákvæði þetta er því mikilvægur liður í heildarkerfi útlendingamála hér á landi auk þess sem það er í samræmi við skyldu heilbrigðisstarfsmanna að láta hinu opinbera í té vottorð um sjúklinga er þeir annast þegar slíkra vottorða er krafist vegna samskipta sjúklings við hið opinbera, sbr. 2. mgr. 19. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012.“
Það er téð 2. mgr. 19. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn sem hefur verið talin nægja til að gera heilbrigðisstarfsmönnum skylt að láta Útlendingastofnun í té þetta svokallaða „fit to fly“-vottorð sem er vottorð sem ætlað er að tryggja að ekki sé verið að flytja einstaklinga sem eru ekki færir til flugs eða flutnings. Ákvæðið er svohljóðandi í 2. mgr. 19. gr. laga nr. 34/2012:
„Heilbrigðisstarfsmönnum er skylt að láta hinu opinbera í té vottorð um sjúklinga er þeir annast þegar slíkra vottorða er krafist vegna samskipta sjúklings við hið opinbera.“
Það er ekki rétt að þessari breytingartillögu sé ætlað að tryggja þessa heimild vegna þess að það er óþarfi. Þessari breytingartillögu er ætlað að heimila Útlendingastofnun og lögreglu að ganga enn lengra í öflun persónuupplýsinga um einstaklinga til þess að geta þvingað þá úr landi, nokkuð sem hefur verið talið óheimilt að gera hingað til. (Forseti hringir.) Þessu frumvarpi er ætlað að firra flóttafólk grundvallarmannréttindum, (Forseti hringir.) firra það öllum mögulegum leiðum til að geta borið hönd fyrir höfuð sér gegn ofbeldi stjórnvalda.