153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég var síðast að fjalla um vinnslu persónuupplýsinga en ætla að færa mig yfir í umsóknir barna um alþjóðlega vernd. Frumvarpið segir að nauðsynlegt sé að breyta því verklagi á þann veg að framangreind umsagnarskylda, sem er í frumvarpinu, eigi einungis við þegar til stendur að synja fylgdarlausu barni um áframhaldandi dvöl hér á landi, ekki þegar það á að samþykkja, sem hljómar eins og ágætisskilvirkni, sem sagt að barnaverndaryfirvöld þurfi ekki að koma með einhverja umsögn um mál sem á hvort eð er að samþykkja, kannski það eina sem virðist vera augljós skilvirkniaukning á einhvern hátt. En þetta eru ekki margir sem eru þarna undir, varðandi fylgdarlausu börnin, þau eru nokkur, vissulega.

„Samhliða er lagt til að styðja við innleiðingu barnvæns hagsmunamats við meðferð umsókna barna um alþjóðlega vernd með því að ráðherra fái heimild til að setja reglugerð um mat á hagsmunum barns skv. 5. mgr. 37. gr. að höfðu samráði við ráðherra sem fer með mál sem varða barnavernd.“

Af hverju er það ekki bara ráðherrann sem fer með barnavernd sem sér um það þegar allt kemur til alls? Maður veltir því dálítið fyrir sér. Aftur er verið að blanda saman dálítið verksviðum ráðherra. Ráðherra dómsmála er með frumvarp sem fjallar um atvinnuréttindi, sem eru á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðherra. Hérna á dómsmálaráðherra, ef ég skil þetta rétt, að setja reglugerð sem fjallar um hagsmuni barns, sem heyrir undir ráðherra sem fer með mál sem varða barnavernd. Þetta eru skrýtnir útúrdúrar. Af hverju ætti dómsmálaráðherrann, sem snýr að því hingað til alla vega að vera tiltölulega strangur, yfirlýst svo, um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd, að fá að stjórna reglugerðinni um vernd barna sem eru í þeirri stöðu? Af hverju er það ekki ráðherrann sem fer með barnavernd og er með sérhæfingar á þessu sviði, sem sagt fagráðuneytin og þar fram eftir götunum sem passa upp á þá alþjóðasamninga sem varða barnasáttmálann og fleira? Margt af þessu er skringilega hugsað.

Maður veltir því fyrir sér, af því að frumvarpið er í rauninni tiltölulega frábrugðið síðustu útgáfu frumvarpsins, þótt þetta sé sama frumvarp þá er samt nokkur munur — það lítur dálítið út eins og því sé svona klambrað saman, sé bara búið að kalla saman: hverju getum við hent saman í eitt frumvarp um að laga heilan helling. Eins og hefur komið fram í umræðunni virðast þetta vera viðbrögð stjórnvalda við því sem þau hafa verið gerð afturreka með í einhverjum aðgerðum á undanförnum árum. Þá eru bara þau mál tekin til og skellt í eitt frumvarp og eitthvað svona eins og: Heyrðu, æi, ráðherra sem fer með mál sem varða barnavernd — við myndum eiginlega vilja stjórna því svo að það sé nú tryggt að það sé hægt að hafa undanþágurnar réttar en ekki að þær veiti sjálfkrafa einhvern veginn full réttindi gagnvart barnasáttmálanum, enda hefur stór hluti af öllum þeim málum sem hafa komið í fjölmiðla einmitt varðað réttindi barna og ekki verið nægilega vel hugað að því í ferlinu um verndarumsókn. Enn eitt atriðið sem er svona dálítið ámælisvert í þessu frumvarpi, að verksviðin blandast, það eru andstæð sjónarmið hérna, það eru þversagnir og einhvern veginn þurfum við að greiða úr þessu öllu og reyna að útskýra hvernig þetta á síðan að virka þegar búið er að setja lögin. En það getur í rauninni enginn sagt, alla vega mér þegar ég var að spyrja — ég fer kannski aðeins yfir spurningar mínar til ráðuneytisins á nefndarfundunum á eftir, sem voru þó nokkuð margar og svörin voru nokkuð áhugaverð, ég fjalla kannski aðeins um það á eftir og bið forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.