útlendingar.
Frú forseti. Ég má til með að bæta nokkrum orðum við það sem ég hef sagt varðandi fjölskyldusameiningar kvótaflóttafólks. Ráðherra leggur til, og meiri hlutinn styður það, að það verði skertir möguleikar fólks á fjölskyldusameiningu ef það hefur komið hingað í boði stjórnvalda, ef það er svokallaðir kvótaflóttamenn. Þetta er atriði sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir athugasemdir við. Þetta er eitt af þeim atriðum sem Flóttamannastofnunin mælist til að gerðar séu breytingar á í þessu frumvarpi. Það er sérstaklega kallað eftir því að viðhaldið sé rétti endurbúsettra flóttamanna, eins og það heitir í þýðingunni, sem ég held að sé kannski skýrara að tala bara um sem kvótaflóttafólk af því að það er okkur tamara.
Mér finnst nefnilega svo áhugavert hvernig ráðuneytið afgreiðir þetta í sinni umfjöllun um umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ráðuneytið segir að þetta sé, með leyfi forseta, „talið eðlilegt þar sem við val því á hvaða hópum og einstaklingum er boðið til landsins er leitað til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og gætt að einingu fjölskyldunnar.“
Flóttamannastofnunin segir sem sagt í sinni umsögn: Hey, Ísland, þið megið ekki loka á þessa óvæntu maka sem geta allt í einu dúkkað upp í lífi fólks sem þið takið inn sem kvótaflóttafólk. Þið verðið að gæta að einingu fjölskyldunnar. Þá segir ráðuneytið á móti: Jú, víst, við töluðum meira að segja við Flóttamannastofnunina þegar við völdum þetta fólk. Þannig að þó að Flóttamannastofnunin, sem ráðuneytið notar sem rök fyrir því að þetta sé í lagi, biðji ráðuneytið um að breyta þessu þá er ekki orðið við því.
Svo segir ráðuneytið áfram í sinni umfjöllun um þessa athugasemd að ef það koma upp tilvik þar sem nánasti aðstandandi kvótaflóttamanns kom ekki með honum til landsins af einhverri ástæðu yrði það, með leyfi forseta, „eðli máls samkvæmt skoðað sérstaklega …“ Fyrirgefðu, en ég held að við vitum alveg hvernig það að skoða hluti sérstaklega virkar hjá þessu kerfi okkar. Það bara virkar ekki. Hér er svo kristaltært dæmi um það að löggjafinn þarf að setja stafi á blað, þarf að gera skýrt að það sé vilji okkar að ef hommi sem er að flýja ofsóknir kemur til Íslands sem kvótaflóttamaður og bendir síðan á manninn sinn sem sé enn þá í hættu í heimalandinu þá þurfi ekkert að skoða það sérstaklega, maðurinn sé bara tekinn til landsins og fjölskyldan sameinuð.
Þetta er eitt af því sem er hægt að fella undir það að líta fram hjá varnaðarorðum fjölmargra umsagnaraðila, eins og Rauði krossinn orðaði það, og þetta mun skila sér í ómannúðlegra kerfi. Við þurfum ekki nema eitt svona dæmi. Við þurfum ekki nema eina fjölskyldu þar sem Útlendingastofnun eða kærunefnd eða hver það er sem á að skoða málið sérstaklega, eins og ráðuneytið kallaði það, kemst að þeirri niðurstöðu að ekki skuli sameina hjón vegna þess að íslenska ríkinu finnist viðkomandi þannig hafa logið sig inn í verndina sem hér stóð til boða. Vegna þess að það er eina ástæðan. Ástæðan fyrir því að íslenska ríkið, í gegnum Jón Gunnarsson og stjórnarflokkana, vill loka þessu er vegna þess að stjórnarliðum sárnar einhvern veginn að hafa boðið til landsins einhverri ekkju með fjögur börn og mann sem á að hafa verið drepinn af pólitískum andstæðingum en svo bara kemur í ljós að maðurinn er sprelllifandi, kemur til landsins og þau sameinast aftur. Í staðinn fyrir að við blásum til stórhátíðar og fögnum því að þetta fólk sem hafi þurft að þola allt þetta sé loksins sameinað setja stjórnarliðar fyrirvara við það að viðkomandi geti komið til landsins, það þurfi að skoða það sérstaklega, og af fenginni reynslu væntanlega segja nei.