útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég er enn að fara yfir 4. gr. frumvarpsins sem fjallar um heimild sem á að bæta inn í lögin fyrir lögreglu til þess að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði fólks til að ferðast. Því er haldið fram í greinargerð með frumvarpinu að þessu sé ætlað að tryggja lagaheimild fyrir öflun á því sem kallað er í daglegu tali „fit to fly“-vottorð, sem er vottorð sem er ávallt aflað til að tryggja að ekki sé verið að setja einstaklinga í flug sem þola það ekki af andlegum eða líkamlegum ástæðum. Það er hins vegar ljóst, bæði af greinargerðinni og þróun þessa ákvæðis og umræðu um það, að því er einnig ætlað að tryggja heimild Útlendingastofnunar til að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum sem þeim hefur hingað til ekki verið talið heimilt að afla. Þar er ég kannski fyrst og fremst að tala um bólusetningarvottorð vegna Covid-19.
Ákvæðið er auðvitað eitt af fjölmörgum ákvæðum þessa frumvarps sem sýna að þau hafa ekkert með einhverja heildarsýn eða heildarstefnu eða straumlínulögun kerfisins að gera heldur snúast mörg hver um einhver tilbúin vandamál Útlendingastofnunar sem eru fæst fyrir hendi, ef einhvern tímann mátti kalla þau vandamál. Ég veit ekki til þess að nýtt flugfélag geri kröfu um bólusetningarvottorð lengur, eða stjórnvöld, til að fara í flug. Það má því kannski ímynda sér að þetta væri orðið óþarft.
Gefum okkur hins vegar að þetta snúist um þessi „fit to fly“-vottorð. Þá vekur það auðvitað athygli að slíkra vottorða hefur verið aflað alveg frá því að ég hóf afskipti af þessum málaflokki fyrir allmörgum árum. En hins vegar eru fjölmörg dæmi þess að Útlendingastofnun taki hreinlega ekki mark á þeim vottorðum. Frægustu dæmin urðu í raun bara fræg vegna þess að viðkomandi einstaklingar höfðu myndað nægar tengingar hér á landi til að það væru vitni með myndavélar á staðnum.
Eitt af þessum dæmum sem náði athygli fjölmiðla og vakti reiði almennings í kjölfarið er mál albanskrar konu sem var gengin átta mánuði á leið og átti að vísa úr landi. Í frétt í Fréttablaðinu þann 5. nóvember 2019 sagði, með leyfi forseta:
„Albanskri fjölskyldu, þar á meðal tveggja ára gömlu barni og konu sem gengin er átta mánuði, var í morgun vísað frá landi gegn ráðleggingum lækna og ljósmæðra á Landspítalanum. Læknir á kvennadeild Landspítalans hafði gefið konunni vottorð þar sem fram kom að konan ætti ekki að fljúga auk þess sem ljósmæður höfðu mælt gegn því að konunni yrði vísað frá landi. Fjölskyldan var samt sem áður flutt í lögreglubíl á flugvöllinn um klukkan fimm í morgun.“
Það sem gerðist þarna var það að heilbrigðisstarfsfólk gefur út vottorð um það að konan sé ekki fær um að fljúga. Hvað gerir Útlendingastofnun? Útlendingastofnun er ósammála. Útlendingastofnun ákveður að afla annars vottorðs frá sínum trúnaðarlækni, sem sagði: Jú, ekkert mál að flytja konuna.
Í frétt þann 22. júní síðastliðinn kom fram, með leyfi forseta:
„Íslenska ríkið hefur nú viðurkennt bótaskyldu sína í máli 26 ára albanskrar konu sem vísað var frá landi gengin tæplega níu mánuði á leið í nóvember 2019.“
Þetta var staðfest af hálfu lögmannsins í samtali við fjölmiðla en reyndar kom ekki fram hversu háar bætur væru greiddar. En það sem gerðist í kjölfarið var það að embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við það hvernig staðið var að útgáfu vottorðs konunnar. Það er því vonandi að stjórnvöld, fái þau heimild til þess að afla vottorða um líkamlegt og andlegt heilbrigði fólks til að fljúga, fari að taka mark á þeim. Það væri kannski fyrsta skrefið áður en við förum að auka heimildir stjórnvalda til að afla slíkra vottorða til að réttlæta ákvarðanir sínar og gjörðir.