153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég er pínu eftir mig eftir þessa sögu frá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Þetta er rosalega sláandi og rosalega gott dæmi um hvernig framkvæmdin í þessum málaflokki hefur verið. Þrátt fyrir það hvernig núverandi lög eru þá sjáum við dæmi um svona framkvæmd. Það er einhvern veginn reynt að smokra sér fram hjá hinu og þessu og sinna ekki augljósri lagalegri skyldu til að ná fram brottvísun eða einhverju álíka. Er þá skrýtið að við stöndum hérna og treystum ekki núverandi stjórnvöldum, hvað þá fyrir þessum lagabreytingum, miðað við allar umsagnirnar, fyrir því að afgreiða þetta mál út úr 2. umr. inn í nefnd á milli 2. og 3. umr.? Er skrýtið hjá okkur, er það ómálefnalegt að segja: Nei, þið segist vera með breytingartillögur, kynnið þær fyrir nefndinni, fáum umsagnaraðila til að segja okkur hvað þær breytingartillögur þýða, því að það er ekki séns að við trúum því sem þessir ríkisstjórnarflokkar segja að breytingartillögurnar þýði. Mér finnst það frekar augljóst miðað við aðstæðurnar í þessum málaflokki. Við þurfum að gera eitthvað meira en bara taka þau á orðinu. Þau hafa sýnt trekk í trekk að orð þeirra í þessum málaflokki eru merkingarlaus.

Ég ætlaði að gefa stutt dæmi um það hvernig svona nefndarfundur fer fram. Ég var á síðasta nefndarfundinum áður en þetta mál var afgreitt til 2. umr. Sem dæmi var ég að spyrja um þetta samræmi við önnur Evrópulönd. Þar var ég með spurningar á borð við: Dómsmálaráðherra hefur sagt að við séum með linari löggjöf. Lýsir það sér í því að hérna flokkast fleiri með rétt til alþjóðlegrar verndar en annars staðar á Norðurlöndunum? Myndi sem sagt einhver sem fengi vernd hérna ekki fá vernd í einhverjum hinum löndunum eða öfugt, eða er löggjöf Íslands að veita einhver réttindi til verndar umfram alþjóðlegar skuldbindingar eða mannréttindasáttmála? Af því að dómsmálaráðherra heldur því fram að löggjöfin hér sé linari.

Varðandi skerðingu og niðurfellingu réttinda er sagt að það sé m.a. í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum. Þá er spurning hvort það sé vegna þess að löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar en ekki okkar löggjöf og framkvæmd. Er það málið? Erum við að gera eitthvað meira en alþjóðlegar skuldbindingar segja til um? Af hverju skiptir það þá máli að okkar löggjöf og framkvæmd sé eins og annars staðar á Norðurlöndunum? Eru öll Norðurlöndin með eins framkvæmd? Við vitum að svarið við því er nei, og ef nei, hvaða Norðurlönd veljum við þá til að samræma löggjöf og framkvæmd við og af hverju? Fella t.d. aðrar þjóðir Norðurlanda niður réttindi og þjónustu við umsækjendur á einhverjum tímapunkti, og þá bara að framkvæmd brottvísunar?

Það voru áhugaverð svör við þessu. Eitt svarið snerist um að við rekum engin lokuð búsetuúrræði hérna á Íslandi og okkur er sagt að það sé skylda samkvæmt Schengen, að við eigum að geta tryggt að við vitum hvar fólk er sem er búið að skipa að fara úr landi. En eina úrræðið sem er hérna í dag er að lögregla hefur óskað eftir gæsluvarðhaldi og viðkomandi er þá vistaður á Hólmsheiði. Það er alveg skýrt að það á ekki að vista flóttafólk, eða fólk sem hefur verið neitað um alþjóðlega vernd, með öðrum refsiföngum. En það er ekki verið að leggja til lokuð búsetuúrræði. Nei, ekkert svoleiðis, það er ekki valmöguleiki í staðinn fyrir það að missa þjónustuna, eins og er á hinum Norðurlöndunum. (Forseti hringir.) Það er ekkert samræmi þar í þessari löggjöf.

Ég bið forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.