útlendingar.
Frú forseti. Mig langar aðeins að draga upp aftur viðbótarumsögn Rauða krossins á Íslandi þar sem brugðist er við þeim breytingum sem meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar gerði á frumvarpinu. Í öðrum kafla þessarar viðbótarumsagnar er fjallað um hugtakið sérstaklega viðkvæma stöðu. Mér finnst þetta mjög áhugaverður kafli vegna þess að þarna kristallast ákveðið vandamál við kerfið okkar. Í lögunum er þetta hugtak sem okkur finnst kannski svona í iðrunum eins og hljóti að vera auðvelt að skilja þetta, fólk í viðkvæmri stöðu, það hlýtur að vera gott að hafa það í lagasafninu og segja að við getum tekið sérstakt tillit til fólks í viðkvæmri stöðu. En eins og Rauði krossinn segir þá hefur framkvæmdin orðið til að þrengja þetta ár frá ári þannig að í reynd eigi þetta í rauninni bara um mat á þjónustuþörf umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem er nú pínu áhugavert með hliðsjón af svari því sem ég fékk frá dómsmálaráðherra sem ég vitnaði til hér fyrr í umræðunni varðandi það að engin tölfræði væri til um fjölda fatlaðra umsækjenda um alþjóðlega vernd en samt er einhvern veginn metin þjónustuþörf umsækjenda á einhverju stigi. Þannig að mögulega er fólk sem gefur sig fram sem fatlaða umsækjendur en við fáum ekki að vita það vegna þess að ekki er haldið utan um þær upplýsingar og við höfum svo sem heyrt sögurnar af því hvernig kerfið rengir fólk þegar það kemur, sérstaklega ef það segist þjást af einhverjum krankleika sem er ekki sýnilegur og eðli máls samkvæmt á kannski erfitt með að mæta með einhver þinglýst greiningarvottorð frá landinu sem það er að flýja. Þá er alltaf tortryggni sem mætir því og mjög oft misbrestur á því að fólk fái þjónustu í samræmi við fötlun sína eða veikindi almennt.
Rauði krossinn talar nefnilega um hvernig ferlið hefur síðan breyst þannig að nú er ekki lengur tekið það sem er kallað fyrsta viðtal eða þjónustuviðtal hjá Útlendingastofnun. Rauði krossinn er þess vegna með áhyggjur af því að það sé mjög erfitt fyrir umsækjendur að koma því á framfæri að þau þurfi einhverja einstaklingsbundna þjónustu. Ekki nóg með að það verði ekki endilega borin kennsl á hina viðkvæmu stöðu sem fólk kann að vera í heldur fær fólk aukinheldur ekki þá þjónustu sem það þarf. Þar að auki eru með þessu meiri líkur á því en áður að ákvörðun í máli þess sé tekin án þess að viðkomandi hafi fengið tækifæri til að hitta viðeigandi sérfræðinga eða t.d. heilbrigðisstarfsfólk.
Þetta langar mig að nefna bara rétt svona í samhengi við frumvarp um landamæri sem var samþykkt hér og gert að lögum í haust, þar sem er akkúrat ákvæði um að það megi snúa fólki við á landamærum ef það er t.d. skilríkjalaust, nema ef viðkomandi getur einhvern veginn komið því nógu skýrt til skila að hann sé umsækjandi um alþjóðlega vernd. Við eigum eftir að sjá hvernig þetta mun þróast í framkvæmd vegna þess að það sem við höfðum áhyggjur af og lýstum hér í ræðum í haust varðandi landamærafrumvarpið var að það væri raunverulega skilgreiningaratriði af hálfu yfirvalda hvort fólk teljist t.d. umsækjandi um alþjóðlega vernd ef það er með samþykkta umsókn um alþjóðlega vernd í öðru landi, hvort stjórnvöld muni kannski nota þetta sem afsökun til að brottvísa, á þröskuldinum í Keflavík, fólki sem hingað til hefur fengið að ílengjast eitthvað í landinu þangað til stjórnvöld hafa leigt undir það þotu til að sparka því til Grikklands og það allt saman án þess að það sé endilega metin þjónustuþörf einstaklinganna eins og Rauði krossinn bendir á.