153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:51]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Enn er ég að fjalla um fyrsta griðland en tel mig vera á lokasprettinum í umfjöllun minni um það ákvæði. Ég var komin að ákveðnum punkti í umsögn Rauða krossins um það ákvæði sem mér finnst einmitt mikilvægur og ég vildi halda áfram að vitna í umsögnina. Það varðar það að Útlendingastofnun beri alltaf skylda til að framkvæma ákveðið mat um hvað taki við umsækjanda um alþjóðlega vernd ef hann verður sendur í eitthvert annað ríki. Útlendingastofnun má ekki leggja það til að senda útlending í annað ríki þar sem hætta er á að hann sæti pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða eigi á hættu að sæta ofsóknum vegna þess að hann er flóttamaður. Það er í þessu samhengi sem ég vil halda áfram að vitna í umsögnina. Á bls. 12 stendur, með leyfi forseta:

„Einnig virðist Rauða krossinum sem í tillögu frumvarpsins séu gerðar jafnvel minni kröfur til aðstæðna í fyrsta griðlandi sem móttökuríki en gerðar eru þegar metið er hvort umsækjandi geti leitað verndar með því að flytja sig um set innan eigin heimaríkis […] Í athugasemdum við það ákvæði í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga segir m.a. að við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði í eigin heimaríki sem talið er öruggt samkvæmt ákvæðinu skuli tekið tillit til ýmissa þátta sem ekki séu tæmandi taldir, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun og að við matið skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í framkvæmd hefur einnig verið lögð rík áhersla á að umsækjandi eigi félagslegt bakland á því svæði hvar honum er ætlað að setjast að. Engin slík sjónarmið eru rakin í frumvarpinu.“

Það er í raun ekkert sem Útlendingastofnun þarf að meta þegar hún er að ákveða hvort sanngjarnt og eðlilegt sé að útlendingur setjist að í einhverju öðru landi en sínu heimaríki, í einhverju landi þar sem hann hefur ekki dvalarleyfi, það á bara að senda hann þangað af því að Útlendingastofnun finnst það eðlilegt.

Áfram segir:

„Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpinu segir að við mat á því hvað teljist sanngjarnt og eðlilegt samkvæmt hinum nýja d-lið“ — þ.e. samkvæmt þessu ákvæði sem á að bæta inn í lögin núna — „skuli m.a. líta til lengdar dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu.“

Ef við berum þetta saman þá er himinn og haf þarna á milli í þeim atriðum sem á að kanna, hvort viðkomandi geti sest að á einhverjum öðrum stað í sínu eigin ríki eða hvort viðkomandi geti sest að í einhverju öðru ríki þar sem hann hefur ekki einu sinni dvalarleyfi — það eigi bara að líta til dvalar, fjölskyldutengsla og möguleika viðkomandi til að dveljast eða öðlast rétt til dvalar í ríkinu.

Ég held áfram, með leyfi forseta:

„Getur ákvæðið þannig einnig komið til skoðunar þegar umsækjandi hefur ekki dvalið í ríkinu en hefur náin fjölskyldutengsl við það, svo sem þegar maki umsækjandans er ríkisborgari þess og getur á þeim grundvelli fengið dvalarleyfi. Rauði krossinn telur að við gerð frumvarpsins hafi verið lögð óeðlileg áhersla á tengsl umsækjenda við mögulegt móttökuríki fremur en vernd flóttamanna. Rauði krossinn telur ótækt að atriði á borð við tengsl við ríki sem umsækjandinn hefur aldrei komið til geti orðið grundvöllur að synjun á að taka umsókn til efnismeðferðar.“ — Þetta finnst mér nokkuð skýrt.

Í hugtakasafni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna er hugtakið fyrsta griðland skilgreint en ég tek eftir því að ég hef ekki nægilegan tíma til að fara í gegnum skilgreininguna á hugtakinu. Ég læt þessa samantekt um þetta atriði duga en bendi á að hér er verið að búa til undantekningu frá þeirri meginreglu sem er í lögum um útlendinga sem er að þú eigir rétt á efnismeðferð. Þessari undantekningu á að beita nokkurn veginn án skilyrða um að Útlendingastofnun (Forseti hringir.) þurfi að vinna einhverja rannsóknarvinnu í því að einstaklingur hafi nokkuð þangað að sækja sem verið er að vísa honum til (Forseti hringir.) eða hvort það er yfir höfuð hægt að vísa honum þangað. Þetta er alveg rosalega slæmt ákvæði, virðulegi forseti.