153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[21:56]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. 6. gr. í frumvarpinu varðar skerðingu og niðurfellingu réttinda en þar eru lagðar til breytingar, eins og segir í greinargerðinni, til að skýra frekar þau réttindi sem útlendingum sem lögum samkvæmt ber að fara af landi brott stendur til boða. Hér er sagt að breytingarnar séu í samræmi við löggjöf og framkvæmd annars staðar á Norðurlöndunum sem er dálítið flókið samt; það er náttúrlega mismunandi hvernig það er, eftir því hvaða land er miðað við. Hér er verið að segja að sú meginregla sé lögð til að útlendingur sem hefur fengið endanlega synjun á umsókn sinni — þ.e. bara á stjórnsýslustigi, en afskaplega fáir hafa getað farið alla leið í gegnum dómskerfið af því það er erfitt að reka dómsmál ef þú ert einhvers staðar annars staðar en á Íslandi — njóti áfram þeirra réttinda í 30 daga að hámarki frá því ákvörðun verður endanleg. Frá þeim tímafresti falla öll réttindi niður.

Vandinn er sá að það er líka lagt til að niðurfelling réttinda barna og barnshafandi kvenna sé ekki heimil og að þau njóti því áfram fullrar þjónustu þar til þau fara af landi brott. Jafnframt felst í ákvæðinu að foreldri eða umsjónarmaður barns og maki barnshafandi kvenna njóti áfram réttar samkvæmt ákvæðinu, auk þess sem gert er ráð fyrir að aðrir heimilismenn sem jafnframt eru ættingjar barna njóti þjónustu. Það eru orðnir ansi margir þarna sem eru komnir með undanþágu frá þessu. Maður spyr sig, þegar maður fer að telja þetta til, hvort það taki því að bæta við öllum þessum undanþágum og úrskurðum um það hvort hinn og þessi sé ættingi og vera að athuga það fram og til baka o.s.frv. þegar það eru kannski ekkert svo margir eftir. Það væri ágætt að hafa tölurnar um þetta til að hægt væri að útskýra hvernig þetta geti talist einhvers konar skilvirkni en ekki réttarskerðing.

Áfram segir í greinargerð með 6. gr.:

„Einnig er lagt til að ekki verði heimilt að fella niður réttindi alvarlega veikra einstaklinga og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir.“ — Að sjálfsögðu ekki.

Síðan er lagt til að réttindin falli niður þá þegar, þegar um bersýnilega tilhæfulausa umsókn er að ræða, alveg eins og er varðandi EES-ríkin, enda eru flest þeirra hvort eð er frá þeim svæðum. Það eru svo sem ekkert endilega miklar breytingar en samt óljóst hver hliðaráhrifin verða á þessu.

Síðan segir:

„Hvað varðar þau tilvik þegar útlendingur kemur frá öruggu upprunaríki og umsókn hans hefur verið metin bersýnilega tilhæfulaus þá frestar kæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar.“

Allt í allt þá sýnir þessi grein dálítið hversu fjölbreytt málin eru miðað við hvaðan fólk er að koma. Það geta verið margar mismunandi aðstæður eftir því hvort fólk kemur frá öruggu landi, EES-landi, utan Schengen, innan Schengen, frá Úkraínu eða Miðausturlöndum eða hvaðan sem það er. Það margfaldast saman við stöðu fólks; hvort þetta eru börn eða ættingjar eða hvort um er að ræða fólk með stuðningsþarfir eða allt þetta sem er talið upp hérna. Það þarf að meta hvort um sé að ræða réttmæta undanþágu frá því að fella niður réttindin. Það tekur tíma og kostar fyrirhöfn. Það er kæranlegt ef stjórnvöld taka ranga ákvörðun sem kostar að auki vesen. Allt til að geta fellt niður réttindi hverra og hversu margra? Hvaða umfang er verið að tala um hérna? Og meira að segja af þeim hluta sem er þarna undir; hversu mikið af því er framkvæmanlegt hvað varðar brottvísun eins og hefur verið talað um hér áður? Eykst þá ekki bara vandinn vegna heimilislausra? Útlendingur í neyð fer inn á stuðning sveitarfélaga sem er hærri en viðkomandi fær sem umsækjandi um alþjóðlega vernd.

Við erum enn og aftur með rosalega óljósar útskýringar á því hvernig framkvæmdin mun verða eftir að þessum breytingum verður komið á, hvernig ferlið lítur út. Það er erfitt að útskýra það af því að þetta er rosalega fjölbreytt ferli og nær yfir mjög fjölbreyttan hóp. Það krefst langra útskýringa að átta sig á því hvaða hópa þetta nær yfir og hvaða hópa þetta nær ekki yfir, hvaða áhrif þetta hefur á mismunandi hópa. (Forseti hringir.) Ég bið forseta vinsamlega að setja mig aftur á mælendaskrá.