útlendingar.
Frú forseti. Síðasti ræðumaður var eiginlega á slóðum sem mig langar líka að halda mig á en hún dró ágætlega fram hversu illa kerfinu gengur að meta viðkvæma stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í máli albönsku konunnar, sem var komin 36 vikur á leið, og fékk neikvæða niðurstöðu heilbrigðisstarfsfólks um að hún væri fær um að fara í langt ferðalag, er brotaviljinn svo skýr. Útlendingastofnun fær bara álit annars læknis, álit trúnaðarlæknis sem augljóslega sýnir Útlendingastofnun meiri trúnað en skjólstæðingnum, en manneskjunni sem þetta vottorð snerist um.
Hvernig eigum við að geta treyst mati svona kerfis á viðkvæmri stöðu fólks? Dæmin eru mörg. Þetta er kannski eitt af þeim skýrustu, eitt af þeim sem náð hefur lengst í opinberri umræðu og hefur fengið afgerandi umsögn í gegnum álit landlæknis á þessari framkvæmd. Þarna fór trúnaðarlæknir Útlendingastofnunar yfir strikið í þágu stofnunarinnar gegn mannúð.
Mig langaði að nefna þetta vegna þess að í framhaldsumsögn Rauða krossins, þar sem brugðist er við skeytingarleysi meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar við umsögnum svo til allra umsagnaraðila málsins, er lýst sérstökum áhyggjum af vangetu kerfisins til að meta viðkvæma stöðu fólks varðandi þær undanþágur sem fyrir liggja varðandi þjónustusviptingu eftir 30 daga. 30 daga þjónustusviptingin er náttúrlega eitt af því ógeðfelldara í þessu frumvarpi en ég held að það hjálpi stjórnarliðum að sofa á nóttunni að það er upptalning á hópum sem má undanþiggja þjónustusviptingunni, sem búa ekki við þann ótta að vera bara sparkað lóðbeint á götuna. Þar eru talin upp börn og foreldrar eða umsjónarmenn þeirra og ættingjar, barnshafandi konur, alvarlega veikir einstaklingar og fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir. Fæstir af þessum hópum eru óumdeildir í bókum Útlendingastofnunar. Útlendingastofnun er reglulega að senda börn í aldursgreiningu vegna þess að hún trúir því ekki að þau séu börn. Það er kannski erfitt að rengja það að kona sé barnshafandi, það er hægt að mæla það, en fólk með alvarleg veikindi og fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir eru hópar sem kerfið er mjög oft að gera rekistefnu um. Þannig segir í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn minni um fatlaða umsækjendur um alþjóðlega vernd, með leyfi forseta:
„Fullt tillit er tekið til þeirra gagna sem liggja fyrir um fötlun eða veikindi einstaklings og þjónustuþörf hans og þau lögð til grundvallar.“
Þarna finnst mér lykilatriði vera að fullt tillit sé tekið til þeirra gagna sem liggja fyrir. Það eru þau gögn sem annaðhvort koma frá heilbrigðisstarfsfólki hér á landi — ætli trúnaðarlæknir Útlendingastofnunar sé í þeim hópi, eða hvað? — eða gögn sem fólk hefur með sér frá landinu sem það er að flýja. Staðreyndin er náttúrlega sú að mjög oft er Útlendingastofnun að rengja staðhæfingar fólks um fötlun eða langvarandi veikindi, sérstaklega þegar það eru mein sem sjást síður utan á fólki, en ekkert bara í þeim tilvikum. Þetta heyrum við t.d. líka frá Landssamtökunum Þroskahjálp að sé ítrekað vandamál varðandi börn á flótta, að þörfum þeirra sé ekki mætt í skólakerfinu t.d. vegna þess að Útlendingastofnun sé ekki búin að flétta þessa þætti saman.