útlendingar.
Virðulegur forseti. Við höfum aðeins verið að ræða aðstæður flóttafólks í Grikklandi vegna þess að markmiðið með þessu frumvarpi er að auðvelda stjórnvöldum að senda enn þá fleira fólk til Grikklands, helst án þess að þurfa nokkru sinni að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd.
Af þeim sökum langar mig að vísa hér í aðra skýrslu frá Rauða krossinum á Íslandi frá því í apríl 2022, samantekt Rauða krossins á Íslandi um aðstæður flóttafólks í Grikklandi, og langar mig sérstaklega að fjalla um aðstæður flóttabarna. Á bls. 2 í þessari samantekt kemur fram að einungis þriðjungur flóttabarna hafi fengið einhvers konar skólavist. Þetta var fyrir heimsfaraldur Covid-19. Rauði krossinn dregur þá ályktun með hliðsjón af efnahagslegum og félagslegum afleiðingum Covid, með leyfi forseta, „að þetta hlutfall hafi lækkað frekar en hækkað,“ enda hafi skólum í Grikklandi verið lokað vegna Covid-19.
Svo segir síðar í samantektinni, með leyfi forseta:
„Ljóst er að börn á flótta hafa ekki aðgengi að þeirri menntun sem grísk lög kveða á um. Í því samhengi vill Rauði krossinn benda á skýrslu Passerell frá nóvember 2020 en í umfjöllun hennar um aðgengi flóttafólks að menntunarstofnunum er þungamiðja umfjöllunarinnar afar skýr um að réttindi sem flóttafólki er lofað bjóðast einungis í orði, ekki á borði.“
Mér líður dálítið eins og við höfum verið hrópandinn í eyðimörkinni með þetta, vegna þess að viðhorfið frá stjórnarliðum er einhvern veginn bara bla, bla, bla, eins og við séum bara að bulla eitthvað þegar við segjum að flóttafólk á Grikklandi geti ekki notið þeirra réttinda sem þó stendur á einhverju blaði að það eigi að geta notið. Þetta er almennt viðtekið og samþykkt af flestum alþjóðastofnunum og mannréttindasamtökum og t.d. eru dómstólar í Þýskalandi hættir að senda fólk sem hefur fengið vernd í Grikklandi til Grikklands út af ómannúðlegum aðstæðum flóttafólks þar og eru raunar að leggja sig fram við að sækja fólk frá Grikklandi til Þýskalands vegna aðstæðna flóttafólks. Stjórnvöld í Þýskalandi eru að bjóða fólk sem hefur fengið vernd velkomið til Þýskalands. Af því að við erum að tala um nágrannaríkin, þá er líka spurning hvaða fyrirmyndir við veljum okkur.
Svo ég klári það sem ég var að vitna í þá er þungamiðja umfjöllunar þessarar skýrslu Passerell afar skýr, með leyfi forseta:
„… að réttindi sem flóttafólki er lofað bjóðast einungis í orði, ekki á borði. Þar er m.a. greint frá aðskilnaði flóttabarna frá öðrum börnum, að nýlegar lagabreytingar hafi ekki reynst skilvirkar og að fjöldi menningarlegra hindrana mæti flóttabörnum í skólakerfinu.
Í mars 2021 sendi fjöldi hagsmunasamtaka frá sér opið bréf þar sem þau lýstu yfir áhyggjum sínum á takmörkuðu aðgengi flóttabarna að menntun í Grikklandi. Samkvæmt samtökunum sæta flóttabörn mikilli mismunun hvað varðar aðgengi að menntun og skoruðu á yfirvöld að grípa til ráðstafana og tryggja réttindi barnanna. Þann 13. apríl 2021 kom út skýrsla RSA þar sem staðfest er að börn á flótta hafa ekki sama aðgengi að menntun og grísk börn.
Með vísan til þeirra áreiðanlegu heimilda sem raktar eru hér að framan er ljóst að flóttafólk mætir miklum aðgangshindrunum í Grikklandi, einnig barnafjölskyldur.
Í því samhengi telur Rauði krossinn rétt að vísa til úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 25. mars 2020 er varðaði barnafjölskyldu sem áður hafði hlotið vernd í Grikklandi. Í úrskurðinum er fjallað um hindranir sem flóttafólk mætir í Grikklandi:
„Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd hafa þegar verið raktar. Eins og þar kemur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi.“
Með úrskurði sínum felldi kærunefnd útlendingamála úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsækjendum um efnismeðferð umsókna um vernd og vísa umsækjendum aftur til Grikklands …“
Það er sem sagt verið að reyna að koma í veg fyrir svona úrskurði, virðulegi forseti, með setningu þessara laga. Það er verið að reyna að auðvelda það (Forseti hringir.) að henda flóttabörnum til Grikklands þar sem þau hafa augljóslega ekki sama rétt til menntunar og önnur börn.