Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:24]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég er enn að fjalla um 4. gr. frumvarpsins sem við erum að ræða hér sem heimilar lögreglu að fá afhentar upplýsingar frá heilbrigðisyfirvöldum, eða eins og það er orðað í ákvæðinu: vottorð um líkamlegt og andlegt heilbrigði útlendings sem á að flytja úr landi. Þó að það sé augljóst að ákvæðinu sé ætlað að víkka út heimildir Útlendingastofnunar og lögreglu til að fá gögn frá heilbrigðisyfirvöldum þá var því haldið fram, undir meðferð málsins í allsherjar- og menntamálanefnd, að eingöngu væri um að ræða svokölluð „fit to fly“-vottorð. Vorum við ekki búin að finna íslenska orð yfir það hér áðan? (Gripið fram í.)Flugfærnisvottorð, takk. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson var með þetta fyrir mig. Það er hins vegar alveg ljóst að heimild til að afla þessa flugfærnisvottorðs hefur legið fyrir í lögum í langan tíma og ekkert vandamál þar. Það er talið að hún sé í 2. mgr. 19. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. En við skulum bara halda okkur við þessi flugfærnisvottorð vegna þess að þar er af nógu að taka þótt ekki sé farið út í það sem stjórnvöld ætla sér að gera með þessum breytingum. Við vitum auðvitað að þessar breytingar snúast um úrskurð Persónuverndar sem kveðinn var upp í kjölfar þess að Útlendingastofnun plataði til sín tvo hælisleitendur, bauð þeim að koma og sækja bólusetningarvottorðin sín og þar beið þeirra lögregla, vopnuð alls konar ofbeldistækjum, til að neyða þá úr landi. Reyndar fór annar þeirra svo illa út úr því ofbeldi að ekki var hægt að flytja hann úr landi. Hann fór ekki í flugvél, hann fór á sjúkrahús en var fluttur úr landi daginn eftir. Mér skilst að þeir hafi verið sprautaðir niður til að hægt væri að hafa þá aðeins samvinnuþýðari og vekur það raunar upp aðra umræðu sem var kveikjan að fyrirspurn sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson beindi til dómsmálaráðherra varðandi þvingaða lyfjagjöf til að neyða fólk úr landi og það er sannarlega umræðuefni sem væri hægt að taka upp hér í tengslum við þetta.

En ég ætla að fara aðeins í það mál sem er kveikjan að þessari tillögu í frumvarpinu og ætla ég að lesa upp úr frétt frá 6. júlí 2021, með leyfi forseta:

Tveir palestínskir hælisleitendur á þrítugsaldri sem vísa átti úr landi voru handteknir af lögreglu á skrifstofu Útlendingastofnunar. Að sögn aðgerðahópsins Refuges in Iceland voru mennirnir boðaðir á skrifstofu Útlendingastofnunar í Bæjarhrauni til að sækja bólusetningarvottorð. Þegar þeir mættu var hins vegar hringt á lögreglu sem kom skömmu síðar með sex lögreglubíla og sérsveit meðferðis og handtók þá. Að sögn sjónarvotts, sem vildi ekki láta nafns síns getið, hafði mönnunum verið tjáð að ef þeir myndu ekki gangast undir bólusetningu yrði þeim vísað úr landi og bólusetningin væri einungis hugsuð vegna almannaheilla. Þegar þeir mættu til að sækja vottorðin hafi þeim hins vegar verið tjáð að það ætti að vísa þeim úr landi í dag og þegar þeir neituðu að sýna samvinnu voru þeir handteknir með valdi af lögreglu. Þeir lömdu þá og hentu þeim í jörðina og notuðu óhóflegt vald gegnt þeim. Lögreglan gaf þeim líka raflost. Annar þeirra er flogaveikur og andlega veikur. Það blæddi úr honum. Þeir voru í klukkutíma að reyna að ná valdi yfir honum og kölluðu til fleiri lögreglubíla og sjúkrabíl. Á endanum voru þeir sprautaði niður til að koma í veg fyrir að þeir myndu streitast á móti. Þeir tóku þá á ónefndan stað og enginn veit neitt um þá núna, segir sjónarvottur sem var á vettvangi. Ekki tókst að ná sambandi við Útlendingastofnun við vinnslu fréttarinnar.

Fréttir hermdu síðan, í kjölfar þessa atviks, sem fyrr segir, að annar þeirra hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir þessar aðfarir en ekki í flug en síðan verið fluttur strax daginn eftir. Þessir tveir menn voru fluttir til Grikklands. — Ég óska eftir því við forseta að fá að fara aftur á mælendaskrá.