útlendingar.
Forseti. Fyrst örstutt vegna orða hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur varðandi þvingaða brottvísun og þvingaða lyfjagjöf í tengslum við þvingaða brottvísun. Það er náttúrlega einn angi af því hvernig íslensk stjórnvöld nota nauðung miklu meira en nauðsynlegt er. Umboðsmaður Alþingis bendir reglulega á þetta í tengslum við heilbrigðiskerfið og þetta þekkjum við líka úr fangelsiskerfinu. Nýjasta dæmið er svört skýrsla Amnesty International um það hvernig einangrunarvist er beitt í fangelsum landsins.
Ég ætla ekki að dvelja við þetta atriði, þetta er fyrirspurnahali sem mig langar að koma að síðar í umræðunni og er örugglega nokkurra ræðna virði þegar þar að kemur. Mig langaði aðeins að nefna, vegna þess að hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir dró upp samantekt Rauða krossins á Íslandi frá því í apríl sl. um aðstæður flóttafólks í Grikklandi sem er kannski ekki rétta orðið að segja að hafi verið skemmtilegt að lesa, en það var ákveðin uppreist æru í henni sökum þess hve mikið hefur verið dregið úr málflutningi fólks sem hefur bent á það hversu ómögulegt verndarkerfið svokallaða er á Grikklandi og hvernig við séum ekki bara að gera einstaklingum mikla skráveifu með því að senda þau inn í það kerfi heldur líka Grikkjum og grískum stjórnvöldum. Þarna er samfélag sem ræður ekki við að halda þessu kerfi gangandi með mannsæmandi hætti og við viljum halda áfram að dæla fólki inn í þetta meinta verndarkerfi frekar en að sýna samábyrgð og halda hjá okkur þeim sem við getum haldið hjá okkur.
Í þessari samantekt Rauða krossins er farið yfir einhver átta meginstef og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fór yfir hagsmuni barna. Mig langar að nefna hér þrjár eða fjórar fyrirsagnir til að setja í samhengi við annað. 3. kafli fjallar um takmarkað aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Grikklandi. Þrátt fyrir að grísk lög mæli fyrir um jafnan aðgang flóttafólks og grískra ríkisborgara að heilbrigðiskerfinu þá er raunverulegt aðgengi flóttafólks allt annað og miklu minna. Eins kveða grísk lög á um jafnan rétt flóttafólks til félagslegs stuðnings, þar á meðal húsnæðis, en Rauði krossinn bendir á að aðgengi að húsnæði í Grikklandi sé takmarkað. Síðan er hér fjallað um það hvernig kerfið í Grikklandi gengur í raun gegn lagalegum réttindum fólks til að stunda atvinnu þar í landi. Aðgengi að atvinnu í Grikklandi er takmarkað fyrir flóttafólk.
Þetta rifjar upp fyrir mér ummæli hv. þm. Jódísar Skúladóttur úr Silfrinu um helgina sem benda til þess að hún hafi jafnvel lesið þessa skýrslu Rauða krossins en bara ekki tekið mark á henni eða að hún skipti ekki máli. Þingmaðurinn sagði, með leyfi forseta:
„Færðu húsnæði, heilbrigðisþjónustu, atvinnutækifæri? Það er ekkert víst. En það er líka fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því.“
Þarna var hún búin að lesa kafla 3, 4 og 6 í skýrslu Rauða krossins, en fannst það bara allt í lagi af því að fullt af Grikkjum hefðu það skítt líka. Það er nefnilega stundum styttra en mann grunar á milli stjórnarliða því að þetta rifjar upp dálitla senu sem við áttum undir fundarstjórn forseta í nóvember, þar sem við vorum að ræða umfjöllun allsherjar- og menntamálanefndar um brottvísanir hælisleitenda. Þar mætti Birgir Þórarinsson, þingmaður og félagi hv. þm. Jódísar Skúladóttir í að styðja ríkisstjórnina og standa að því áliti sem kemur út úr allsherjar- og menntamálanefnd, upp í pontu og sagði að það væri ekki boðlegur málflutningur hjá okkur að halda því fram að verndarkerfið í Grikklandi væri brotið vegna þess að hann hefði hringt í einhvern vin sinn sem starfaði í Grikklandi, heimsótt flóttamannabúðir og séð að þetta væri allt saman í himnalagi. (Forseti hringir.) Þetta er nú ekki alveg nákvæmlega eins málflutningur. Birgir segir að það sé bara ekkert að þessu kerfi, Jódís segir að það sé ýmislegt að þessu kerfi en það sé fullt af alls konar kerfum og Grikkir hafi það skítt líka. (Forseti hringir.) Niðurstaðan er alltaf sú sama hjá þeim systkinum; að gera íslenska kerfið aðeins verra og skófla fólki yfir í það gríska.