útlendingar.
Virðulegur forseti. Áfram um aðstæður flóttafólks í Grikklandi, sem eru mjög bágbornar. Hér erum við að tala um fólk sem hefur fengið viðurkennda stöðu sem flóttamaður í Grikklandi. Ég vísaði áðan í samantekt Rauða krossins á Íslandi frá því í fyrra um stöðu flóttafólks í Grikklandi. Mig langar að gera hér að umtalsefni mínu eitthvað sem ég held að þjóðin hafi orðið svolítið meira meðvituð um þegar Hussein Hussein var vísað úr landi með valdi og myndband sýnt af því þegar hann var að reyna að fá aðgang að spítala, að heilbrigðisþjónustu, eftir að hann var kominn til Grikklands. Það var sýnt frá því hvernig honum var meinaður aðgangur að spítala í Grikklandi. Honum var sagt að spítalinn væri lokaður á meðan Grikkir fengu að fara þangað inn óhindrað. Þetta er ekki bara eitthvert einstakt dæmi heldur er þetta kerfisbundið vandamál og það kemur fram á bls. 8 í þessari samantekt, með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir að grísk lög mæli fyrir um jafnan aðgang flóttafólks og grískra ríkisborgara að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi er raunverulegt aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu hins vegar verulega takmarkað, m.a. vegna gríðarlegs niðurskurðar síðustu ára. […] Hinn víðtæki niðurskurður sem hefur átt sér stað á síðustu árum hefur valdið því að mikill skortur er á heilbrigðisstarfsfólki og biðlistar langir. Þá gerir mikill skortur á túlkaþjónustu það að verkum að einstaklingar fá oft ekki rétta greiningu og eru ekki lagðir inn á spítala þegar þörf er á.“
Ég verð bara að segja að hin hræðilega kaldhæðni í þessu er að það stendur til að gera íslenska löggjöf þannig — eða það er reyndar þannig að flóttafólk á ekki rétt á sömu heilbrigðismeðferð og Íslendingar. Það er alveg þannig. Flóttafólk á eiginlega bara rétt á því sem er metið af starfsfólki Útlendingastofnunar sem nauðsynleg heilbrigðisþjónusta og það er ekki alltaf það sem við myndum kalla nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
Svo að ég haldi áfram að vitna í samantektina, með leyfi forseta, á bls. 9:
„Kostnaður einstaklinga vegna nauðsynlegra lyfjakaupa hefur jafnframt aukist á síðustu árum en það kemur illa við sjúklinga með langvinna sjúkdóma. Þá hefur takmarkaður aðgangur að geðheilbrigðisþjónustu jafnframt verið sérstakt áhyggjuefni en biðtími eftir slíkri þjónustu eru margir mánuðir. Heimildir bera með sér að andlegri heilsu flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi hrakað verulega á Covid-19 tímum en um það er fjallað á ítarlegan hátt í skýrslu IRC (International Rescue Committe) frá desember 2020.
Íslensk stjórnvöld geta ekki litið framhjá þeirri staðreynd að raunveruleikinn er sá að flóttafólk á í miklum erfiðleikum með að njóta fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þetta staðfesta alþjóðlegar skýrslur, en í fyrrgreindri skýrslu AIDA er fjallað um raunverulegt aðgengi flóttafólks að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Þá hafa stjórnsýsluhindranir sem komið hafa í veg fyrir útgáfu AMKA númera“ — sem eru kennitölurnar í Grikklandi — „hindrað aðgang flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í landinu.“
Þetta eru ein af mörgum grundvallarréttindum sem flóttafólk nýtur ekki til jafns við gríska ríkisborgara, þ.e. réttur til bestu mögulegu heilsu, réttur til jafns aðgengis að heilbrigðisþjónustu á við aðra. Það er verið að mismuna flóttafólki á þeim grundvelli að það sé flóttafólk þegar kemur að aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi.
Að því sögðu vil ég taka það skýrt fram að við gerum þetta líka hér á Íslandi. Eins og lagaumhverfið er núna erum við að mismuna flóttafólki. Við veitum því ekki sambærilegan aðgang að heilbrigðisþjónustu og við njótum sem erum innfæddir Íslendingar. Það er algerlega þannig. Og ef þetta 6. ákvæði þessa ómennskufrumvarps verður að lögum þá verður meira að segja sú litla heilbrigðisaðstoð, og aðgengi að heilbrigðisþjónustu, sem flóttafólk hefur tekin af þeim. Þá fyrst getum við farið að tala um að það sé virkilega ómannúðlegt kerfi á Íslandi sem byggi á mismunun, aðgreiningu, bara virkilegri ómennsku.