útlendingar.
Frú forseti. Ég hélt að kannski væri allt í einu verið hlustað á okkur þegar hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar kíkti hérna inn í salinn en því miður virtist hv. þingmaður bara vera að ganga frá fyrir nóttina. Við erum búin að benda á að þetta frumvarp brýtur í bága við stjórnarskrá, alþjóðlega sáttmála, mannréttindi. Þetta dregur úr skilvirkni og það er fullt af illa hugsuðum atriðum í frumvarpinu sem þarf að laga. En, nei, það má ekki gera það með því að kalla frumvarpið aftur inn til nefndar og vinna það betur. Það er búið að gefa það til kynna til allra hv. stjórnarþingmanna að þeir megi ekki tjá sig um þetta, megi ekki breyta frumvarpinu, það megi ekki gera neitt vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson skal fá sínu framgengt áður en hann verður sendur á eftirlaun.