lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég tel ekkert athugavert við það að við lengjum þingfund í kvöld, telji fólk ástæðu til að koma fleiri sjónarmiðum á framfæri varðandi skoðanir sínar um þetta mál. En ég held að það sé líka ágætt að halda því til haga að frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga kom hér fyrir þingið síðasta vor. Það var samið um það, svo að hægt yrði að ljúka þingstörfum, að það færi á dagskrá hér með haustinu. Málið kom hér inn í haust og í raun í allan vetur hefur hv. allsherjar- og menntamálanefnd verið að vinna með einum eða öðrum hætti tengt þessu frumvarpi þannig að ítarleg vinna hefur átt sér stað í nefndinni. Hér fyrir jól var samið um það að málið kæmi aftur til umræðu í nefndavikunni í upphafi árs. Á sama tíma lá það ljóst fyrir að við höfum sagt að það væri eðlilegt að mál eins og þetta gæti komið inn á milli 2. og 3. umr. og við höfum boðað framhaldsnefndarálit þar sem við munum m.a. bregðast við þeim gestakomum og þeim ábendingum sem upp komu í nefndavikunni. Þetta er mjög skýrt og það er ekkert því til fyrirstöðu að við klárum 2. umr. svo við getum einhent okkur í það að taka málið aftur inn á milli 2. og 3. umr. og bregðast við því sem fram hefur komið síðan þá. Þá getum við vonandi farið að klára þetta mál fljótlega svo við getum farið að snúa okkur að enn mikilvægari málum er varða umræðu um útlendinga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)