153. löggjafarþing — 58. fundur,  1. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:40]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf):

Herra forseti. Frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga er hér í meðförum þingsins fimmta þingið í röð. Breytingarnar sem hafa verið lagðar fram í öll hin skiptin hafa verið gríðarlega umdeildar, án alls samráðs við félagasamtök eða stofnanir sem vinna að málefnum útlendinga sem hingað koma og er það meðal þess sem hefur verið gagnrýnt harðlega af nánast öllum þeim aðilum sem sent hafa inn umsagnir um lagafrumvarpið. Er það mjög miður að vinna við svo veigamikið og mikilvægt frumvarp skuli ekki vinnast í meiri samvinnu og samtali við þau sem vinna í þessum viðkvæma málaflokki.

Aðrar athugasemdir sem umsagnaraðilar hafa sett fram eru grafalvarlegar, herra forseti, og snúast um fjölmörg lagaákvæði sem ætlunin hefur verið að breyta af hálfu hæstv. dómsmálaráðherra. Sumar þessara athugasemda eru svo alvarlegar að þær snúast um grundvallarmannréttindi eins og hvað skuli gera við umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hér sitja föst og réttindalaus, fólk sem hefur fengið lokasynjun á umsóknum sínum en ekki er hægt að flytja úr landi. 6. gr. frumvarpsins ýtir fólki í þessari stöðu úr þjónustu og út á guð og gaddinn, eða eins og Rauði krossinn á Íslandi segir í sinni umsögn, „þröngvar þeim á götuna í þeirri von að þeir fari sjálfviljugir úr landi.“ Þess háttar lagabreytingar brjóta í raun á mannréttindum fólks og losa ríkið undan skyldum sínum.

Frumvarp það sem hér er til umfjöllunar inniheldur fjölmörg ákvæði sem skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd og veita þeim lakari rétt en þann lágmarksrétt sem tryggður er í stjórnsýslulögum, nr. 37/1993. Þá er réttur flóttafólks til fjölskyldusameiningar í ákveðnum tilvikum felldur niður en hann er grundvallarréttur og jafnframt forsenda fyrir árangursríkri inngildingu.

Herra forseti. Allar umsagnir sem bárust nefndinni fela í sér harða gagnrýni á frumvarpið og þær breytingar sem þar eru lagðar til. Margir umsagnaraðilar fjalla um nauðsynlegar breytingar sem gera þarf á lögum um útlendinga, t.d. að veita einstaklingum sem ekki hefur tekist að flytja úr landi eftir margra ára dvöl tækifæri til að fá mál sitt tekið upp í stað þess að þau festist hér réttindalaus í lagalegu tómarúmi.

Í umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands frá 11. nóvember síðastliðnum var fundið að því að hvorki væri vísað til ákvæða stjórnarskrárinnar né mannréttindasáttmála Evrópu í athugasemdum með frumvarpinu. Þetta væri afar óheppilegt þar sem efni frumvarpsins varðaði með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd og vísaði stofnunin til þess að til álita kæmi hvort ákvæði í 6. gr. frumvarpsins um brottfall þjónustu samræmdist 65., 68. og 76. gr. stjórnarskrárinnar, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 13. gr. félagsmálasáttmála Evrópu.

Herra forseti. Hér er um að ræða gríðarlega alvarlegar athugasemdir sem verður að taka til nánari umfjöllunar í nefndinni og verður einfaldlega að breyta. Nefndarmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd vöktu athygli á þessu og gerð var tillaga um að málinu yrði vísað til ráðuneytisins þar sem það væri ótækt til áframhaldandi þinglegrar meðferðar í ljósi þeirra alvarlegu athugasemda sem fram komu í umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Þegar ekki var orðið við því óskuðu þrír nefndarmenn eftir því að Lagastofnun Háskóla Íslands legði mat á það hvort frumvarpið stæðist ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Er hér enn, eftir því sem ég veit, beðið svara við þeirri beiðni og ég tek innilega undir með þeim nefndarmönnum um að löggjafinn samþykki ekki frumvarp sem vafi leikur á hvort standist stjórnarskrá Íslands.

Herra forseti. Í 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, er kveðið á um skyldu íslenskra stjórnvalda til að eiga samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna í samræmi við 35. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, m.a. um framkvæmd og túlkun þess samnings og útlendingalaga og þá einnig breytingartillagna við lögin. Alþingi Íslendinga, herra forseti, getur ekki hunsað ítarleg tilmæli stofnunarinnar um breytingar á frumvarpinu sem fram koma í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gerir verulegar athugasemdir við ákvæði um fyrsta griðland, öruggt þriðja ríki, sem er lagt til í 8. gr. frumvarpsins. Þar er mælt fyrir um regluna um fyrsta griðland, þ.e. að umsókn um alþjóðlega vernd skuli afgreidd í fyrsta ríki sem umsækjandi kemur til og getur veitt honum vernd. Í athugasemd um ákvæðið í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ákvæði í lögum um fyrsta griðland hafi ekki verið beitt að fullu þar sem það sé talið óskýrt. Hér er þannig um lögfestingu á afar umdeildu ákvæði að ræða því að vafi leikur á því hvort senda megi einstaklinga til þriðja ríkis í öðrum tilvikum en þeim þegar þeim hefur verið veitt vernd af einhverjum toga í því ríki.

Það hlýtur að vera grundvallarforsenda þess að synja einstaklingi um efnislega meðferð og senda hann til þriðja ríkis að viðkomandi hafi heimild til dvalar í ríkinu og að stjórnvöld í viðtökuríki hafi samþykkt að taka á móti umsækjanda. Það er grundvallaratriði, enda kom það fram á fundi hv. allsherjar- og menntamálanefndar með fulltrúum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna að slíkt er eitt skilyrði fyrir því að beita þessu ákvæði og stofnunin beinlínis varaði Alþingi Íslendinga við því að setja lög þar sem þessu ákvæði er beitt og að setja þurfi fram tilmæli um afar ströng skilyrði fyrir því að reglunni sé beitt yfir höfuð. Þetta er t.d. eitt af því sem taka þarf til grundvallarendurskoðunar. Ef þau skilaboð sem við höfum heyrt hér um að fulltrúar meiri hlutans vilji taka málið inn á milli 2. og 3. umr. eru rétt er þetta til að mynda ein af þeim alvarlegu athugasemdum sem þarf að taka til greina og breyta og afnema í raun og veru.

Það hefur verið rætt um að hér sé komin eins konar innleiðing á alheims-Dyflinnarreglugerð án þeirra lágmarksréttinda sem reglugerðin þó tryggir, sem er þó umdeild fyrir, svo sem um einingu fjölskyldunnar og aukin réttindi fylgdarlausra barna, auk þess sem í reglugerðinni er að finna mikilvæg ákvæði um tímafrest sem tryggir einhvers konar skilvirkni og réttaröryggi. Í ákvæðinu um öruggt griðland er ekki að finna neinar reglur um lágmarksvernd eins og þó þær sem eru í Dyflinnarreglugerðinni.

Herra forseti. Síðan er þetta ákvæði í lagafrumvarpinu um þjónustusviptingu, að svipta fólk þjónustu í viðkvæmri stöðu. Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að umsækjendur um alþjóðlega vernd verði sviptir þjónustu 30 dögum eftir að ákvörðun um synjun verður endanleg á stjórnsýslustigi, enda flokkist fólk þá ekki lengur sem umsækjendur um alþjóðlega vernd heldur útlendingar og eigi þar með ekki rétt til þjónustu sem umsækjendum er tryggð. Þrátt fyrir að blessunarlega séu gerðar undantekningar á þessu í lagafrumvarpinu þegar um börn er að ræða, barnshafandi konur og sérlega viðkvæma einstaklinga, auk þess sem heimilt er að viðhalda þjónustu handa þeim sem sýnt hefur samstarfsvilja við framkvæmd ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið, er ekki hægt, herra forseti, að samþykkja þetta ákvæði. Verði tillagan um þjónustusviptingu að lögum verða einfaldlega kaflaskil hér í meðferð íslenskra stjórnvalda á fólki sem óskað hefur eftir alþjóðlegri vernd, herra forseti.

Við skulum muna að flest þau sem hingað koma og synjað er um vernd yfirgefa landið annaðhvort sjálfviljug eða því miður þannig að lögregla framkvæmir þvingaða brottvísun, en þetta er meiri hluti þeirra sem fá þessa niðurstöðu í sín mál. Með því að nota þjónustusviptingu til að þrýsta á umsækjendur að yfirgefa landið er verið að setja fólk í sárafátækt og heimilisleysi og skortur á heilbrigðisþjónustu notaður sem tæki til að takmarka fjölda flóttafólks til landsins og til að neyða fólk til að fara. Það, herra forseti, eru beinlínis rök stjórnvalda fyrir þjónustusviptingunni og ég tek heils hugar undir með hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, sem segir í nefndaráliti 1. minni hluta hv. allsherjar- og menntamálanefndar að það sé óraunhæft að allir umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni yfirgefi landið sjálfviljugir innan 30 daga frá endanlegri synjun.

Herra forseti. Hafi fólk ekki rétt á heilbrigðisþjónustu má leiða líkur að því að það leiti sér alls ekki aðstoðar fyrr en það er orðið fárveikt eða það er orðið um seinan. Þá er líka vert að vísa í umsögn Læknafélags Íslands frá 5. desember 2022 þar sem áréttað er að það eru grundvallarmannréttindi allra að fá að njóta heilbrigðisþjónustu, burt séð frá stöðu fólks, eins og komi fram í fjölmörgum mannréttindasamningum sem Ísland hefur staðfest. Þetta er til að mynda áréttað í Helsinki-yfirlýsingunni sem eru siðfræðilegar meginreglur lækna og kveða á um skyldur þeirra til að aðstoða fólk í neyð. Það sama segir í umsögn embættis landlæknis um lagafrumvarpið, sem segir það óásættanlegt að svipta fólk réttinum til heilbrigðisþjónustu. Segir enn fremur að embættið telji heilbrigðisþjónustu vera grundvallarmannréttindi sem byggist á alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, nr 10/1979.

Herra forseti. Sú ákvörðun hæstv. dómsmálaráðherra og ríkisstjórnarinnar að svipta ákveðinn hóp, þótt hann sé án kennitölu og án dvalarleyfis, algerlega réttindum til grunnþjónustu á borð við húsnæði, fæði og heilbrigðisþjónustu getur auðveldlega talist brot á 76. og 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Næst er vert að minnast á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sem kveður á um breytingar á afmörkun tímafrests. Frá gildistöku þeirra hafa ítrekað komið upp mál barna sem hafa dvalið hér á landi um langt skeið og fest rætur en verið synjað um alþjóðlega vernd. Slíkt var mál hinnar 11 ára gömlu Hanyie Maleki frá Afganistan, mál hinnar 8 ára gömlu Mary frá Nígeríu árið 2017, mál afgönsku systkinanna Zainab og Amir Safari, þá 12 og 14 ára, árið 2019 og mál hins 6 ára gamla Muhammeds Zohairs Faisals árið 2020. Umrædd mál leiddu öll til breytinga á lögum eða reglugerð um útlendinga. Mál Hanyie og Mary árið 2017 leiddu til breytinga á lögum um útlendinga, mál systkinanna Zainab og Amir Safari leiddi til þess að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, setti reglugerð nr. 638/2019, um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017, sem fól í sér heimild Útlendingastofnunar til að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem fengið hefur vernd í öðru ríki séu meira en tíu mánuðir liðnir frá því að umsókn barst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Mál Muhammeds Zohairs Faisals leiddi til þess að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, setti reglugerð nr. 122/2020, um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017, þar sem kveðið er á um að þrátt fyrir 4. mgr. 23. gr. laga um útlendinga skuli umsóknum barna skv. 37. og 39. gr. laganna svarað innan 16 mánaða. Þá væri heimilt að veita barni, sem sótt hefði um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu á stjórnsýslustigi innan 16 mánaða frá því að það sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum öðrum skilyrðum.

Með 8. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á afmörkun tímafrests núgildandi laga sem leiðir til þess að tímafrestur til að öðlast rétt til efnislegrar meðferðar vegna tafa á málsmeðferð stöðvist þegar endanleg niðurstaða er fengin á stjórnsýslustigi í stað þess að slíkt gerist við flutning úr landi líkt og nú er. Þetta leiðir til þess að umsækjendur, þar með talin börn, sem synjað er um efnismeðferð hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, öðlast engan rétt til efnismeðferðar þó að flutningur þeirra úr landi dragist úr hófi. Er það óháð því hvort þau geti sjálf haft áhrif á það hvenær þau yfirgefa landið.

Þetta mun leiða til þess að sífellt fleiri börn sem dvalið hafa hér um langt skeið og fest rætur munu ekki öðlast neinn rétt á þeim grundvelli heldur dvelja hér áfram í óvissu án nokkurra réttinda. Með þessu er horfið frá þeim réttarbótum sem gerðar hafa verið undanfarin ár í þágu barna á flótta, sem ég var að telja upp hér áðan, sem gerðust í kjölfar mikils þrýstings frá almenningi, börnum og unglingum sjálfum, foreldrum og almennum borgurum hér á landi. Við verðum að verja þessar breytingar sem voru þó gerðar í þágu barna.

Að auki vil ég líka vekja athygli á því sem Rauði krossinn á Íslandi dregur fram í sinni ítarlegu og vel unnu umsögn um málið en það eru þau ámælisverðu vinnubrögð Útlendingastofnunar að vanrækja skyldur sínar til að hafa frumkvæði að rannsókn á stöðu umsækjenda og hugsanlegum sérþörfum, sem getur verið grafalvarlegt, þegar umsækjendur sem í raun falla undir hugtakaskilgreiningu 6. töluliðar 3. gr. laga um útlendinga fá ekki viðurkenningu á stöðu sinni, þegar ekki hefur farið fram rannsókn á andlegu eða líkamlegu ástandi viðkomandi, rannsókn sem Útlendingastofnun ber að inna af hendi. Rauði krossinn einfaldlega staðhæfir að hér sé um að ræða ámælisverð vinnubrögð Útlendingastofnunar.

Herra forseti. Það er löngu kominn tími til þess að taka utan um málefni útlendinga og fólks á flótta með styrkum hætti. Síðan síðast voru gerðar breytingar á lögum um útlendinga með þverpólitísku samráði sem samþykktar voru árið 2016 hefur ýmislegt gerst á alþjóðavísu sem hefur haft veruleg áhrif á fjölda fólks sem er á flótta í heiminum. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hélt áfram, staða mála í Afganistan er vægast sagt hörmuleg, fólk á flótta í Vestur- og Suður-Afríku flýr stríðsátök og algjöra neyð. Neyð þessa fólks er svo mikil að það leggur á óörugga, banvæna leið yfir Miðjarðarhafið eða sendir börn sín frá svæðinu í óvissuna í leit að betra lífi. Stríðið í Úkraínu hefur kollvarpað öllu í lífi milljóna manna sem hafa flúið innrás Rússa í Úkraínu.

Staðreyndin er sú að aldrei hefur verið eins mikill fjöldi fólks á flótta í heiminum, eða 100 milljónir manna í maí á síðasta ári, og hækkaði sú tala um 10 milljónir á milli ára. Þessi fjöldi mun að öllum líkindum aukast á næstu árum vegna stríðsátaka, sárafátæktar og afleiðinga loftslagsbreytinga. Hvað þarf að gera? Hvernig er hægt að hafa hlutina til að við getum sinnt okkar alþjóðlegu skyldum og stuðlað að mannúðlegra samfélagi fyrir þau sem til okkar leita, og til að við, sem siðmenntað samfélag, sinnum okkar siðferðislegu skyldum sem við höfum undirgengist? Við eigum ekki að spyrja hvort það sé raunveruleikinn sem við viljum í öll sveitarfélög að hafa 30% íbúa af erlendum uppruna eins og hv. þm. Jódís Skúladóttir spurði í Silfrinu á RÚV á sunnudaginn síðasta og talaði þar líka um, með leyfi forseta, að það sé líka „fullt af innfæddum Grikkjum sem hafa ekki aðgang að því“ og átti þar við heilbrigðisþjónustu og atvinnutækifæri, að það væri þá ástæðan fyrir því að ekki væri hægt að ætlast til þess að fólk á flótta fengi þá þjónustu eða tækifæri sem því ber.

Nei, við eigum ekki að etja saman aðkomnu fólki og okkur sem erum hér fyrir. Við erum ríkt samfélag með allar aðstæður til að taka vel á móti fólki á flótta. Þessi vilji hefur líka sýnt sig ítrekað meðal almennings sem hefur ítrekað mótmælt ómannúðlegum brottvísunum, sérstaklega á börnum og barnafjölskyldum.

Ég tek heils hugar undir þau sjónarmið að auka verði skilvirkni málsmeðferðar og að stytting málsmeðferðartíma sé eitt mikilvægasta skrefið í réttarbótum fyrir fólk sem leitar eftir alþjóðlegri vernd. Þetta hefur Rauði krossinn um árabil lagt áherslu á og ég tek undir sjónarmið félagsins um að í því ljósi sé mikilvægt að aukin skilvirkni komi ekki niður á réttaröryggi umsækjenda, og þetta kemur að vísu fram í frumvarpinu, ekki síst réttaröryggi einstaklinga sem eru mögulega í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi laganna en við verðum að tryggja mannúðlega skilvirkni og það verður að vera skýrt í þessum lögum og það þarf að vera skýrt hvernig því verður framfylgt.

Stjórnvöld eiga að skipa þverpólitíska þingmannanefnd og skipa í hana fulltrúa frá helstu hagaðilum sem starfað hafa við málaflokkinn. Þar er vert að minnast á áskorun Alþýðusambands Íslands, Barnaheilla, Geðhjálpar, Kvenréttindafélags Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Rauða krossins á Íslandi og fleiri samtaka sem hafa óskað eftir því, og gerðu það 19. maí 2022, að ríkisstjórnin stígi skref til baka, dýpki samtalið og samræðuna og nái þannig faglegri sátt líkt og áður hafði tekist. En við smíði frumvarps þessa virðist slíkt samráð hafa gleymst með öllu og þar með hefur mikilvæg þekking á framkvæmd málaflokksins farið forgörðum. Það þarf að móta innflytjendastefnu og löggjöf sem tekur mið af stöðu mála í heiminum og þörfum íslensks samfélags til framtíðar og það er mikilvægt að sú vinna byggist á skýrri framtíðarsýn, bestu fáanlegu þekkingu og reynslu þeirra sem unnið hafa við málaflokkinn en ekki síst á viðhorfum innflytjenda sjálfra sem hafa reynslu af því að setjast hér að, að þurfa að nýta sér þjónustuna, hafa þurft að nota sér kerfið, hafa rekist á þær hindranir sem hér eru.

Það þarf að ábyrgjast skilvirkari afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd með mannúð að leiðarljósi. Það þarf að tryggja umsækjendum um alþjóðlega vernd rétt til að starfa hér á landi á meðan umsókn þeirra er til meðferðar. Það þarf að ganga úr skugga um að réttindalaust fólk festist ekki í lagalegu tómarúmi hér á landi og það er nauðsynlegt að til verði raunhæfar leiðir fyrir ríkisborgara utan EES til að sækja um atvinnu og setjast að hér á landi. Allt þetta er hægt með betri yfirsýn yfir málaflokkinn þannig að heildarmarkmiðin náist um að auka skilvirkni og draga úr kostnaði ríkissjóðs, samhliða því að tryggja ítrustu mannréttindi þeirra sem hingað hafa leitað og þar með gangast undir og uppfylla okkar siðferðislegu og alþjóðlegu skuldbindingar. Það er líka nauðsynlegt að taka mið af þörfum fólks á flótta og allra þeirra sem setjast hér að, tryggja öllum, sér í lagi börnum, jöfn tækifæri og jafnt aðgengi að þjónustu og það verður ekki gert með þessu frumvarpi óbreyttu. (Forseti hringir.) Þessu frumvarpi þarf að breyta og ég tek heils hugar undir með þeim þingmönnum sem hafa stigið hér upp (Forseti hringir.) og ég leggst alfarið gegn því að frumvarpið verði samþykkt og legg til að 6. og 8. gr. frumvarpsins verði felldar brott enda munu þær greinar hafa gríðarlega neikvæðar afleiðingar í för með sér.