153. löggjafarþing — 58. fundur,  1. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:19]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Herra forseti. Ég er þá að ljúka yfirferð minni yfir 4. gr. frumvarpsins sem fjallar um auknar heimildir lögreglu til að afla vottorða frá heilbrigðisyfirvöldum um líkamlegt og andlegt heilbrigði einstaklings til að geta ferðast, sem snýst ekki um hagsmuni einstaklingsins heldur hagsmuni lögreglunnar til að geta flutt hann úr landi.

Það eina sem mig langar kannski til að bæta við hvað það varðar er þáttur sem að mínu mati sýnir dálítið glöggt að það er ekkert sérstaklega djúp hugsun að baki þessu frumvarpi. Það er ekkert rosalega mikil heildarsýn þarna að baki, meira svona einhver gremja gagnvart því að einhver skuli komast upp með að hlýða ekki boðum um að fara úr landi og annað slíkt. Ekkert er hugsað út í samfélagslegar afleiðingar af því þegar réttindi fólks eru brotin og þetta ákvæði er dæmi um það. Þarna er verið að veita lögreglu heimild til þess að t.d. afla bólusetningarvottorða vegna Covid, ef við höldum okkur við það dæmi. Þegar það ástand stóð hér yfir og ekki var hægt að fara í flug án þess að taka Covid-próf eða vera bólusettur, eða hvort tveggja, þá augljóslega fældi það einstaklinga sem áttu yfir höfði sér að vera fluttir nauðugir úr landi frá því að ýmist taka slík próf eða láta bólusetja sig. Það er auðvitað mjög slæmt. Það er ákaflega slæmt að einstaklingar sjái ástæðu til þess að forðast aðgerðir í eigin þágu, t.d. að láta bólusetja sig fyrir heimsfaraldri, þar sem þeir óttast hvernig stjórnvöld munu nýta sér það. Ég held að ekki hafi verið hugsað út í þessa afleiðingu. Í kjölfar ofbeldisfullrar handtöku tveggja Palestínumanna, sem voru lokkaðir til Útlendingastofnunar að sækja bólusetningarvottorðin sín, fékk ég oft þá spurningu frá einstaklingum: Á ég þá nokkuð að láta bólusetja mig? Það er auðvitað hræðilegt og þessir einstaklingar sem þorðu ekki að láta bólusetja sig vegna þessara aðfara gátu auðvitað ekki farið neitt og þorðu ekki út úr húsi í kjölfarið. Það er auðvitað mjög slæmt. Ekkert er hugsað út í svona afleiðingar af þeim ákvæðum sem verið er að setja hér og þetta er bara eitt lítið dæmi.

Mun alvarlegri dæmi eru í þeirri grein sem ég ætla að fjalla um næst, með stuttri viðkomu í 5. gr. sem felur bara í sér ákveðið formsatriði, en tillaga er í frumvarpinu um að fólk verði svipt ákveðinni þjónustu þegar það er búið að fá lokaniðurstöðu á stjórnsýslustigi. Þar erum við með skýr dæmi um að hugsað sé: Sennilega erum við að brjóta á réttindum fólks, en okkur er bara sama um réttindi þessa fólks. Einhver gæti bara hreinlega verið þeirrar skoðunar að það væri alveg sama þótt verið væri að brjóta á réttindum fólks: Tökum þau bara og leggjum aðeins til hliðar — tökum mannréttindi fólksins og leggjum þau til hliðar. Að baki þessu frumvarpi er ekki hugsað út í samfélagslegar afleiðingar þess að brjóta á réttindum fólks, bara ekki neitt.

Ég ætla að leyfa mér að nýta þann örstutta tíma sem ég á eftir í ræðunni til að útskýra 5. gr., svo fólk haldi ekki að ég sé að gleyma einhverju. 5. gr. orðast svo, með leyfi forseta:

„Í stað tilvísunarinnar „13. tölul. 3. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: 14. tölul. 3. gr.“

Ástæðan fyrir því að ég sé ástæðu til að fara yfir þetta er að ákvæði sem hljóða svona geta verið mjög afdrifarík. Þetta ákvæði er það svo sem ekki. Þarna er verið að raða töluliðum í upptalningu í 3. gr. laganna, upptalningu á skilgreiningum, í ljósi þess að búið er að bæta við skilgreiningu á hugtakinu endurtekin umsókn, sem ég fjallaði örstutt um í tengslum við 1. gr. frumvarpsins og mun fjalla mun ítarlegar um í tengslum við 7. gr. frumvarpsins sem fjallar einmitt um endurteknar umsóknir.

En 5. gr. frumvarpsins snýst bara um að laga töluliði til þess að skilgreiningar í frumvarpinu geti verið í stafsetningarröð. Ég óska eftir því við forseta að vera bætt aftur á mælendaskrá.