útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég er bara rétt að byrja að tjá mig um þetta mál. Ég hef verið að fylgjast með þessu máli síðan það var lagt fyrst fram árið 2017. En ég ætla bara að taka punktinn sem ég kom með í fyrstu tveimur ræðum mínum hér áðan aðeins lengra. Ég ætla að mála upp — afsakið orðalagið, forseti —„scenario“, ég veit ekki alveg hvað það er á íslensku.
(Forseti (AIJ): Sviðsmynd.)
Ég ætla að mála upp sviðsmynd — takk fyrir þetta, forseti — af mögulegum atvikum og mögulegri þróun ef frumvarpinu verður þröngvað í gegn án þess að teknar verði til greina áhyggjur sem hafa komið fram af hálfu umsagnaraðila og af hálfu þingmanna og af hálfu almennings. Segjum sem svo að frumvarpið verði að lögum og þessum íþyngjandi ákvæðum sem eru í því verði beitt, ákvæðum sem samræmast mögulega ekki stjórnarskrá. Tökum bara sem dæmi að flóttafólk sé svipt réttindum eða grunnþjónustu. Það hefur gerst áður og mig minnir að það hafi verið kærunefnd útlendingamála sem komst að þeirri niðurstöðu að það að Útlendingastofnun hafi hent flóttafólki út á götuna hafi ekki verið í samræmi við lög. En nú er verið að lögfesta þessa heimild. Það er bagalegt. En segjum sem svo að þetta gerist og manneskjan sem verður fyrir þessum íþyngjandi áhrifum laganna og íþyngjandi aðgerðum stjórnvalda, sem beita þessum íþyngjandi lögum, ákveður að kæra. Ég hef ekki séð mörg dómafordæmi fyrir því að málefni flóttafólks eða málefni fólks sem hingað kemur í neyð fari fyrir dóm. En segjum svo að þetta fari fyrir dóm og fari alla leið og fari fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þar er bara úrskurðað að þessi meðferð á flóttafólki hafi ekki verið samræmanleg lögum og þá sérstaklega mannréttindasáttmála Evrópu; þetta er það sem er verið að vara okkur við. Er það þá ekki svolítið vandræðalegt fyrir núverandi ríkisstjórn, eftir að búið er að vara þau við nákvæmlega þessum áhrifum, við nákvæmlega þessum afleiðingum og við nákvæmlega þessari sviðsmynd, að þröngva þessum lögum samt í gegn þvert á vilja flokka sem sitja hér á þingi? Já, við erum kannski í minni hluta en við erum samt hluti af þinginu eins og ég kom inn á áður.
Við eigum þegar von á einni niðurstöðu frá Mannréttindadómstóli Evrópu sem varðar vissulega ekki réttindi flóttafólks en varðar niðurstöður kosninga. En það er annað mál. Það er bara smááfellisdómur fyrir þessa ríkisstjórn, ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, sem fær þá tvo dóma frá Mannréttindadómstóli Evrópu á sig á einu kjörtímabili, þ.e. ef þetta gerist. Ég er bara að segja: Það er hægt að forðast þessar afleiðingar og það er hægt að forðast þessa sviðsmynd með því að fjalla betur um þetta, ekki bara í nefnd heldur koma líka með einhvers konar úttekt, fela sérfróðum lögaðilum að gera úttekt á frumvarpinu og athuga hvort það samræmist stjórnarskrá. Það er ekki verið að biðja um mikið. Það er bókstaflega verið að biðja hæstv. dómsmálaráðherra um að fylgja lögum þegar kemur að því að semja frumvarp og samþykkja frumvarp og neyða frumvarp í gegn.
Eins og ég kom inn á áðan þá er þetta grafalvarlegt mál. Ég er kannski að hengja mig á þessu eina atriði en ég mun halda áfram að nefna þetta hér uppi í pontu þangað til einhver úr meiri hlutanum kemur hingað og segir mér að þetta verði tekið til umfjöllunar á alvarlegum nótum, annaðhvort í nefnd eða á ríkisstjórnarstigi. Það er enginn úr meiri hlutanum í þingsal. Það er enginn úr meiri hlutanum að taka þátt í þessum umræðum með okkur, og ég veit ekki einu sinni hvort nokkur úr meiri hlutanum er að hlusta á okkur. Þetta eru ábendingar og athugasemdir og áhyggjur sem ber að taka alvarlega og þetta kemur frá kollegum sem vinna með meiri hlutanum á þingi. Jafnvel þótt við séum ekki í beinu samstarfi við þau þá fara öll lög í gegnum þingið. Ég held að það sé rosalega mikilvægt að við vinnum öll saman að því og leggjum hönd á plóg til að sjá til þess að allt fari í gegnum lögbundið ferli og að við getum samþykkt lög eða hafnað lögum með fullvissu um að þetta samræmist stjórnarskrá og alþjóðaskuldbindingum sem Ísland hefur skuldbundið sig lagalega til að framfylgja. Þetta er sviðsmynd sem enginn okkar vill sjá.