útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Herra forseti. Ég ætla að reyna að halda þræði í þessari umræðu og taka upp þráðinn í tengslum við það sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson minntist á hérna varðandi breytingartillögur meiri hlutans sem hafa verið boðaðar og hafa ekki verið afhjúpaðar fyrir okkur. Við fáum ekki að vita hverjar þær eru en mig grunar að ég viti alla vega hver ein breytingartillagan er, breyting sem meiri hluti þingsins vill gera á þessu frumvarpi. Ég ætla að taka eina ræðu í að útskýra hana fyrir ykkur af því að hún er dæmi um það sem ég nefndi áðan þegar ég var að lesa upp 5. gr. frumvarpsins, sem er bara formsatriði og fullkomlega óskiljanlegt ákvæði en getur samt breytt dálítið miklu. Nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fylgja breytingartillögur við frumvarpið og í 1. gr. þeirra breytingartillagna, sem komu fram eftir umfjöllun nefndarinnar eftir 1. umr., segir, með leyfi forseta: „Við 3. gr. bætist nýr liður, a-liður, svohljóðandi: Orðið „og“ í a-lið 2. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.
Það sem ég held að hafi verið ætlunin með þessu, af því að það er verið að bæta við upptalningu í lögunum — og nú skal ég reyna að útskýra það á mannamáli þó að mér skiljist að ég eigi stundum í basli með það, ég tek þeirri áskorun í þetta skiptið — í sem sagt þessari 8. gr. laga um útlendinga er formanni kærunefndarinnar heimilað að úrskurða einn í tilteknum málum. Þar á meðal er honum heimilt að úrskurða einn í málum er varða umsókn um alþjóðlega vernd ef, og þar eru tiltekin tvö skilyrði, kærandi er ríkisborgari ríkis sem er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki og ef Útlendingastofnun hefur afgreitt málið á grundvelli b–f-liðar 1. mgr. 29. gr. Þetta þýðir að til að formanni kærunefndar útlendingamála sé heimilt að úrskurða einn í málum er varða umsókn um alþjóðlega vernd þá þarf kærandinn að vera frá öruggu upprunaríki, eins og það er kallað, og málið þarf að hafa sætt flýtimeðferð vegna þess að umsóknin var talin bersýnilega tilhæfulaus. Það er sem sagt samkvæmt lögunum í dag ekki nóg að þú sért frá öruggu upprunaríki, segjum Albaníu, heldur þarftu að vera frá Albaníu og umsóknin hafa verið metin bersýnilega tilhæfulaus. Það er þetta „og“. Meiri hlutinn hefur lagt til að þetta verði tekið burt. Ókei, af hverju? Vegna þess að hann ætlar að bæta inn í þessa upptalningu á málum, sem formanni kærunefndar er heimilt að úrskurða í, endurteknum umsóknum. Það yrði þá: Formanni er heimilt að úrskurða einn í málum sem varða örugg upprunaríki ef umsóknin hefur verið metin bersýnilega tilhæfulaus eða ef um endurtekna umsókn er að ræða.
Ég vakti athygli á því í meðförum málsins fyrir allsherjar- og menntamálanefnd að það að taka þetta „og“ þarna í burtu breytti lögunum þannig að formaður kærunefndar gæti úrskurðað í öllum málum frá einstaklingum frá öruggum upprunaríkjum, hvort sem umsögnin væri metin bersýnilega tilhæfulaus eða ekki. Mig grunaði nefnilega að það hefði ekki verið ætlunin. Og á daginn kemur að það var rétt. Þannig að þetta þarf að laga. Mig grunar að þær breytingar, þær grundvallarbreytingar sem gera á á þessu frumvarpi í meðförum nefndarinnar milli 2. og 3. umr., séu að 1. gr. breytingartillagna meiri hlutans við frumvarpið verði felld brott þannig að þetta „og“ verði ekki fellt brott. Mögulega þarf að bæta við „eða“ eftir 2. liðinn í upptalningunni, eitthvað slíkt, þetta er lagatæknilegt atriði. Þetta gerir það samt að verkum að meiri hlutinn getur haldið því fram að hann ætli sér að gera breytingar á frumvarpinu og hann ætli að gera það milli 2. og 3. umr. Það er auðvitað engin þörf á því að vera að láta okkur vita af þessu vegna þess að ef við vitum af þessu þá vitum við að þau ætla ekki gera neinar aðrar breytingar á frumvarpinu. Þá er þessi umræða sem á sér stað hér auðvitað fullkomlega þörf. Þannig að ef svo er ekki — og nú er ég að koma með kenningu, nú er ég að giska, af því að meiri hlutinn talar ekki við okkur þá bara giska ég á það hvort þetta séu breytingarnar sem þau ætli að gera — ef það stendur til að gera einhverjar veigameiri breytingar á frumvarpinu, efnislega t.d., þrátt fyrir að hæstv. dómsmálaráðherra hafi sagt í fjölmiðlum að svo sé ekki, þá væri strax til bóta að fá bara annaðhvort já eða nei við því. (Forseti hringir.) Það væri gott að heyra hvort þetta séu breytingarnar sem á að gera eða hvort það á að gera eitthvað meira.